Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Evrópa kallar ...

Ekki er víst að ný ríkistjórn lýðveldisins muni snúast um Evrópusambandið og aðild að því, mér finnst það þó líklegt. Átakalínan í stjórnarmyndunarviðræðum vinstra liðsins, Samfó og kommana í VG mun þó líkast til liggja þar.

Ég hef ekkert sérstakar áhyggjur af þessum samningum, vegna þess að ég veit að afturhaldsliðið mun ekki hleypa Samfó á stökk. En ef Samfó færi með poppulistunum Framsókn og Borgarahreyfingunni þá er voðinn vís.

Þar lítum vér baráttu lítillar þjóðar
við lífskjör, sem oft voru döpur og ströng
í styrjöld við eldgos, hafís og þröng,
- fólk, sem í barnslegri fávizku seldi
frelsis síns dýrgrip erlendri hönd,
fólk, sem örmagna í fjötrum stundi,
en fékk ekki slitið harðstjórans bönd.  

Í þessum línum úr ljóði Jóns frá Ljárskógum, Fullveldið tvítugt , er þörf áminning í aðdraganda þess að við förum bráðar í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Mikilvægt er að gleyma því ekki að í frelsinu, frelsi okkar Íslendinga sem þjóðar og frelsi okkar sem einstaklinga var (og er) fólgin sá kraftur sem hefur gert okkur að þeirri þjóð sem nýtur hvað mestrar velmegunar og velferðar í heiminum.  Frá helsinu til dagsins í dag höfum við lyft Grettistaki í uppbyggingu þjóðfélagsins. Þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn án nokkurs vafa átt hvað mestan þátt.

Okkur varð á í messunni og þó svo að gott sem öll heimsbyggðin sé því sama marki brennd, þá hefðum við átt að gera betur. En það fór eins og það fór, við getum víst lítið gert við því í dag. En við megum ekki láta bakslagið verða til þess að við seljum okkur aftur erlendri hönd.  

Sjálfur er ég fylgjandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið, en ég vil gera það í því andrúmslofti sem svífur yfir næsta erindi Jóns.

Í dag er hún hyllt, hin frækna fylking,
svo framgjörn, svo djörf, svo íturglæst,
sem undir frelsisins merkum mættist,
og menningu Íslands lyfti hæst.
Þessi heiðríki dagur geislandi gleði,
sem gaf oss hin liðna tíð í arf,
er helgaður þessum hetjum Íslands
í hljóðri þökk fyrir unnið starf.

Förum í þessa vegferð fullviss um að við erum fjráls þjóð, þjóð á meðal þjóða. En ekki einhverjir vesalingar í vanda. 

Áfram veginn … frelsisins veg!


mbl.is Fréttaskýring: Stærsta vinstrisveiflan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin græðir á Evrópusambandsumræðunni

Evrópa kallar! Samfylkingin lofar okkur Evrópu lausnum, vandamál okkar munu einhvernvegin hverfa, svona eins og dögg fyrir sólu - af því bara - um leið og við svo mikið sem segjumst ætla að sækja um aðild.

Evrópa er skjólið, við viljum hverfa í fjöldann. Á undraverðan hátt munu víst verða til þúsundir starfa, vextir munu líkast til hverfa, af lánsfé verður þá vísast til nóg; enda munu allir bera fullt traust til Íslendinga - þeir eru jú að fara að ganga í EU.

Sjálfur vil ég að við hefjum samningsviðræður við EU sem allra fyrst. En ég vil gera það í góðu formi, og fyrir alla muni vil ég vera edrú við þá iðju. Samfylkingin er útúrdópuð, hefur tekið allt of stóran skammt af Evrópudópinu. Þessu fólki er ekki treystandi til þess að fara með samninga fyrir okkar hönd.

Ég bið fólk að íhuga hvers virði það er að vera sjálfstæður, að kunna að sjá sjálfum sér farborða. Í þessu sambandi er holt að skoða orð sem lögðust á fullveldisvogaskálina

---

Og neyðin, sjálf neyðin, sem er háraustuðust allra norna og áfjáðust, hún fær engu til leiðar komið við yður. Þér látið útlenda færa yður það allt heim í hlað sem yður vanefnar um, og þar megið þér selja þeim sjálfsdæmi eins og vér gerðum, þegar vér unnum víg eða annað, sem þér nú kallið ódáðaverk, þar megið þér taka við því, er þeir færa yður, hvort það er gott eða illt, nóg eða ónóg , og við slíku verði, er þeir ákveða sjálfir, og er þá vel, ef þeir hæðast eigi um á eftir … (Baldvin Einarsson, Ármann á Alþingi)

---

Menn sjá dæmi til, að sumar þjóðir, sem áttu beztu lög og dugnað og réttvísa stjórnendur, hafa samt dregizt aftur úr og orðið daufar og afskiptalausar af högum sínum, af því aðrir réðu öllu fyrir þær og þær voru sjálfar til einskis kvaddar. (Tómas Sæmundsson, Fölnir) 


mbl.is Samfylkingin enn stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiftursókn til endurreisnar!

skjaldamerki_islands.jpgHvert er vandamál íslenskra heimila? Svarið blasir við: lausnalaus vinstristjórn!

Aðgerðir núverandi ríkistjórnar hugsaðar til hjálpar heimilunum í landinu gera ekkert, tja annað en að auka á óvissu og fæða hik.  Óvissa og hik eru orka sem neikvæðni nærist á. Neikvæðni sem svo keyrir vonleysisspíralinn áfram fullum krafti, niður í djúpar myrkar gjár svartnættis - þar grefur þjóðin sér svo gröf. Gröf sem aðeins verður dýpri ef sömu flokkar halda áfram við stjórnvöldin eftir kosningar.

Störf verða ekki til með sköttum; við skattleggjum okkur ekki út úr þessum vanda frekar en öðrum. Og ekki verða til störf með því að míga utan í ESB.

Við skulum ekki eyða tíma á þessu stigi; á þessum örlagríku tímum, í flóknar sértækar aðgerðir í stíl vinstrimanna; kostnaðarsamar, seinvirkar, líkast til óvirkar. Niðurlægjandi.

Lausn má ekki vera bákn.

Verðtryggingin verður að hverfa, hún er bákn fólksins, þunglyndi þess. Hún er dópið sem slævir alla hlutaðeigandi: fjármagnseigendur, fjárvörsluaðila, stjórnvöld og lántakendur; heila þjóð. Niðurstaðan er að allt kerfið er heldópað, kex ruglað. Fjármagnseigendur og fjárvörsluaðilar þurfa einfaldlega að fara að vinna vinnuna sína og lántakendur þá, eftir atvikum, að sitja á sér – fara sér hægar. Afleiðingin yrði samtaka krafa um virka hagstjórn. Edrú hagstjórn.

Við elskum krónuna. Við elskum hana eins og þjóðfánan okkar og Þingvelli, Gullfoss, Geysi, jöklana, sandana, fjallgirta firði, öræfin, grænar grundir, vötnin, árnar, fljótin og fossana, Mývatn og Eyjafjörð, flóa og djúp, strandirnar, eyjarnar og dalina, Esjuna, sundin og Reykjavík. Ég átta mig á því að ekki eru falin í þessum orðum nein haldbær rök fyrir því að halda í‘ana blessaða, tja önnur en mannleg væntumþykja með vænni slettu af þjóðernisást. En við ættum að fara vel með það sem okkur þykir væntum – ekki satt?

Krónan er okkar gæfa nú um stundir, hvort við viljum svo kasta henni síðar eða ekki (um svipað leiti og við fáum inni í Evrópusamveldinu), þá er þessi umræða nú óþörf; hún er seinni tíma mál. Þessi umræða er hluti af pestinni sem okkur hrjáir; andskotans lauslæti frá heiðarlegri hugsun, daður við atkvæði. Ég held reyndar að jafnvel Samfylkingin sé að átta sig á þessu núna - eftir að hafa talað krónuna markvisst niður mánuðum saman. Rökhugsun er ekki endilega þeirra tebolli.

Annað þessu tengt; það að tilkynna nú að við ætlum að sækja um aðild að Evrópusambandinu hefur ekkert með traust til íslensku þjóðarinnar að gera. Hefur ekkert með samstarf við alþjóðastofnanir að gera. Þeir sem halda því fram, sem eru helvíti margir við síðustu talningu, eru einfaldlega að fara með fleipur; staðlausa stafi! Nánast má kalla þetta fólk lygamerði, en í besta falli forfallna pöpulista. Nálægt því að vera síðasta sort.

Krónan hefur í sjálfu sér á engum tíma verið vandamálið, þeir sem halda því fram eru þeir sömu og ég vanda ekki kveðjurnar hér að ofan; vandamálið er fyrst og fremst verðtryggingin og það tvöfalda eða öllu heldur þrefalda kerfi sem hún gat af sér. Eiturlyfjaneysla hefur aldrei gert neinum gott og þá síst til langframa. Dópið drepur; drap hugsanlega krónuna okkur, það á eftir að koma í ljós.

Það verður að skera niður í ríkisútgjöldum. Flokkurinn minn gerði þau regin mistök á farsælum stjórnartíma sínum s.l. tæp 20 ár að gleyma því fyrir hvað hann stendur, hann reikaði af leið og tók að endingu krappa beygju; þandi ríkið út. Sveiattan! Geir H. Haarde hafðu litlar þakkir fyrir, já og þú líka Davíð Oddsson. Þið voruð leiðtogarnir sem ég treysti á, sem stór hluti þjóðarinnar treysti á. Þið áttuð að gera betur.

Góðærið fór illa með flokkinn minn, það blasir við. Góðærið fór illa með margt fólk, svo illa að heil þjóð þarf nú að gjalda fyrir það. Flokkurinn minn er að taka á þessari arfleið  – aðrir flokkar hafa ekki viljað viðurkenna sína svörtu tíð. Þjóðin þarf að fara að taka á sínum málum – það gerir hún best með því að tryggja að Sjálfstæðisflokkurinn, endurreistur, fái afl til þess að takast á við þjóðstjórnina næstu misserin.  Þetta er mikilvægt, gríðarlega mikilvægt, í sjálfu sér er þetta forsenda framtíðar.

En hvað er ég að rausa þetta og raupa? Slíkt gefur víst ekkert af sér, tja nema ef að ræðunni fylgir eitthvað annað og meira.

Hér fylgir allt sem fylgja ber - eitt stykki lausn á vandamálum heimilanna og þar með þjóðarinnar:

  • Þegar hefur verið ráðist í breytingu gjaldþrotalaga og laga um ábyrgðamenn
  • Lækkum launalið ríkisreiknings um 5%
  • Krónan er okkar mynt
  • Afnema gjaldeyrishöft
  • Verðtrygging burt
  • Vextina niður
  • Borgum ekki skuldir óreiðumanna í útlöndum
    • Lækkum höfuðstól skulda heimilanna um 20% - 330 milljarðar (með þaki)
    • Lækkum skuldir lítilla og meðalstóra fyrirtækja um 15% - 250 milljarðar (með þaki)
      • setjið tvo ofantalda liði í samhengi við það fé sem bankarnir  eru að tapa, er ekki verið að tala um 5 – 7 þúsund milljarða í því sambandi. Það kostar því ekki nema um 10% af þessari upphæð til þess að bjarga heimilunum (og fyrirtækjunum) í landinu.
  • Afskrifum skuldi útgerðarinnar og tökum kvótann til baka á fimm árum – 500 milljarðar
  • Þenjum möskvana í veiðheimildum tímabundið
  • Álver í Helguvík
  • Álver á Bakka
  • Þetta þýðir að hrinda þarf í framkvæmd virkjunar áformum sunnan- og norðanlands
  • Setjum 750 milljónir í ferðamannageirann,  þar af 500 mkr í niðurgreiðslur flugs (pakkaferða) og 250Mkr í markaðsaðgerðir  (í krónu á móti krónu fyrirkomulagi)
  • Setjum Færeyinginn í gang – þetta er áætlum sem felst í því að nota lánið frá frænd- og örþjóðinni Færeyjum í uppbyggingu atvinnulífsins, við tökum þeirra aura og setjum annað eins á móti; samtals 12Mkr. Til að setja þetta í samhengi er við hæfi að bera þetta saman við þær upphæðir sem hafa nýlega farið í gerð nauðsynlegra vegaganga, nú eða þá í tónlistarhúsið „góða“:
    • Fjármögnum þriðjustoðina – áætlun SI um uppbyggingu hugb.geirans -2,5 milljarðar
    • Setjum á fót raunverulega nýsköpunarsjóð þ.e. fyrir sprotafyrirtæki  - 3,5 milljarðar
    • Setjum á fót örlánasjóð fyrir smáfyrirtæki  - 2,5 milljarðar
    • Ýttum undir heilsuiðnað á Vallarheiði - 250 mkr
    • Ýttum undir uppsetningu gagnavera á Vallarheiði -250 mkr
    • hér eru enn 3 milljarða til ráðstöfunnar – hugmyndir eru vel þegnar.

Ofantaldar aðgerðir, að virkjunar og álversframkvæmdum frátöldum, munu skapa um 10 þúsund framtíðarstörf (afleidd störf ekki meðtalin) og það á næstu 12 til 18 mánuðum. Störf í tengslum við virkjanir og álver á byggingartíma skipta síðan þúsundum. Afleidd störf munu skipta þúsundum. Störfin verða til á öllum sviðum atvinnulífsins. Atvinuleysisgatinu verður lokað á íslenkum hraða - met hraða.

Snilldin, ef hún skyldi hafa farið framhjá einhverjum, er auðvita að þetta kostar ekki krónu - já allur pakkinn mun ekki kosta skattgreiðendur eina einustu krónu! Þvert á móti mun þetta breikka tekjustofn ríkisins stórkostlega og skila sér í stórauknum tekjum, svo ekki sé talað um minni útgjöld (vegna t.d. minni atvinnuleysisbóta, minni kostnaði vegna sértækra ótækra aðgerða). Við blasir að jafnvægi verður í vöruskiptajöfnuði þrátt fyrir miklar fjárfestingar í stóriðju.

Aðgerðirnar mun vissulega kosta áræðni; djörfung og dug. Svikamyllubústjórarnir þurfa að taka slaginn, en það áttu þeir hvort sem alltaf að gera. Að þeim verður sótt, þung, hart – af offorsi.  Lánadrottnar munu leita fulltingis alþjóðasamfélagsins, miklum þrýstingi verður beitt. En af þessu þarf ekki að hafa nokkrar áhyggjur, þetta mun fjara út, hratt, miklu hraðar en flesta grunar.

Hugsum endurreisnina sem skammtímaverkefni; leiftursókn. Þegar við höfum náð að hreinsa kerfið út, mokað flórinn, klárað að skafa drulluna úr kerfinu, flett ofan af svikunum. Þá hefjum við uppbyggingu, þá hlúum við að grunngerðinni og innviðunum; þar kemur sjálf stjórnarskráin við sögu. Þá verður nýja Ísland til. Þá er áríðandi að við gefum við okkur tíma, förum varlega í sakirnar; vöndum okkur.

Þangað til, áfram veginn … göngum hratt og hreint til verks!

PS. villur í þessari grein, ólíklegar sem þær nú eru, eru á ábyrgð Davíðs Oddssonar.


mbl.is Húsfyllir á fundi Samfylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrugl til þrautavara...

Kefli fyrir munJa hérna hér, menn gefast ekki upp á því að tyggja þessa tuggu...

„Hann sagði að færa mætti rök fyrir því að það hefði verið hægt að forðast bankahrunið ef Ísland hefði verið aðili að Myntbandalagi Evrópu. Hann sagði jafnframt að slík aðild hefði eytt lausfjárvandræðum bankanna því seðlabanki Evrópu hefði verið lánveitandi til þrautavara.”

Auðvita má færa rök fyrir hinu og þessu, en ekki hvað! En að halda því fram að ECB sé lánveitandi til þrautavara er einfaldlega rangt. Því stendur tæplega steinn yfir steini í málflutningi vinar okkar Pedrós, tja í það minnsta hvað þetta snertir.

Ég hef áður reynt að leiðrétta þennan "misskilning" t.d. hér Þrautavaragaurinn...

Áfram veginn... án þrugls, án þrauta!


mbl.is Evra eða lokaður markaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrautavaragaurinn...

bank_of_ireland_-_way_out.jpgEndalaust bull er þetta! Hvernig stendur á því að sumt fólk kemst upp með það mánuðum saman að halda fram (eða ýja að) tómri þvælu. Maður veltir því fyrir sér hvort að um meðvitaðar lygar sé að ræða?

Í ljósi þess að ECB (European Central Bank = Seðlabanki Evrópu) er ekki, bara alls ekki, lánveitandi til þrautavara, þá finnst mér merkilegt að í þessari grein sem Grétar Júníus Guðmundsson skrifar í Morgunblaðið hann skuli geta dregið þær ályktanir sem hann gerir.

Fyrst þetta: "Ætla má að sú staðreynd að Írar höfðu seðlabanka Evrópu sem bakhjarl hafi breytt miklu fyrir þá."

Og síðar þetta "Þá skiptir einnig máli að Írar eru í Evrópusambandinu og í evrópska myntsamstarfinu. Þeir höfðu því aðgang að evrópska seðlabankanum sem svonefndum lánveitanda til þrautavara í sinni heimamynt, evrunni.".

Hvernig stendur á því að blaðamenn komist upp með að þvæla svona?

Þeir, Írar, höfðu engan aðgang að langtíma lánum frá evrópska seðlabankanum. Staðreyndin er sú að Írar eru í svipaðri stöðu og við Íslendingar; þeirra eigin seðlabanki getur (gat) ekki staðið við hlutverk sitt sem lánveitandi til þrautavara. Þeir þurfa að grípa til sambærilegar ráðstafana og við Íslendingar; allsherjar aðhald, skera niður í ríkisútgjöldum og lækka laun á vinnumarkaði. Annað hvort gera þeir þetta sjálfir á sínum forsendum eða gera það í gegnum IMF eins og við erum að gera. Enda hafa Írar ekki í önnur hús að venda en IMF þannig að þeirra þrautaþrautavaragaur er sá sami og okkar.

Að vísu mætti hugsa sér að Írar gætu leitað til EMU og reynt að fá þjóðir myndbandalagsins til þess að slá saman í lán handa sér, ekki er þó víst að þær þjóðir séu í stak búnar til slíks. Þar að auki er ekki til neitt formlegt ferli fyrir slík og því væntanlega mun einfaldara að leita til IMF.

Nú er gott að hafa krónu sem með falli sínu styður við útflutningsgreinar þjóðarinnar og hamlar "óþarfa" neyslu.

Áfram veginn... krónu fyrir krónu fyrir evru!


mbl.is Svipaður aðdragandi en ólíkt framhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband