Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Ég er ekki sá sem ég er...

undercoverÉg styð að fólk geti komið fram undir dulnefni, með skilyrðum þó. Ég skrifaði um þetta efni undir lok s.l. árs, en í og með voru hugsanir tengdu þessu viðfangsefni hvatinn að því að ég hóf að skrifa hér á blogginu. Hérna er það innlegg:Time og maður ársins, 2. vers.

Því miður hefur Mbl. brugðist trausti mínu og annar sem hér eru skráðir með óheppilegum TÆKNILEGUM mistökum sínum í dag.

Það er líka hreint ótrúlegt að lykilorð notenda skulu vera geymd í frummynd sinni (órugluð) - Mbl hefur ekkert með þessi lykilorð að gera á þessu formi - ALLS EKKERT. Eru lykilorðaveiðar stundaðar af rekstraraðilum Mbl? Er blogg.is Troju-hestur? Í raun ætti kennitala notenda að vera dulkóðuð líka. 

Mig langar að grípa niður í niðurlag greinar minnar:

Virkt eftirlit er gott mál - en því skyldi ekki ruglað saman við virka ritskoðun. Eftirlit snýst um að vernda þjónustuna (og notendur hennar) í samræmi við fyrirfram ákveðnar reglur og viðmið. Ritskoðun er geðþótta síun á umræðu, þar sem ákveðnum sjónarmiðum eða ákveðinni umræðu er ekki leyft að koma fram eða eiga sér stað

Hvernig á að vera hægt að treysta aðila sem stundar slíkt til þess að annast opna umræðu eða fyrir jafn viðkvæmum hlut og persónuleynd er? Það er af og frá að það sé hægt!

Ég sé aðeins eina leið fyrir aðstandendur kylfingur.is til þess að byggja upp traust. Þeir verða að semja og birta vinnureglur (Code of Conduct / Terms of Use / Privacy Policy) um hvernig þeir hyggjast standa að rekstri þessarar þjónustu.

Það er svo verulega athyglivert að Mbl er ekki með slíkar reglur fyrri bloggið - sjáanlegar.

Það er verulega brýnt að Mbl. taki hér til sín þau orð sem ég beini þarna til kylfingur.is. Mbl er skylt að taka á þessu máli af festu og það tafarlaust.


mbl.is Ekki hægt að sanna hver skrifaði á spjallvef
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott nafn og réttur maður

atlasí viðskiptana furðuveröld
jöfrar spor sína marka
í eigin nafni risinn tekur völd
veit að þetta er aðeins fyrir þjarka

     -oOo- 

Aggi er risi af manni og það hæfir honum vel að starfa undir slíku merki. Rétt eins og það hæfir merkinu að hafa hann.

Titan menn til hamingu með þetta.

 


mbl.is Agnar Már Jónsson ráðinn framkvæmdastjóri Titan Invest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sætar stelpur í sundfötum eða vort daglegt klám?

SI swimsuit IpodÍ ljósi umræðunnar sem spannst og spanaðist upp í kringum fyrirhugaða heimsókn hóp fólks (kallað klámliðið) hingað til lands er það kannski óðs manns æði að setja inn á bloggið mitt tilvísun inn á  sundfatablað Sports Illustrated, en þeir voru víst að opna á 2007 útgáfuna. 

 

Ástæðan fyrir því að ég fór inn á baðfatavef SI tengist á engan hátt "klámi" né heldur baðfötum ef út í það er farið. Heldur var ég að lesa um tæki og tól (hum, tölvutól) og fyrr en varði horfði ég á IPod yfir klofinu á henni Marisu Miller. Það var sumsé áhugi minn á IPod'um og skildum græjum en ekki á fögrum kroppum og bústnum börmum og hvað þá hálf huldum klofum sem leiddi mig inn á síðuna - bara svo að það sé á hreinu.

 

Þessi atburðarrás er auðvitað ákveðinn harmleikur; það að ég skuli hafa áhuga á tækni verður til þess að ég dett óvart inn á "skvísusíðu", sem ég svo finn mig tilneyddan til þess að deila með lesendum bloggsíðu minnar, sem svo endar kannski með því að ég á yfir höfði mér málsókn. Ef fólk áttar sig ekki á sakarefninu, þá væri það fyrir dreifingu kláms og til vara fyrir að ýta undir dreifingu kláms. Það er nú líkast til.

 

Hver hefur sinn kross að bera. 

 

Hardcore-femínistar munu kalla þetta efni sem ég vísa á klám - geta í sjálfu sér ekki annað. Það mun sennilega engu breyta að ógrynni tímarita sem innihalda áþekkt efni eru gefin út í öllum löndum þessa heims þar sem frelsi er sæmilega virt. Engu mun heldur breyta að þessi blöð eru gefin út með konur í huga og að þetta efni er daglegt lesefni tugmilljóna manna. Vandræði HCF eru að þeirra eigin málflutningur hefur króað þau af, rétt eins og ætíð gerist með málflutning ofsa - og öfgamanna. Rök þeirra gera það að verkum að þau geta ekki dregið línu á milli tískusýninga, súludans, vaxtaræktar, gapandi afturenda, kássukynlífs, auglýsinga frá Blue Lagoon eða Icelandair; líkami konu skal aldrei vera notaður í atvinnuskyni. Ofbeldi ekki ofbeldi, nauðung ekki nauðung - það skiptir ekki máli.

 

Call me crazy.

 

Þið getið skoðað Sports Illustrated Swimsuit  hér.

 

Til samanburðar (og mér til varnar) er flott að kíkja á nokkrar (af þúsundum dæma) vefsíður sem höndla með skyldan varning: Victorias Secret  (eru einmitt að keyra á sundfötum þessa dagana), Ann Summers (já já já svolítið meira á kantinum en aðrar síður í þessu dæmi),  figleaves.com (líka með sundföt á forsíðunni hjá sér) og Debenhams (sem keyra á sakleysinu!!!)

 

SI SwimSuit 2007 get started w Beyoncé

 

SI Victorias Secret Swim 2007

 

SI figleaves dive in

SI Ann Summers

SI Debenhams

 



Nýja lúkkið hennar Britney Spears

Hnaut um Britney á förnum vegi, tók eftir því að hún var með kollu. Fanst að mér bæri skilda til þess að deila þessari merkilegu ekki frétt með ykkur.

BSPEARSWIG021907_02

BSPEARSWIG021907_01

BSpearsShavePart2_0006

BSpearsShave021607_3

BSpearsShave021607_1


mbl.is Hárgreiðslukona firrir sig ábyrgð á klippingu Britneyjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort hugsar þú eins og karl eða kona?

double face results_facesÁ vef BBC fann ég próf sem kallað er Sex I.D. Test, ég tók prófið og niðurstaðan var sú að ég skoraði eins og meðal karlmaður. Ég veit ekki hvort að ég sé ánægður með það eða ekki! Ljóst er að kollurinn á mér virðist vera þokkalega rétt stilltur miðað við kynferði mitt, en um það hafði ég aldrei efast. En nú er ég svona að spá hvort það hefði ekki verið flottara að skora hærra - væri ég þá ekki meri maður?

Niðurstaða mín úr prófinu er sem hér segir:

 sex id test

 


 Part 1

 Angles
 

This task tested your ability to identify the angle of a line by matching it with its twin. This is a spatial task, which looks at how you picture space.

Your score: 18 out of 20
Average score for men: 15.1 out of 20
Average score for women: 13.3 out of 20

What does your result suggest?

If you scored 0 - 12: You have more of a female brain. Scientists believe that people with a female brain find it more difficult to judge the slope of a line because they're not wired for spatial tasks. In past studies, 65 per cent of people who scored in this range were women.

If you scored 13 - 17: You found this test neither hard nor easy. This suggests your brain has male and female traits when it comes to spatial ability.

If you scored 18 - 20: You have more of a male brain. On average, men outperform women in this task and those with more mathematical knowledge tend to score quite high as well. In past studies, 60 per cent of the people in this range were men.

Interestingly, men's testosterone levels fluctuate through the seasons and studies have shown that men's scores are lower in the spring, when their testosterone levels are at their lowest.

Do our cave dwelling ancestors offer us any clues about why men and women score differently on this task? Find out more.


 Spot the difference
 

This task tested your ability to identify which objects changed position. You lost points, if you incorrectly identified objects.

Your score: 43%
Average score for men: 39%
Average score for women: 46%

What does your score suggest?

If you scored between 0 - 33%: You may have more of a male brain. Scientists say men tend to under perform in this task. The corpus callosum, the part of the brain that links the right and left hemispheres, is a fifth larger in women. This means women can process visual and other signals at the same time more easily than men. There is also a theory that oestrogen levels in women give them an added advantage in spatial memory.

If you scored between 34 - 66%: You may have a balanced female-male brain.

If you scored between 67 - 100%: Those with a female-type brain generally score in this range. Your ability to remember where objects are may serve as an advantage to you when you're trying to find your way around places. You're more capable of recalling landmarks to get from one place to another.

Find out more about our spatial abilities.


 Part 2

 Hands

 

You said your left thumb was on top when you clasped your hands together.

Right thumb on top: This suggests the left half of your brain is dominant. Many studies have tried to establish whether there is a relationship between handedness and brain dominance. Some scientists believe that if you are left brain dominant, you would be more verbal and analytical.

Left thumb on top: This suggests the right half of your brain is dominant. Some studies theorise that as a right brain dominant person, you may excel in visual, spatial and intuitive processes.

However, these theories are debatable and leave much to be said about the small percentage of people who are ambidextrous.

Find out why right-brained people may be better fighters and artists.


 Part 3

 Emotions and Systems
 

This task looked at whether you prefer to empathise or systemise.

Empathising

Your empathy score is: 8 out of 20
Average score for men: 7.9 out of 20
Average score for women: 10.6 out of 20

What does your result suggest?

Empathisers are better at accurately judging other people's emotions and responding appropriately. If you scored 15 and above, you are very empathic and would be an ideal person to comfort people in a time of crisis. Women in general are better at empathising.


Systemising

Your systemising score is: 13 out of 20
Average score for men: 12.5 out of 20
Average score for women: 8.0 out of 20

What does your result suggest?

Systemisers prefer to investigate how systems work. A system can be a road map, flat pack furniture, or a mathematical equation – anything that follows a set of rules. A score of 15 and above suggests you're good at analysing or building systems. Men in general are better at systemising.

Scientists are keen to learn more about people who score high or low on both tests. They want to find out whether or not empathising and systemising are linked. Is a possible to make yourself more empathic?

Some scientists claim that our empathy and systemising abilities can be traced all the way back to prehistoric times. Find out more.


 Eyes
 

This task tested your ability to judge people's emotions.

Your score: 5 out of 10
Average score for men: 6.6 out of 10
Average score for women: 6.6 out of 10

What does your result suggest?

If you scored 0 - 3: Do you think you're good at judging how another person is feeling? Your score suggests this doesn't come to you quite so naturally.

If you scored 4 - 6: Your result suggests you have a balanced female-male brain and find it neither easy nor difficult to judge people's emotions.

If you scored 7 - 10: Your result suggests you are a good empathiser, sensitive to other people's emotions. Women generally fall into this category.

Professor Baron-Cohen at the University of Cambridge says that people usually perform better than they expect to on this test.

Men often think a person's eyes are sending signals of desire when that's not the case at all. Find out more.



 Part 4

 Fingers
 

We asked you to measure your ring and index fingers. Your ratios came to:

Right Hand: 0.92
Left Hand: 1.01

Average ratio for men: 0.982
Average ratio for women: 0.991

It's thought that your ratio is governed by the amount of testosterone you were exposed to in your mother's womb. The ratio of the length of your index finger to the length of your ring finger is set for life by as early as three months after conception. Even during puberty, when we experience intensive hormonal changes, the ratio stays the same.

Men generally have a ring finger that is longer than their index finger, which gives them a lower ratio than women, whose ring and index fingers are usually of equal length.

Studies have found that men and women with lots of brothers generally have more masculine finger ratios. Find out what other things scientists think our ratios may tell us.



 Part 5

 Faces
 

This task looked at how you rate the attractiveness of a series of faces. The images you looked at were digitally altered to create slight differences in masculinity.

Your choices suggest you prefer more feminine faces.

Highly masculinised male faces possess more extreme testosterone markers such as a long, broad and lower jaw, as well as more pronounced brow ridges and cheekbones.

Interestingly, women's preferences are said to vary across the menstrual phase. A more masculine face is preferred during the 9 days prior to ovulation, when conception is most likely.

A typical 'attractive' female face possesses features such as a shorter, narrower, lower jaw, fuller lips and larger eyes than an average face.

Are you surprised at what researchers think they can learn from your answers? Find out more.



 Part 6

 3D shapes
 

This task tested your ability to mentally rotate 3D shapes.

Your score: 9 out of 12
Average score for men: 8.2 out of 12
Average score for women: 7.1 out of 12

What does your result suggest?

If you scored 0 - 6: Do you find yourself having to physically rotate a map to point in the direction in which you're travelling? This might explain why you scored in the lower range in the 3D shapes test. Twice as many women as men score in this category. Previous studies suggest that those with a female-type brain or with an arts background fall into this range.

If you scored 7 - 9: In past studies, 50 per cent of the people who scored in this range were women and 50 per cent were men.

If you scored 10 - 12: Are you an engineer or do you have a science background? People with these skills tend to score in this range. Past studies have concluded that people in this range have a more male brain.

Nearly a third of men who took this test got full marks, whereas less than 10 per cent of women managed the same. Find out why.


 Words
 

This task looked at your verbal fluency.

Your score: you associated 8 word(s) with grey and you named 3 word(s) that mean happy. We are assuming that all the words you entered are correct.

Average score for men: 11.4 words total
Average score for women: 12.4 words total

What does your result suggest?

If you produced 1 - 5 words: You are more of the strong, silent type with a male brain. You probably find it easier to express yourself in non-verbal ways, preferring action rather than words.

If you produced 6 - 10 words: Most people in this range have a female-type brain.

Women are said to use both sides of the brain when doing verbal tasks while men mainly use their left side. Studies have shown that girls develop vocabulary faster than boys. This difference in brain power is caused by levels of pre-natal testosterone. Find out more .


 Ultimatum
 

This task asked you how you would divide money.

If you had to split £50 with someone, you said you would demand £25

So far on the Sex ID test, men have demanded 51.6% (£25.80) of the pot and women have demanded 51.0% (£25.50), on average.

What does your response suggest?

Sex differences are small in this task. Demanding less than 60% of the pot (ie £30) is more typically female. Demanding more than 65% of the pot (ie £32.50) is more typically male.

Scientists believe that people with lower testosterone levels tend to take fewer risks so they are probably more willing to keep less for themselves. Those with higher testosterone levels tend to drive a harder bargain and are less compromising.

Men's testosterone levels fluctuate over the seasons and are at their lowest levels during the springtime. This is said to influence their bargaining power. Find out more about the role of testosterone

 


Birgir Leifur er á réttri leið

biggi leifurDæmið gekk því miður ekki upp hjá Bigga í Indónesíu. En hann er á réttri leið, það er gríðarlega mikilvægt að ná í gegnum niðurskurðinn.trophy-claret-jug-british-open

Ef leikur hans er skoðaður þá sést að hann er að gera fína hluti, er að fá fugla, 10 stk. á þessu móti. Hefðu svo sem mátt vera 2 - 3 í viðbót (ernirnir munu detta inn) en fuglar eru greinilega ekki vandamál hjá honum. Fjöldi skolla er svo sem ekkert út úr kortinu en þeir voru 10 eins og fuglarnir. Ef hann kemur þessu niður í svona 8 þá verður hann að dansa. En svo er það þetta bévítans double sem hann bjó til svo ekki sé talað um and.. tripið sem hann tók þarna á 9. holu fyrsta daginn. Þetta þarf hann að útiloka - sem hann gerir örugglega. 

Ég veit að Biggi veit að hann getur þetta, það er aðalmálið. Hann mun setja saman fína fjóra hringi fljótlega sem munu skila honum inn fyrir topp 20. Svo tekur hann dollu einn góðan veðurdag.

Stattu þig strákur. 

ES. Bigga blogg er hér 


mbl.is Slakur lokakafli Birgis skilaði honum í 59. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klámstjörnur ætla að ríða ...

Porn star on horse... út á Íslandi í næsta mánuði.

Ef marka má fréttir og umræðuna hér á blogginu þá er það stór, RISASTÓR viðburður að til landsins ætli að koma dágóður hellingur af fólki sem vinnur við klámiðnaðinn. Það verður vafalaust mikið um föngulegasta fólk í þessum hópi, líklega verða bústnar ofurskvísur og vel hangnir "hönkkar"  áberandi. Hingað ætla þau að koma til skrafs og ráðagerða en líka til þess að gamna sér svolítið. 

Af hverju er allt orðið vitlaust vegna þessa? Uppi eru háværar raddir um að það eigi að banna fólkinu að koma hingað!

Hvaða, hvaða. 

Úr því að málið fór í þann farveg sem það er í (sem var svo sem viðbúið), má segja að umræðan í framhaldinu hefði verið fyrirséð að mestu. Tilfinningar bera skynsemina ofurliði. Steríótýpurnar stökkva inn á sviðið og hegða sér nákvæmlega eins og tja steríótýpur.

Í mínum huga er birtingarmyndin eitthvað á þessa leið: 

porn hurts everoneLeiðinlegar stelpur, konur og kellingar undir flaggi femínisma æpa og öskra, veifandi fullyrðingum um, nauðung, dóp og mannsal og undir þetta taka jafn leiðinlegir strákar og karlar sem líka segjast vera femínistar.

Svo eru það svona VG týpurnar, þið vitið; Steingerfingur Joð, Ömmi og Kolla. Ég meina svona fólk sem verður voðalega oft alveg ægilega vont og á það þá til, oftar en ekki, að hella heilum helling af hring-raka-þvælu yfir allt og alla.

Raupandi og rausandi.

Það er ekkert fyrir mig að reyna að skilgreina klám, en ég veit að klám er klám, klám er erótík, erótík er klám og klám er ekki klám þó svo klám sé. Ég vill meina að hugtakið klám eins og það er notað í daglegu tali sé ekki endilega neikvætt, að vort daglegt klám sé annað klám en það sem um er fjallað í 210. gr. hegningarlaga.

Þar hafið þið það!

Það er enginn vafi á því að í skjóli klámiðnaðarins þrífast margir ógeðfeldir hlutir, sumir ógeðslegri en orð fá lýst. Hlutir sem engin eðlileg manneskja getur verið sátt við. En við sem teljum okkur vera "eðlileg" og viljum forðast þá staði þar sem óeðli er eðli megum samt ekki fordæma athafnir samferðafólks okkar með þeim hætti sem steríótýpurnar gera. Við getum ekki dregið allt þetta fólk í einn dilk - málað það í sama litnum og úthrópað það síðan sem glæpalýð. Í slíku felst áþekk mannfyrirlitning og steríóliðið er að saka þetta fólk um.

Ef fólk vill lát    a taka sig alvarlega í þessari umræðu þá þarf það að gangast við því að fullorðnu fólki er frjálst að athafna sig eins og því sýnst svo lengi sem það sjálft ræður ferðinni. Hér virkar ekki að alhæfa að leikararnir séu nauðugir í leiknum. Fólk má hamast, hoppa og skoppa, hálf-nakið , alsnakið, klætt í búning læknis, Tarsans eða nunnu, bundið eða óbundið, brúkandi svipur, tól og tæki, slím, jarðarber og rjóma, stynjandi, rymjandi, sitjandi, standandi, fljúgandi, já rétt eins og því listir og í leiðinni er það bara í fínu að myndir séu teknar af öllu saman. Í framhaldi höfum við svo ekki mikið að segja um hvernig efnið (myndirnar, hljóðið) er höndlað. 

Pafagauka homdi domdiStundum horfi ég á klám, stundum finnst mér það í lagi, stundum líður mér hálf-kjánlega, stundum geispa ég, stundum veit ég ekki hver fjárinn er í gangi - hvort að einhver sé að koma, tja eða þá að fara.

Síðast horfði ég á klámmynd um miðjan janúar, þá horfði ég á mynd sem hét "Iron Master Byrgisins". Þetta gæti verið vinnuheiti en mér fannst allt yfirbragð myndarinnar bera það með sér að hún væri enn í vinnslu. Mér var sagt að þetta sé til þess að gera nýleg mynd og að tökur hafi farið fram hér á landi. Mér leiddist myndin, svo mjög að ég greip til þess ráðs að horfa á hana á þreföldum hraða.

IMB var einhvernveginn alveg laust við að vekja upp hjá mér slíkar kenndir (gre...) sem mér finnst að svona myndir eigi að gera. Þar spilar forsaga, baksvið sögunar verulega inn í, veldur því að sorg verður öðrum kenndum sterkari. Eða var það kannski ætlun leikstjórans? Sagan af IMB er saga nauðungar.

Porn is goodEn færum sambærilega klámmyndagerð í annað umhverfi. Segjum söguna að hamingjusama parinu við getum kallað þau OG og DM, þau þekkja allir eru þekkt fyrir heilbrigðan og jákvæða lífstíl - svona fólk sem allt leikur í lindi hjá. Í sínu einkalífi stunda þau eitthvað sem ég myndi kalla all sérstækt kynlíf, í takt við það sem sést í IMB. Þeim finnst æðislegt að horfa á klámmyndir af slíkum athöfnum og æsingur þeirra verður aldrei meiri en þegar þau sjálf fara með aðalhlutverk. OG og DM eru líka félagar í klúbbi þar sem fólk með svipaðan áhuga kemur saman til að horfa á nokkrar ræmur og fá sér te eða ávaxtasafa. Þarna ræðir fólkið stílbrigði og tækni - ekki ósvipað því sem fólk gerir sem stundar dans. Líka eru einginleikar tóla og tækja ræddir og vinsælt er að fá gesta fyrirlesara til þess að kenna nýja hnýtingar - binditækni er nefnilega mikilvægur hluti í þessu hobbýi, ekkert ósvipað og hjá þeim sem hnýta veiðiflugur. Perraskapur sem það er. 

Í klúbbnum þeirra er nokkuð algengt er að fólk skiptist á myndskeiðum eða jafnvel heilu stuttmyndunum og þekkt er að sumar þessara mynda sé gefnar út, þannig að stærri hópur geti notið þeirra. Klúbburinn sem OG og DM eru í heldur úti fínum vef, þessi vefur er vinsæl hjá fólki sem hefur áhuga á svona nokkru og já fjölda forvitina. Á þessum vef eru m.a. svona myndir seldar, þær eru seldar háu verði - seljast grimmt.  

Ætli þessi saga sé nokkuð út í hött? Það skal í það minnsta engin segja mér að eitthvað þessu líkt eigi sér ekki stað.

Það má líka einfalda þessa sögu mikið; segja sem svo að OG og DM stundi bara svona venjulegt hömdí dömdí kynlíf, en finnist gaman að teipa það og horfa á við ýmis tækifæri, þau eru meðlimir í samfélagi á netinu sem skiptist á og selur svona efni. 

Og þá eru það spurningarnar; hvar í ferlinu breytist heimilisklámið í klámiðnað nauðugra, hver er það sem eldheitur leikur drifinn af sameiginlegum nautum þeirra breitist í nauðung. Hvað er það í athöfnum þeirra sem lítilsvirðir konur já eða karla? 

Endilega skoðið þetta innlegg á Vísindavef HÍ um klám, mér finnst þar vera fín nálgun og svo er hér lengri grein sem er ágæt lesning.

Svo lengi sem við höfum ekki annað en tilfinningaleg rök gegn þessu fólki þá skulum við láta þetta fólk í friði, leyfum því að koma hingað og látum það óáreitt. Allir tilburðir til þess að hafa frekari afskipti af málinu mun aðeins vekja á hópnum meiri athygli (nóg er komið samt), við verðum líka að reyna að koma í veg fyrir að við gerum okkur að algjörum fíflum (það er kominn nettur fífla fílingur í málið).

ES. Ég er hissa á innígripi Borgarstjórans. Það skal tekið fram að ég flokka Villa borgó ekki í hóp með steríótýpunum. Ég held að þetta hafi verið óvart hjá honum, vont frumhlaup. Hann átti ekkert með það að gera að blanda sér í umræðuna með þeim hætti sem hann gerir. Núna er hann kominn í einhverskonar sjálfheldu, hann veit að af-því-bara rök duga ekki og verður því að fylgja ígripinu eftir og gerir tilraun til að verja þessa skoðun með efnislegumrökum. Æi þetta er ógurlega aumt. Hálfu aumar er það svo að ríkistjórnin hafi fundið það upp hjá sér að ræða málið.


Helgarþrautin - fínn leikur frá BBC

CDX dagger in handUm daginn þá "stömblaði" ég á leik á vef BBC, þetta er "Flash" þrautaleikur sem kallast CDX. Við fyrstu sýn virkar leikurinn vel á mig; hann er flottur, sagan virðist vera góð og mér sýnist að hann sé ekki erfiðari en svo að engin tapi sér við lausn hans. 

Ég hef lýst áhuga mínum á þessháttar leikjum hér á blogginu (sjá hér). CDX er að því ég best fæ sé hluti af kynningarstarfi BBC á sjónvarpsþáttaröðinni Róme.

Sagan er eitthvað á þá leið að "fórnarhnífur" sem gerður var í árdaga Rómverska keisaraveldisins hefur að geyma lausnina á fornu og blóði drifnu samsæri sem skýtur upp á yfirborðið á okkar dögum. Adam Foster sem vaknar minnislaus í herbergi í Túnis dregst inn í atburðarrás græðgi, svika og morðs. Spurningin er hvar er hnífurinn, er hægt að stoppa morðingjann?  

Ekki er það verra að Íslendingur kemur við sögu í einni af fyrstu myndinni í leiknum. Í pósthólfi Adams er að finna póst frá "Gudrun in Reykjavik", sjá myndinna hér fyrir neðan.

CDX fór í loftið í september á síðasta ári þannig að það má vel vera að flestir sem hafa áhuga á svona nokkru viti þegar af leiknum.

En fyrir ykkur hin, þá er CDX hér og síða BBC um leikinn er hér.  

CDX mail box


Valentínusar vampíra

vampira Tiffany Sutton 02Kona í Arizona var handtekin á Valentínusardag grunuð um líkamsárás.  Konan hin 23 ára gamla Tiffany Sutton hafði fengið 43 ára gamlan mann til fylgis við sig með loforði um hinssegin rekkjubrögð.

Eftir að hafa bundið kappann með hans samþykki tók daman fram dálk einn mikinn og skar í fótlegg mannsins og fékk sér síðan að súpa.

Félaginn náði að slíta sig lausan, það er auðvitað ekki auðvelt að slíta sig frá svona nokkru þannig að hann á klapp skilið fyrir að hafa sig í það. Eftir að hann losnaði flúði náunginn með fraukuna og kutann á hælum sér.

Meira um þetta hér og hér.

 


Hrafnaþing komið á fullt

ravenÉg tók eftir því í morgun þegar ég var á ferðinni með stubbinn í skólann og síðan á leið til vinnu að óvenju margir hrafnar urðu á vegi mínum.

Fyrst sá ég 2 - 3 pör við Selásskóla, á leiðinni niður brekkuna frá Selásbrautinni niður á Bæjarháls var hellingur af fuglum sennilega 8 til 12 stk., sem ég tók hringtorgið inná Bæjarhálsinn var mér litið upp til Hádegismóa og þar greindi ég í hendingu einhverja fugla kannski 3 - 4 og að lokum sá ég 4 fugla á leiðnni niður Hálsabrautina. Eða eitthvað um 20 fugla í það heila.

Á leiðinni heim var eitthvað svipað upp á teningnum, ætli ég hafi ekki séð einhverja 8 - 10 fugla, en ég fer aðra leið heim - ekki jafn hrafnvæna.  

Hrafnaþing er greinilega komið saman. Það hvarlaði að mér eitt augnablik að í þessari "sýn" fælust skilaboð. Ég fór inn á www.inntv.is rétt í þessu nokkuð viss um að karlinn væri kominn í loftið, en þar er bara stillimynd - þetta olli mér vonbrigðum.

En um leið var mér létt, ég trúi nefnilega ekkert á svona teikn, fyrirboða og svoleiðis bull. 

Sjúk.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband