Leita í fréttum mbl.is

Ekki vildi ég þessa Lilju kveðið hafa

Censorship 2 blindSteingrímur Joð fór hreinlega hamförum í Silfrinu í gær - hann kom með kjálkafalls yfirlýsingu af dýpstu gerð. Það var hins vegar óheppilegt að þáttastjórnandinn virtist hafa misst af þessu. Ótrúlegt sem það er.

 

SJS metur það greinilega svo að stórkostlegur sigur hjarðarinnar  yfir blessuðu "klámfólkinu" hafi skapað aðstæður, kjörlendi, til þess að sá heilum helvítis helling af forræðishyggjufræjum í gróðurlausa slóð hjarðarinnar. Hann er svo viss um að mat hans á aðstæðum sé svo afdráttarlaust rétt, að hann fór á harða "hlaupum út í búð" á eftir fræjum. Vissan og kappið var svo mikið að hann taldi sig geta sagt hlutina eins og hann hugsaði þá, umbúðarlaust, skýrt og klárt - NETLÖGGA er málið.

 

Með þessu afhjúpar hann ótrúlega forneskjulega hugsun sína sem sýnir að hann er svo djúpt sokkinn í forræðisforað að ekki verður séð að manninum sé við bjargandi.

 

Eftirfarandi er endurritun úr viðtali Egils við SJS. Úr umræðu um femínisma þar sem Steing. Joð á greinilega erfitt uppdráttar, dettur umræðan inn í þetta:

 

Egill spyr "Finnst þér koma til greina eftir þessa klámumræðu að fara lengra með það að stöðva klám?" SJS svarar "Jú, ég vil gera það. Hef alla tíð verið á móti því að þetta væri leyft hér í landinu og hver var nú framsýnastur allra þegar þetta var að hefja hérna göngu sína, það var Hjörleifur Guttormsson sem einn stóð upp á Alþingi og sagði: "ætla menn að leyfa þetta" og það var hlegið af honum! En svona hefur nú tíðarandinn breystst,  að nú vildu margir Lilju kveðið hafa."

Egill spyr þá "Mundir þú vilja t.d. að það væri gripið til ráðstafanna til að takmarka klám á Netinu?" og SJS svarar "Já alveg absalút, ég vil stofna Netlögreglu sem m.a. hefur það hlutverk og ekki síst að reyna að koma í veg fyrir klámdreifingu ....

 

SJS er reyndar að vísa þarna til atvika sem menn auðvitað muna ekkert eftir og lýsa einhverjum tíðaranda sem áhorfendur kannast ekki við og vekur upp spurningar; Að hvað væri leyft? Í hverju fólst framsýni HG? Hverjir fóru að hlægja - allir? Hvað segirðu hvernig hefur tíðarandinn breyst? Er einhver einhverju nær?

 

Nei, Steingervingur Joð þessa Lilju mátt þú eiga alveg einn og sjálfur. 

 

Ég ítreka að mér fannst það ótrúlegt að sjá Egill láta þennan bolta rúlla hjá sér og það í slómó. Egill, menn láta ekki svona tækifæri renna sér úr greipum.

 

Ég fullyrði að SJS á eftir að eyða umtalsverðum tíma og verulegri orku í að verja þessi ummæli sín í komandi kosningabaráttu. 


Heilt yfir sýnist mér að um landsfund VG megi segja að þar hafi fólk tapað sér í frumskógi eigin hugmynda. Heyrði ég einhvern segja eitthvað um korter í kosningar?

 

ES. Hérna er myndband frá því 1993 (frá Canada) - þið vitið árið sem kjúklinga- og svínakjöt var 40 - 50% dýrar en það er nú, á raunvirði sko. Mér sýnist við fyrstu skoðun að SJS sé á svipuðu stigi og fólk var vestan polls á þessum árum. Þannig að kannski er von.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ég er enn stíf af skelfingu eftir að heyra þessi viðhorf VG.  Kínverjar get ábyggilega deild reynslu sinni í að lifa í þjóðfélagi þar sem "stóri bróðir" les allt yfir öxlina á þér.  Hvernig á svo að framfylgja þessu?  Frá hvaða málefnaflokki á að taka fé til að kosta eftirlitið?  Sammála um að hér er forræðishyggjan í algleymingi.

Ester Sveinbjarnardóttir, 26.2.2007 kl. 23:36

2 identicon

Þú veldur mér ekki vonbrigðum Viggó. Egill var óvenjuslappur að henda þetta með netlögguna ekki á lofti og eins að fylgja því ekki eftir hvers vegna hann hefði ekki lesið Stelpuna frá Stokkseyri, sem er þó ábyggilega að segja alveg satt. Hann varð ögn vandræðalegur fyrir vikið. En það besta við uppsveifluna hjá honum var það, að hann er greinilega í huga sínum kominn með annan fótinn í ríkisstjórn - en með hverjum?

Gústaf Níelsson (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband