Leita í fréttum mbl.is

Það kveður enn við sama tón, undarlegur andsk...

New York City FirewallHverng stendur á því að þessir snillingar, og ég er að meina snillingar, í Davos detta allir í sama ruglið aftur og aftur? Þeir virðast hafa ríka þörf fyrir að setjast í stól "stóra bróður" og þaðan vilja þeir passa upp á okkur öll hin. Ég kom inn á þetta í gær líka (sjá hér). Eftirfarandi tók ég úr frétt Mbl.:

"Þeir ræddu einnig um þær hættur, sem stafa af því að ljósmyndir og myndbönd úr farsímum eru sett inn á netið nánast stjórnlaust, svo sem myndbandið sem sýndi aftöku Saddams Husseins, fyrrum forseta Íraks. Slíkar myndir geta valdið uppnámi og óeirðum og nánast ómögulegt er að koma böndum á þessa fjölmiðlun."

Það er ekkert NÁNAST stjórnlaust eða NÁNAST ómögulegt, það er einfaldlega stjórnlaust og ómögulegt.

Punktur.

Og trúið mér að það verður síðan bara enn meira ómögulegt - ef það er hægt að orða það þannig - þegar fram líða stundir.

Vitaskuld geta allar stóru veiturnar á Netinu (t.d. eins og YouTube) gert hvað sem hægt er til þess að takmarka innsetningu slíks efnis en það verður ekki hægt að stöðva dreifingu eins eða neins í grasrótinni. Sorrý.

Þessir gæjar vita allir betur - það veit ég. 


mbl.is YouTube ætlar að deila tekjum með notendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband