Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Billý Gé afhverju í ands... ætti ég að kaupa þetta?

Microsoft mun í næstu viku hefja sölu til einstaklinga á Windows Vista, sem er hið besta mál. Þar á bæ ætla menn að vanda sig gríðarlega við markaðssetninguna á þessari vöru sem svo lengi hefur verið beðið eftir. Í þeim takti hefur frumsýningar partýið, sem verður í New York, verið "hannað" - þetta á að vera veisla sem munað verður eftir.

Markaðsfólk Microsoft er svo sannarlega á fullu - ekki bara þar heldur út um allar trissur. Sumt sem þau eru að gera er verulega smart. Einna flottasta giggið hjá þeim finnst mér smitmarkaðsleikur (dæmi um slíkan leik á Netinu hér heima er Heinekenleikurinn) sem þau eru búin að keyra frá því í desember fyrir lokaðan hóp en okkur öll hin frá því 8. janúar. Þessi leikur mun ná hámarki í næstu viku og ætla ég að segja ykkur frá "Hverfipunktsleiknum" á næstu dögum - þetta er alvöru dæmi.

Það er sumsé búið að vera gríðarlegt álag á markaðsfólki Microsoft undanfarinn misseri. Eftirvænting og spenna er í hæstu hæðum - taugar þandar til hins ítrasta, ekkert má útaf bregða.

Adrenalínið flæðir og fólk er á háu nótunum. Visa ultimate-limited-edition

Það er við slíkar aðstæður sem fólk fær svona hugmyndir; "... búum til afbrigði af vörunni með undirskrift frá Bill Gates, við köllum svo vöruna, náttúrulega: Microsoft Windows Vista Ultimate Limited Numbered Signature Edition" - VÁ og úbbs, eða eiginlega bara æi!

Pakkan er hægt að panta á Amazon á USD259.

Hver sá sem er svag fyrir þessari hugmynd hlýtur að vera algjörlega að missa sig í Microsoft Vista áhuga. Ef þú lesandi góður finnur hjá þér löngun í að kaupa þessa vöru, hvers nafn er ekki hægt að nefna, vil ég gefa þér góð ráð - leitaðu aðstoðar

Í dag, helst. 

ES. Þetta er ekki einu sinni "alvöru" undirskrift heldur bara prentuð eftirmynd - c'mon.


mbl.is 22% Windows stýrikerfa illa fengin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Apple á Íslandi til varnar

Þegar ég las þessa sömu frétt á útlendum vef snemma í morgun datt mér strax í hug að nú fengu þeir hjá Apple IMC að kenna á því - að dómur götunar, með dyggri hjálp Mbl., yrði sá að Apple búðin væri argasta okurbúlla. Í gær gagnrýndi ég frétt í Fréttablaðinu sem fjallaði um vöruverð og finnst eðlilegt að fylgja því eftir hér.

Mbl. fer, eðlilega, strax í það að setja Ísland inn á listann. Niðurstaðan er að iPod er næst dýrastur í heiminum hér á landi. Þetta er allt satt og rétt en mér finnst að Mbl. hefði átt að halda því til haga að ekki er við Apple IMC að sakast heldur fyrst og fremst íslensk stjórnvöld.

iPod ber 7,5% toll og 45% vörugjald, mér er til efs að jafn há gjöld séu lögð á þessi tæki í öðrum löndum - í það minnsta í engum löndum sem við berum lífsgæði okkur saman við.Reyndar er mér ekki kunnugt um nokkurt land (nema hugsanlega í Noregi) sem leggur eitthvað á svona vörur. Eins er vaskurinn á Íslandi hærri en víðast hvar og talandi um VSK þá er líklegt að verð í mörgum löndum (t.d. Kanada og Bandaríkjunum) sé án söluskatts.

Dæmi um útreikning á verði:
(Innkaupsverð + flutningsgöld) * tollur * vorugjöld * álagning * VSK.  Ef þessi iPod kostar $115 frá Apple Inc, til Apple IMC þá leggst dæmið út svona: (115USD * 70 + 750) * 1,075 * 1,45 * 1,23 * 1,245. Niðurstaðan er að 115USD enda í circa 21.000 krónum.
(Ath. Ég er að gefa mér innkaupsverðið, flutningsgjöld og álagningu)

Ef tolli og vörugjaldi væri sleppt í samanburðinum þá stæði verðið í USD193 og ef við tökum vaskinn út úr jöfnunni þá væri verðið í USD155 sem setti Ísland í 4. til 5. sæti listans - réttu megin frá í stað þess að vera nr. 2 hinum megin frá!

Það er svo rétt að ekkert af þessu breytir því að iPod er dýrastur í heimi á Íslandi (eða næstum því) það er bara ekki við Apple né Apple IMC (Öflun) að sakast, heldur gjörsamlega úreltu tollakerfi þar sem neyslustýring er grunnhugtak. Árið er 2007 eftir Krist.

Hérna er listinn í heild sinni ásamt umfjöllun (ath. þeim hjá CommSec yfirsést að fjalla um tolla, minnsta aðeins á flutningskostnað - þeim skortir greinilega hugmyndaflug til þess, eðlilega):

Overall analysis


CommSec iPod nano index

2 gigabytes, US dollars

            January 2007


Brazil                $327.71

India                 $222.27

Sweden            $213.03

Denmark           $208.25

Belgium            $205.81

France              $205.80

Finland              $205.80

Ireland               $205.79

UK                    $195.04

Austria              $192.86

Netherlands       $192.86

Spain                $192.86

Italy                  $192.86

Germany           $192.46

China                $179.84

Korea                $176.17

Switzerland       $175.59

NZ                    $172.53

Australia           $172.36

Taiwan              $164.88

Singapore          $161.25

Mexico              $154.46

US                    $149.00

Japan                $147.63

Hong Kong        $147.63

Canada             $144.20

Source: CommSec, Apple

 

 


mbl.is iPod-vísitala í stað Big Mac
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næstum 100% rugl frétt í Fréttablaðinu

Flesta daga rekst ég á lélegar fréttir, þær er að finna reglulega á öllum miðlum. Stundum er þetta mat manns á fréttunum byggt á huglægum þáttum eins og að viðfangsefnið sé "ekki frétt" eða að frétt sé einfaldlega illa skrifuð, ill skiljanleg. Svo eru það þessar vondu frétt þegar fréttamaður er að fjalla um eitthvað sem hann hefur ekkert skynbragð á og ruglar hugtökum út í eitt. Þetta sést oft þegar verið er að þýða greinar úr öðrum tungumálum.  Svo er það hrikalega pínlegt þegar fjölmiðlar birta fréttatilkynningar hverskonar sem fréttir - umhugsunar- og gagnrýnilaust! 

 

Dæmi um afskaplega óvönduð vinnubrögð er að finna í Fréttablaðinu í dag á bls.  4 undir eftirfarandi fyrirsögn:

 

40Prosent

Það fyrsta sem ég skynjaði var að rannsóknarblaðamaðurinn ætlaði sér að að gera mikið úr málinu Fyrirsögnin átti að vera sláandi. Hið ósagða átti að vera öskrandi OKUR. VerdBuxur Í mín huga er 40% álagning reyndar sláandi.

 

Lítil þá. 

 

Tilfinningaleysi fyrir viðfangsefninu blasir sumsé við strax í fyrirsögninni, en ruglið heldur áfram, síðar segir í fréttinni:  "Samkvæmt upplýsingum frá Levi‘s búðinni er innkaupsverð á gallabuxunum um fjörutíu prósent af útsöluverði verslunarinnar, sem er 9.990 krónur. Innkaupsverðið, sem innifelur flutningskostnað, er því rétt tæpar 4.000 krónur á hverjar buxur.

Á innkaupsverðið leggst síðan 15 prósenta tollur, og 24,5 prósenta virðisaukaskattur ofan á það. Þá er innkaupsverð, eftir toll og skatt, orðið 5.727 krónur. Þær 4.263 krónur sem eftir standa eru álagning verslunarinnar"

 

Dæmalaust rugl.

 

Ef upplýst er að innkaupsverð sé 40% af útsöluverði þá þýðir það ekki að álagning sé 40%. Ætli það láti ekki nærri að álagning sé um 75%. Framlegðarstig er hins vegar nærri 40%. Þetta rugl setur mig svo í þá stellingu að ég efast um að eitthvað sé að marka þessa frétt.

 

Blaðamaður sem er að skrifa um verðlag og verðlagningu, en ber lítið skynbragð á helstu hugtök, þarf ekki að vera skrifa flókna grein til þess að klúðra málinu. Þessi blaðamaður ruglar saman álagningu og framlegðarstigi, skilur ekki virðisaukaskatt, hefur að því er virðist ekkert skynbragð á það hvað sé mikið eða lítið í þessu sambandi.  Síðan er það pirrandi að blaðamaður skuli ekki (ekki sjáanlega) gera tilraun til þess að afla sér upplýsinga um hvort að það sé rétt og/eða eðlilegt að að innkaupsverð (CIF) á brókunum sé um 4.000 krónur.  Kannski er það mikið lægra!

 

Ég tek það fram að ég hef enga hugmynd um hvert það er, en mig grunar að álagning á fatnaði í íslenskum verslunum sé að jafnaði nærri 200% en 40%. Eins grunar mig að erfitt sé að fá "merkja" gallabuxur undir 10þúsund krónum. Þar sem ég er ekki fréttamaður leyfist mér að birta hér grun minn án þess að færa fyrir því nokkur rök.

 

Dæmið hefði átt að líta út eitthvað á þessa vegu: (Innkaupsverð + flutningur) * tollur% * álagninga% * vsk%  eða  3987 * 1,15 * 1,75 * 1,245 = 9.990

 

Rétt er að skilgreina innkaupsverð sem það verð sem varan er keypt á.

Kostnaðarverð (flutningur, tollar, önnur opinbergjöld) er síðan það verð sem varan stendur á hjá söluaðila (á hverju stigi, virðiskeðjunnar). Þetta þýðir að kostnaðarverð getur verið það sama og innkaupsverð.

Álagning er síðan sú upphæð sem er lögð ofan á kostnaðarverið svo úr verður söluverð án VSK. Rétt er það að álagningin er hér sama og framlegð, eða sú upphæð sem verður eftir hjá söluaðila. En framlegðarstig er síðan hversu stór hluti þessi tala er sem hlutfall af söluverðinu.

Ofan á þetta kemur síðan 24,5% virðisaukaskattur (þeim VSK sem greiddur er við innflutning á ekkert að flækja inn í þetta dæmi). Rétt er í svona saman burði að hafa í huga að VSK getur verið mismunandi á milli landa.


1000 herramenn og milljónir á milljónir ofan í kassann

Herrakvöld Fylkis, sem var haldið í gær í íþróttahúsi okkar Fylkismanna tókst að venju vel, reyndar fannst mér það takast betur núna en oftast. Þetta er ein helsta fjáröflun knattspyrnudeildarinnar og grunar mig að metin hafi fallið á öllum sviðum í ár. Það vorum nærri því þúsund herramenn sem mættu í gær og þeir hafa aldrei verslað meira (veitingar, happdrætti, málverk). 

Fallegur veislustjóri og smá klúbbur í norðri

Gísli "út og suður" Einarson er jafn skemmtilegur og hann er falllegur (hér styðst ég við hans eiginn fegurðarmat). Fáir hafa stjórnað þessari veislu betur en hann, þrátt fyrir að hann hefði brugðið sér frá um stund. Hann fór "út og norður", skrapp í Grafarvoginn þar sem Fjölnismenn höfðu náð að smala saman sæmilegum hópi karla, nokkrum tugum víst. Flott hjá Guðlaugi og félögum, þetta er víst ört vaxandi klúbbur þarna hjá þeim. 

 
Allt er fertugum fært

Vilbjörn (Villi borgó og Bjössi bloggó) mætti og flutti stutta (mínútu á mann, yeah right) en góða ræðu, bæði var hún skemmtileg og eins voru í henni góð tíðindi - í tvennum skilningi. Fyrst er það útfylltur tékki upp á 1,5Mkr sem á að hjálpa klúbbnum við að halda upp á 40 ára afmælið sitt á árinu. Og svo var það óútfylltur tékki. Vilbjörn sagði að Fylkir væri vel rekið félag og sannarlega  fyrirmynd annar og að borgin ætlaði sér að koma rausnarlega að byggingu stúku við völinn okkar - viðræður þar að lútandi væru í farvatninu.


Gagnvirkur prestur er góður prestur

Séra Hjálmar Jónsson var ræðumaður kvöldsins, frábært mál hjá honum. Það vakti athygli mína hversu vel honum tókst að tala við salinn og flétta ræðu sína eða öllu heldur mál sitt við það sem fram hafði farið um kvöldið og um leið og hann talaði. 


Eftirherma og verðandi fjöldamorðingi

Jóhannes eftirherma Kristjánsson, sem hefur verið með okkur Fylkismönnum (með hléum þó) svo lengi sem menn muna var þræl flottur. Hann var reyndar líka að kitla strákana í Grafarvoginum. Ég veit eiginlega ekki hvert horfir með hann Jóhannes, kallinn verður bara betri og betri með hverju árinu sem líður og þar sem hann er ekki nema fimmtugur þá getur þetta ekki endað vel. Ef heldur sem horfir þá kæmi það mér ekki á óvart að menn fari að hrökkva upp af á herrakvöldinu - drepist hreinlega úr hlátri.


Ofurverðbólga

Jón Magnússon stjórnaði málverkauppboðinu - það er líka fastur liður, hann gerði það vel - fastur liður einnig. Ekki er nokkur vafi á því að Jón á nokkurn þátt í því að hífa upp tilboðin ná þeim upp í "næs ránd nömber". Tólf myndir (og tvær treyjur) voru boðnar upp og fengust fyrir þær dálagleg summa - þetta var met ár. Ekki orð um það meir.

 
Fumlaus fagmennska

Kvöldið er í föstum skorðum. Hjá flestum byrjar kvöldið svona upp úr hálf sex, þá fara menn að hópa sig saman í upphitunarboðum þar sem menn skvetta svolítið á sig. Slík boð eru um allt hverfið og er sum ansi fjölmenn svo að ferja þarf mannskapinn með rútu upp í höll, en þangað taka hóparnir að streyma upp úr hálf átta. Dagskráinn hefst kl. 19:15 eða þannig og prógrammið er keyrt í gegn af stakri fagmennsku - ekkert fum og fát. 

Eldhús sælkerans hefur séð um að fylla á trogin í mörg ár og er mér til efs um að nokkur kunni betur á þetta en Jón Þór og hans lið. Einar Ágústsson hirðljósmyndari klúbbsins sér um borðaskipulagið og raðar hópunum niður eftir kúnstarinnar reglum. Hann sér líka um að festa kvöldið í bita og bæti. Stelpurnar í hverfinu sjá svo um að selja okkur fljótandi veitingar og happadrættismiða.    

Kvöldið er í föstum og taustum skorðum - svona rétt eins og það á að vera.

Dansandi karlar - Áttahundruð stykki eða svo!

Þá er komið að því, bóndadagurinn er í dag sem þýðir að ég er að fara á Herrakvöldið (með stóru hái). Þetta eina og sanna, það lang fjölmennasta.

 

Ég er að tala um Herrakvöld Fylkis, en það sækja um 800 plús karla af öllum stærðum og gerðum, sem dengja í sig öli og brennivíni á meðan þeir slafra í sig eitthvað af ógeðslegu súrmeti og kæstum viðbjóði.

 

Æðislegt, ekki satt?

 

Undanfarin 15 ár eða svo hef ég tekið slaginn, keypt ógrynni af happdrættismiðum og slatta af  málverkum hef ég keypt á illræmdu uppboði kvöldsins.

 

Þrátt fyrir að ballið sé búið snemma eða svona uppúr miðnætti þá er ég oftar en ekki  í ekkert of góðu standi þegar ég kem heim, hum, í einhver skipti hef ég nánast oltið yfir þröskuldinn.

 

Í etti skiptið þegar ég var búinn að hlamma mér í sófann heima þá fór Helga að spyrja mig hvað við gerðum nú á þessum herrakvöldum, ég reyndi eftir bestu getu að skýra frá því en tókst eitthvað illa upp. Í þynkunni daginn eftir þá spurði ég hana hvað hún vildi eiginlega vita, þá spurði hún mig "ég meina, dansið þið til dæmis?" ...

 

Ég veit ekki hvert ég ætlaði, í hugskoti mínu sá ég mynd sem var hreinlega drep fyndin. Sjáið þið fyrir ykkur 800 hundruð gæja nett sveitta í bömpi eða lambaða?

 

Ekki ég.

 

dancing-men


Microsoft og blendingar eru málið - en ekki klámið!

Það er rétt að klámið hafði eitthvað að gera með að VHS'ið vann Betuna, málið er að Sony bannaði að klámi væri dreift á Betu á meðan nóg var til að klámi á VHS spólum. En það á ekki gera of mikið úr þætti klámsins, aðrir þættir höfðu þar mikið meira að segja (lengri upptökutími og minni framleiðslukostnaður). Sama á við í dag, klámiðnaðurinn fer einfaldlega þangað sem hann kemst, eltir aurinn - fyllir allar holur ef svo má að orði komast.

Ég var standur á CES fyrir 2 árum þegar Blu-Ray og HD DVD stríð hófst fyrir alvöru. Þetta var og er svona „minn er mikið stærri en þinn” slagur. Það fyndna og góða við þetta er að það skiptir okkur (neytendur) ekki nokkru máli hver vinnur. Það er algjör óþarfi að taka stöðu með eða á móti.

Eftir að hafa aðeins kynnt mér mál þarna á CES, sannfærði ég sjálfan mig um að mér væri flatt sama hvort formatið hefði betur. Þóttist ver nokkuð viss um að það yrði Microsoft sem tæki af okkur ómakið. Hvað sem Gates og félagar ákveddu að styðja „native” í Windows XP og síðar Longhorn (nú Windows Vista) myndi vinna. Fannst samt að Blu-Rey hefði vinninginn svona tæknilega, en HD DVD virtist ætla að verða talsvert ódýrari.

Á CNET er að finna góða grein um HD-DVD vs. Blu-ray og eins má fylgjast með hver er að pissa lengra í fínni grein á wiki.

Nokkrum mánuðum síðar var ég á CeBIT, slagurinn var enn í fullum gangi og maður var hálf-ruglaður á stöðunni, rétt eins og þegar DVD plús-r og mínus-r slagurinn stóð sem hæðst. Ég spurði menn bæði hjá Samsung og Hitachi (sem bæði tilheyra blágeisla kampinum) hvort að ekki yrði einfaldlega til blendingstæki (hybrid), tæki sem læsi bæði formin - menn töldu að svo yrði ekki. Báru fyrir sig tæknilegum, kostnaðarlegum og markaðslegum ástæðum - fullt hús, sum sé.

Eftir CeBIT var ég enn sannfærður um að Microsoft hefði völina.

Það var svo þremur mánuðum síðar að Microsoft valdi HD DVD í samstarfi með Toshiba og Intel - þetta var sum sé ákveðið! Engin spurning þetta var dauðadómur yfir blágeisla. Hann var svo gott sem dauður, blessaður!

Það var svo á CES núna í ár sem LG kynnti einmitt slíkan blendingsspilara sem byggður er skv. Total HD eða THD staðli Warner Bros (WB eru með sæmilegan Hi-Def kynningar vef). Þessi spilari fékk „Best in Show” viðurkenningu þeirra hjá CNET. Hann kostar ekki nema litla 1.200 USD - outch.

three-disc-hybrid

Á síðasta ári fór ég að efast, kannski væri þetta ekki svona einfalt eftir allt. Er hugsanlegt að Betamax á móti VHS á móti Video 2000 sagan endurtaki sig ekki? Að bæði þessi form muni einfaldlega lifa þokkalegu lífi. Útilokað?

Ég held ekki.

Tölvuleikjamarkaðurinn er skiptur í mörg formöt: PC, PS2, PS3, Xbox, Xbox360, PSP, Nitendo og Wii.

Sama gildir um kvikmyndamarkaðinn (leigu/sölu): VHV, DVD og PSP.

DVD brennara slagurinn stendur enn, pústrar og kýlingar sem enginn tekur eftir lengur. Þar tókust á DVD+R og DVD-R. Reyndar er líka til DVD-RAM sem sennilega var „áreiðanlegasta” tæknin, en en mun ekki fljúga. Hvort formið menn velja sér skiptir ekki lengur máli, flestir DVD skrifarar eru í dag s.k. DVD±R.

ES. Ég ætla mér ekki að kaupa Hi-def spilara fyrr en verðið á þeim hefur fallið um circa 2/3, Sem hentar væntanlega prýðilega þar sem það verður líklega á svipuðum tíma og raunverulegt Hi-def efni verður fáanlegt í miklu mæli. 


mbl.is Mun klámið ráða úrslitum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldi, tölvuleikir og Netið - þrjú

3. kapítuli. 

Ég skrifaði áður að umræðan um tengsl á milli ofbeldis í tölvuleikjum og raunverulegs ofbeldis hafi fylgt okkur í tvo áratugi, það á við um umræðuna hérna heima, en í BNA má rekja þessa umræðu aftur um þrjátíu ár.

Fyrsti tölvuleikurinn sem olli umtalsverðum skjálfta í henni Ameríku var Death Race, sem kom út árið 1976. Þetta var svona spilakassaleikur með kubbagrafík og í svart hvítu. Leikurinn gekk út á að reyna að Death Race leikurinnkeyra niður fólki eða öllu heldur hvíta kubba og strik sem trítluðu yfir skjáinn og með verulega góðum vilja var hægt að ímynda sér að væri "fólk". Ég efast um að stífustu siðapostular dagsins í dag myndu svo mikið sem lyfta brún yfir Death Race í dag. Líklegra er að fólk einfaldlega færi að skellihlæja - „úbbs var það þetta sem við vorum að atast yfir þá, æi.”

 

 

Nýr tími, nýtt rúm.

 

Nýir tímar breyta svo ekki því að leikurinn var byggður á bíómyndinni Death Race 2000 sem hafði komið út ári áður og er ein af mínum uppáhalds B ræmum. Í myndinni á sér stað algerlega glórulaust ofbeldi, saga hennar er dæmalaust rugl, enda átti hún að gerast hvorki meira né minna en 25 ár fram í tímann.  Þetta horfði ég á og hafði gaman af.

 

Og geri enn.

 

 

 

Ég er umvafinn ofbeldi og hrottaskap: fréttir, sjónvarpsþættir, kvikmyndir, skáldsögur, myndasögur og já blessuðu tölvuleikirnir. Það er sama hvert litið er, þar er ofbeldi. Svona nánast.

 

Ofbeldi selur.

 

Fjölskyldur spila gömlu góðu borðspilin þar er megin reglan sú að sá vinnur sem valdið hefur, valdið fær maður með því að vinna stríð, drepa andstæðinginn, sama gildir um ýmsa útileiki barnanna.  Og leiki fullorðinna líka; "laser tag", "paint ball" hafa verið vinsælir hjá fyrirtækjum í mörg ár sem liður í hópefli - þeir ganga út á það að drepa. Því fleiri sem þú drepur því betri ert þú. Slátrum þeim ....

 

Hópefli, var það ekki!

 

Svo er það „góði” félaginn í bíómyndinni - þetta er okkar maður, hann drepur að jafnaði fleiri en nokkur annar í sömu mynd. Okkur finnst þetta flott, við gleðjumst yfir sigrum hans. Myndin þarf ekki að vera ógeðsleg, ekki einu sinni ógeðfeld. Þvert á móti.

 

"Shaken, not stirred", rétt sísona.

 

Kill'em all! Rétt sísona.

 

Við erum og höfum verið á kafi í ofbeldi, sér í lagi ofbeldis afþreyingu, áratugum saman. Af hinu (dýra-, heimils-, barna-, félagslegu-, o.s.frv.) viljum við ekkert vita. Reglulega, á hverjum tíma, hefur verið hrópað; hingað og ekki lengra, bönnum þetta og já endilega hitt líka - svona í leiðinni. Setjum lög.

 

Lög og tilskipanir um boð og bönn hafa komið og farið. Eiga eftir að koma.

 

Og fara.

 

Hvernig dettur nokkrum manni í hug, eða það sem er hálfu verra heilu þjóðþingi, eða jafnvel enn verra heilu yfirþjóðleguþjóðþingi, hum..., að hægt sé að stöðva útbreiðslu einhverra ákveðinna leikja eða mynda eða blaða eða leikrita, ljóða, bóka? Það er álíka vitleysisgangur og tilraun til þess að banna mönnum að spila fjárhættuspil á Netinu, eða að drekka áfenga drykki - brennivín....

 

Aha... umræða um boð og bönn endar oft í einhverskonar tómarúmi eða hring. Tjáningarfrelsi og einstaklingsfrelsi stangast á við, að því er virðist, siðferði, siðvernd - almannaheill. Rök hætta að virka.

 

Hringur hefur ekkert upphaf og engan enda.

 

Þeir sem ráða, í því rúmi, á þeim tíma, enda svo með því að beita "af því bara" rökum. "Af því bara að það er bara svoleiðis". "Af því bara að svona hefur þetta alltaf verið", "Af því bara allir segja það...". "Af því bara að öllum finnst það!". "Af því að þetta er ekki gott fyrir hinn eða þennan hópinn".  Af því bara...

 

... það er auðveldara!

 

Auðveldast!

 

.... eða að drekka brennivín, eða reykja hass, sjúga kókaín, sprauta sig með heróíni... hvar stoppum við, hvað má og hvað má ekki - hvar er línan dregin?


Er línan mín

línan þín?

 

Hvað með þau, þá og þær?

 

Sennilega erum við, flest,  sammála því að draga þurfi línur. Þannig er samfélag okkar úr garði gert. Af þvi bara.... En hvernig stendur á því að bandaríkjamenn herða ekki lög um vopnaeign - blasir ekki við að morðum myndi fækka? Ég meina þar í landi. Burt með byssurnar - bönnum þær, allar - alstaðar! Af hverju má reykja gras "and inhale" í Amsterdam? Og éta sveppi líka! Hvernig stendur á því að gleðikonur, þið vitið hórur, eru á hverju horni (á svoleiðis hornum) í Hamborg? Hver leyfir að í Las Vegas spili hundruð þúsunda manna fjárhættuspil á hverju kvöldi? Það er enginn hámarkshraði á hraðbrautum Þýskalands  - hvernig má það vera? Grænlendingar drepa hvítabirni! Í Kópavogi mega stúlkur stripla fyrir stráka en ekki í Árbænum ! Inúítar í Alaska drepa hvali? Jamm og Íslendingar við Ísland! Hver leyfir Írökum að hengja fólk? Þeir hafa alltaf tuggið kókalauf í Andesfjöllum, indíánarnir, af hverju þeir en ekki ég?  ... buena vista!

 

En af hverju má ég ekki kaupa mér parkódín í apótekinu mínu þegar ég þarf þess? "Ég er með hausverk - alveg satt!", ætti að duga, mér og apótekaranum, lögreglunni, löggjafanum, dómaranum og almætinu.

 

Staður og stund.

 

Hvað sáu margir íslendingar myndina "Á valdi tilfinninganna", það tókst að banna hana. Þrátt fyrir að Davíð, já meira að segja Davíð berðist fyrir því að leyfa sýningu hennar. Stendur það bann enn?

 

Vann ekki ekki Davíð, Golíat?

 

Það var ekki ofbeldi. Eins og ég skil það! Ofbeldi þá.

 

Það er engin ástæða til að efast um að með því að setja boð, bönn og höft megi minnka dreifingu "óæskilegs" efnis (mynda, leikja, efna, hugmynda ...) og þar með neyslu þess efnis. En á sama tíma verðum við að átta okkur á því að slíkar aðgerðir munu ekki koma í veg fyrir neyslu þessa forboðna efnis. Aldrei.

 

Á hverjum tíma hafa menn bannað og heft - þekking hefur verið bönnuð. Jörðin er flöt, sólin snýst um jörðu, það er aðeins einn guð. Við, mennirnir, eigum ekkert skylt við apa. Nekt, hommar, kommar, hass, tónlist, gyðingar - allt saman bannað.

 

Það er svo auðvelt.

 

Vá, þetta heitir að missa sig... nú spóla ég til baka, aftur að efninu.

 

Aftur að tölvuleikjunum.

 

Ég er ekki að halda því fram að ljótir tölvuleikir eða bíómyndir, eða djöfulgangur í sjónvarpi geti ekki haft áhrif á unga og ómótaða huga - jafnvel fullorna undir einhverjum kringumstæðum. Það sem ég er að segja er að þetta efni er ekki rót vandans.

 

Víst er að ef maður leitar uppi lærðar rannsóknir á áhrifum ofbeldis í bíómyndum eða tölvuleikum á mannskepnuna verður maður ekki margs vísari. Svo kröftuglega stangast niðurstöður þessara kannana á.

 

Meira um þetta í næsta kapítula. Klukkan tifar...

 

ES. Þeir sem hafa áhuga á því að stofna fan club, "FC Death Race" endilega hafa samband við mig.


Wikiseek opnuð

Wikiseek mun opna á morgun skv. fréttatilkynningu frá searchme, en opnaði raunar um miðjan dag í dag.

Wikiseek er leitarvél sem takmarkar leit sína við Wikipedia frjálsa alfræðiritið og þær síður sem Wikiseek_logovísað er á úr wikipedia (hum AÐEINS). Viðskiptahugmyndin á bak við Wikiseek er í ætt við t.d. módelið hjá Google þ.e. að selja auglýsingar í tengslum við skoðunarefni þess sem er að leita. Nema hvað "stór" hluti af væntum hagnaði Wikiseek mun verða gefinn til Wikipedia Foundation sem sjálfeignarstofnun er rekur Wikipedia.

Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort að Wikiseek muni fljúga. Ég hef notað Wikipedia lengi við öflun hverslags upplýsinga og er í mínum huga ekki nokkur vafi á því að Wiki er sú lind á Netinu sem dugir mér hvað best við slíka iðju. Ég þekki ekki annað tól þarna úti sem hefur aukið afköst mín jafn mikið, já og gleði. 

 

 

En til hvers wikiseek? Wikipedia sjálf er með ágætis leitarvél innbyggða og er ekki nóg af þessum leitarvélum? Getur nokkur gert þetta betur en google?

 

 

Ætli menn hafi einfaldlega ekki séð tækifærið. Það er þarna ég lofa því, tækifærið er best mælt í fjölda þeirra sem sækja í wikipedia. En google er þarna líka og hjá google nýtur wikipedia forgangs sem þýðir að google skilar vísunum í wikipedia framarlega. Þetta er einfalt að sýna með lítilli tilraun.

 

Leitum eftir 10 orðum og sjáum hver niðurstaðan verður:

 

Leitar orð / skilar Wiki nr. X í leitarniðurstöðu google

  1. olive / 1
  2. lunar lander / 6 (nr. endilega skoðið þennan leik sem ég rakst á í 3 sæti APOLLO LUNAR LANDER SIMULATOR)
  3. hekla / 2
  4. brúarfoss / 48
  5. alþingi / 3
  6. football / 6
  7. handball / 21
  8. google / 44 (þau hjá google gæta þess vel að google síður allra þjóða komi fyrstar)
  9. wikipedia / 1 (is.wikipedia.org ef ísl. gúgl, en.wikipedia.org ef enskt gúgl)
  10. brennivín / 1

Þessi tilraun sýnir að google er þegar tjúnað inn á wikipedia og því eðlilegt að spyrja sig hvor að wikiseek geti nokkurn tíman flogið!

Ég sakna þess að sjá ekki vísanir í íslensku wikipedia dúkka meira upp þegar leitað er með íslenskum orðum (ath. á þessu virðist vera munur eftir því hvort að leitað er í gegnum enska gúglið eða það íslenska).

Ég tók wikiseek til kostanna áðan. Fyrir utan nokkra bögga (t.d. ganga ekki séríslenskir stafir í leitarstrengnum), en hafa þarf í huga að wikiseek er en í beta, þá er engin spurning að wikiseek leitin er talsvert betri en leitin í wikipedia sjálfri, bæði eru niðurstöðurnar betri og fást hraðar.

Niðurstöðurnar eru betri vegna þess að það fæst önnur og hentugri fyrsta sýn á viðfangsefnið. Það er líka flott að sjá hvernig wikiseek notar efnisflokka, sem eru ríkur hluti af uppbyggingu alfræðiritsins. Kannski er það svo það allra besta við niðurstöður úr wikiseek að þær eru hreinni en úr öðrum leitarvélum (vegna þess að wikiseek birtir ekki allt og ekkert, heldur takmarkar sig við wikipedia og tengdar síður). Sem þýðir minna rusl.

Það vekur svo upp spurningu um hvort að þessi staðreynd kunni ekki að ógna wikipedia! Mun þetta virka sem hvati á spammara og aðra Netþorpara til að auka bull síður og bull á góðum síðum inn á wikipedia?

Ekki meira um þetta hér, en ég hvet fólk til þess að prófa.

 

Eftir stendur spurningin hvort wikiseek eigi möguleika í google. Fólk er ekkert að flögra á milli leitarvéla og á með undirmeðvitundin dæmir að google sé best þá gúggla menn. Svo einfalt er það, ekki satt? Eða hvað?

Nú er bara að vona að undirmeðvitund mín nái að temja sér að stýra mér á milli gúgglsins og wikísins.

Mitt næsta verk verður að skipta út wikipedia flýtikrækjunni á tækjaborðanum hjá mér og setja wikiseek í staðinn. Framvegis verður wikiseek mín leið inn á wikipedia.

Leitavélar dagsins í dag eru frumstæðar, sett í samhengi við tölvur þá eru þær svona álíka og gataspjaldavélar frá sjöundaáratugnum í samanburði við fartölvur dagsins í dag. Við munum sjá miklar framfarir á allra næstu misserum og er wikiseek dæmi um spor í þá átt.


Joost bráðum í loftið - leiðrétting við frétt á Mbl.

Janus Friis og Niklas Zennström koma báðir að stofnun The Venice Project” og þar með „Joost”.

Niklas réði Janus til sín hjá Tele2, þeir fóru saman í það að setja upp nýjan ISPa í Danmörku. Þeir hættu þar og hófu þróun á KaZaA, sem þeir komu í loftið. Kazaa var umdeilt deiliforrit ("peer-to-peer file sharing") vegna ávirðinga um höfundaréttarbrot (svipuð saga og af Napster) - þeir gerðu sum sé allt brjálað í Hollywood. Næsta verkefni var svo Skype, sem þeir seldu fyrir einu og hálfu ári til eBay fyrir litla 2,6M USD. Í dag eru að jafnaði 8,5 milljónir manna tengdir inn á Skype. Skype gerir símafélög um allan heim brjáluð. Næsta verkefni er sum sé dreifing sjónvarpsefnis, það sem ég skil af hugmynd þeirra er klárt, en enn vantar aðeins uppá að ég skilji gangverkið til fulls. Og það er einmitt þar sem snilli þeirra félaga liggur, að sjá tækifæri sem flestir aðrir gera ekki. Joost á svo eftir að gera allt klikkað, ætli það verði ekki Hollywood sem heyrist mest í aftur.

Rangt er að kalla The Venice Projcet upp á íslensku „Venusarverkefnið“, það væri nærri lagi að tala um „Feneyjaverkefnið”.

Ég er ekki viss um hvað Mbl. er að fara þegar þeir segja að Joost gangi út á að búa til „sýndarsjónvarpskerfi” en hey þetta er þýtt úr danskri frétt.

Allt að einu þá hefði ég gaman að því að komast yfir Joost, ef einhver er þegar „betaþoli” sem er að lesa þetta má hann eða hún endilega tilnefna mig.


mbl.is Stofnendur Skype ýta úr vör ókeypis netsjónvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldi, tölvuleikir og Netið - tvö

2. kapítuli

 

Ég skrifaði í gær að mér finnist spilakassa umræðan í borgarstjórn sem getið er um frétt Mbl. frá 1979 vera fyndin.  Ég stend svo sem við það, fréttin er bráðfyndin, en ég er ekkert viss hvað mér hefði fundist í rauntíma.

 

Allar athafnir okkar mannanna verður að skoða í samhengi tíma og rúms - umhverfið, tíðarandinn skipta öllu máli.

 

Mér finnst t.d. umræðan í dag um spilakassa HÍ eða hugmyndir um lög gegn spilavítum á Netinu ekkert vera fyndin - þetta er alvarlegt mál sem mér finnst að þurfi að ræða. Líf og heilsa fólks er í veði en það er líka frelsi einstaklings og lögaðila til athafna. Ég styð bæði.

 

Þetta er efni í aðra grein. En ég skýt því að hér að ég er þeirrar skoðunar að allar tilraunir til þess að banna kaup eða sölu þjónustu á Netinu - þjónustu sem er vel að merkja lögleg og veitt af löglegum fyrirtækjum - munu renna út í sandinn. Slík tilraun væri tímaskekkja.

 

Og ofbeldi?

 

Eftir áratug eða tvo verður flest ef ekki allt sem skrifað verður um það mál orðið broslegt - „hvað voru menn eiginlega að hugsa, þarna 2007!” Enda komin önnur viðhorf, aðrar ógnir. Eins og þessi: „Þú leggur undir allt sem þú átt og við tvöföldum það þegar þú vinnur. Hjá okkur er vinningshlutfallið 49,5%. Settu kortið í raufina og ýtu á græna takkann. Bling.... Því miður þá ...”.

 

Heppinn!

 

Nýr tími, nýtt rúm.

 

Í den var mikið slegist (í den hjá mér er fyrir tíma „ofbeldis” í tölvuleikjum), ég slóst. Ég „fór í slag”, þá var selgist upp á eitthvað t.d. hilli stelpnanna - málin voru útkljáð. „Eigum við að slást upp á það?” eða sísona „vilt þú koma í slag, gerðu það” - já menn áttu það til að slást bara svona upp á fönnið.

 

Það hefur verið ráðist á mig algerlega af tilefnislausu, af manni sem ég vissi ekkert og veit enn ekkert hver er. Eitthvað rámar mig í það að menn hafi beit vopnum (barefli, hnúajárn) á Hallærisplani á þeim árum sem ég vandi komur mínar þangað, á bilinu '77 til '80. En það var örugglega ekki algengt.

 

Í þá tíð hefði almannarómur væntanlega dæmt að pungspark væri það allra versta sem nokkur maður gæti gert öðrum manni. Já engin spurning; hnitmiðað spark í hreðjarnar var hámarks hrottaskapur.

 

Og er.

 

Talað er um aukið ofbeldi (í víðum skilning, slagsmál, barsmíðar, misþyrmingar) í samfélaginu, en ég er samt ekkert viss um að meira sé slegist núna en gert hefur verið í gegnum tíðina. Jafnvel minna.  Menn hafa verið kýldir kaldir út um allt land síðan ég fór að taka eftir fréttum. Kannast ég vel við að mér eldri menn segi sögur sem staðfesta að í þeirra tíð hafi handalögmál hverskonar verið tíð. Það mátti ekki koma bræla í nokkra daga þá loguðu heilu plássin frá fjöru til fjalls í slagsmálum. Þá var líka mikil harka -  jafnvel nokkur pungspörk um hverja helgi.

 

Harka já. En ekki villimennska.

 

Læknar á slysamóttöku mæla aukna tíðni alvarlegra meiðsla eftir ofbeldi. Þeir kenna um aukinni neyslu sterkra/harðra vímuefna. Eiturefna. Sama segir lögreglan.

 

Enn er ég hér aðeins að vísa í tvær fréttir af mörgum tugum ef ekki hundruðum sem fjalla um þetta efni.

 

Nú vilja menn kenna tölvuleikjum og Netinu um.

 

Hlé...

 

PS. Af pungsparki


Ég sparkaði í það minnsta einu sinni í pung, það ég man. Man ég það nánast eins og það hefði gerst í fyrradag.

 

Ég var í hörku slag við strák sem var 2 árum eldri en ég og líkast til eitthvað sterkari. Ég hafði samt í fullu tré við hann og var að því að mér fannst að hafa hann undir. Þá sparkaði hann í mig, þarna á versta stað og við það steinlá ég. Þetta var góður vinur minn og alls enginn hrotti. Ég mótmælti fólskubragði og hlé var gert á bardaganum. Drengilegt? Já. Stjúpid? já.

 

Eftir smá hvíld þar sem ég fékk „sanngjarnt” tækifæri til þess að jafn mig af sárasta verknum eftir fólsku sparkið var flautað til leiks að nýju. Það þurfi að útkljá þetta mál.

 

Viðstaddir, all stór hópur krakka, sem höfðu verið blandaðir í því hverjum þau héldu með, höfðu nú öll sem eitt snúist gegn honum og á mitt band.

 

Þrátt fyrir aukin stuðning þá fann ég fljótlega að ég var að tapa slaginum, var að missa móðinn og gat vart meir, enda særður. Það var ekkert eftir nema að gefast upp, jú eitt grípa til örþrifaráðs.

 

Hné í pung.

 

Þessi slagur var búinn. Ég vann!

 

Ég var og er enginn hrotti.

 

Seinna þetta kvöld vorum við sem fyrr mestu mátar og djömmuðum saman langt inn í nóttina, slagurinn var að baki með verkjunum.

 

Hvað "málið" var sem útkljá þurfti er enn trúnaðarmál.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband