Leita í fréttum mbl.is

Helgarþrautin - fínn leikur frá BBC

CDX dagger in handUm daginn þá "stömblaði" ég á leik á vef BBC, þetta er "Flash" þrautaleikur sem kallast CDX. Við fyrstu sýn virkar leikurinn vel á mig; hann er flottur, sagan virðist vera góð og mér sýnist að hann sé ekki erfiðari en svo að engin tapi sér við lausn hans. 

Ég hef lýst áhuga mínum á þessháttar leikjum hér á blogginu (sjá hér). CDX er að því ég best fæ sé hluti af kynningarstarfi BBC á sjónvarpsþáttaröðinni Róme.

Sagan er eitthvað á þá leið að "fórnarhnífur" sem gerður var í árdaga Rómverska keisaraveldisins hefur að geyma lausnina á fornu og blóði drifnu samsæri sem skýtur upp á yfirborðið á okkar dögum. Adam Foster sem vaknar minnislaus í herbergi í Túnis dregst inn í atburðarrás græðgi, svika og morðs. Spurningin er hvar er hnífurinn, er hægt að stoppa morðingjann?  

Ekki er það verra að Íslendingur kemur við sögu í einni af fyrstu myndinni í leiknum. Í pósthólfi Adams er að finna póst frá "Gudrun in Reykjavik", sjá myndinna hér fyrir neðan.

CDX fór í loftið í september á síðasta ári þannig að það má vel vera að flestir sem hafa áhuga á svona nokkru viti þegar af leiknum.

En fyrir ykkur hin, þá er CDX hér og síða BBC um leikinn er hér.  

CDX mail box


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Ég hef verið húkkaður!
Takk samt sem áður!

Júlíus Valsson, 17.2.2007 kl. 18:59

2 Smámynd: Viggó H. Viggósson

Njóttu.. :-)

Gaman væri að heyra frá þér síðar um hvernig þér gengur og hvað þér finnst þegar líður á leikinn. 

Viggó H. Viggósson, 17.2.2007 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband