Leita í fréttum mbl.is

Golf, gæði valla og gleði

golf on snow 01Í dag átti ég innlegg á spjallþráð á kylfingur.is, sem svo leiddi til þess að ég fékk spurningu til baka sem mér finnst vel svara verð þó sendandinn sé nafnlaus. Áður hef ég lýst skoðun minni á því að nota umræddan spjallvef, en ég tel hann ónothæfan fyrir "alvöru" umræðu (ef einhver hefur áhuga á því að skoða hvers vegna þá má sjá grein um það hér).

Allt að einu, ekkert er sjálfsagðara en að taka þessa umræðu um ástand og gæði golfvalla, enda getur það vart orðið til annars en einskins (ekki gerir slík umræða ástand valla verra, eða hvað?) en hitt er svo ég kýs að flytja mál mitt hér frekar en þar.

Tekið af kylfingur.is af þræði þar sem verið er að ræða ástandið á Grafarholtsvelli (sjá hér):

Frá: Viggó völlur Viggósson11.6.2007 11:54:05
 Ég ætla mér ekki að bera í bæti flákann fyrir Grafarholtið, aðstæður voru erfiðar í maí og holtið þolir einfaldlega illa slæmt tíðarfar - ekki frekar en flestir vellir aðrir, nú eða ég sjálfur.

Grafarholtsvöllur er þó ekki verri en það að hann er hægt að skora sómasamlega, sbr. að Halli Heimis kláraði dæmið í gær á 67 höggum, Pétur Óskar á 69 og fleiri kylfingar léku bara býsna vel.

Til dæmis skilaði Siggi Pé sér inn á 76 höggum, sem auðvita verður að teljast frábært fyrir mann á hans aldri og með hans bakgrunn. Síðan er það náttúrlega bara ótrúlegt, já og STÓRkostlegt í leiðinni að Sótarinn skuli hafa slegið einungis 77 högg, þráðbein flest og íðilfögur að ég tel líklegast.

Sameiginlegt eiga þeir það svo Siggi (35 / 41) og Sótarinn (37 / 40) að frekar dróg af þeim er líða tók á keppnina - slíkt þarf þó ekki að koma á óvart ef menn líta á prófílinn á þeim!!!

Aftur að vellinum. Kylfingar verða að einfaldlega að passa sig á því að láta ekki ástandið á stóra vellinum hafa neikvæð áhrifa á það sem er að gerast á litla vellinum (sem er þarna á milli eyrnanna, hjá flestum altjént).

Kv.
Viggó
Frá: En svon í11.6.2007 17:20:19
 alvöru Viggó, hvað finnst þér um grínin ? Er gaman að spila við þessar aðstæður ?
Frá: sundsprettur12.6.2007 00:13:21
 Ég skellti mér í holtið í dag. Mikið rosalega er völlurinn orðinn góður, flatirnar rennisléttar og mjúkar, taka vel við boltum. Annað greenið var smá sandað en það bætti bara rennslið. Teigarnir voru til fyrirmyndar og brautirnar nýslegnar og fallegar. Ég vil meina að flatirnar í holtinu eru þær bestu í Íslandi í dag.
Frá: Svingur12.6.2007 01:07:19
 Hvaða bull er þetta hér!
Flatirnar eru langflestar hrein hörmung í Grafarholltinu, hopp og skopp og sandur þar á milli. Árferðið ekki gott og völlurinn er hreinlega slæmur núna.
Vona samt að hann komi til með betri tíð mér þykir hann einn sá skemmtilegasti að spila á góðum degi

Þessu vill ég svara með þessu: 

"sundsprettur", ég vildi óska þess að ég gæti tekið undir og kvittað upp á þitt mat á aðstæðum í Grafarholti. Sjálfur var ég þar í kvöld og er mitt mat að við eigum en talsvert í land, en minni á að hlutirnir gerast hratt þessa dagana. Ég kíkti að vísu aðeins á 7 flatir, en tel mig vita nokk hver staðan er á vellinum heilt yfir. Jákvætt viðhorf þitt er þó til fyrirmyndar.

Það er hægt að taka undir það sem "Svingur" segir, og þá sérstaklega "einn sá skemmtilegasti að spila á góðum degi".

Ég gef mér að flestum finnist það sama og mér (og þeim sem skrifar "En svon í" innleggið) í þessu efni, flatirnar á völlum GR eru heilt yfir frekar slæmar og það er hundfúlt. Það þarf hins vegar ekki að þýða sjálfkrafa að leiðinlegt sé í golfi, þó auðvita blasi við að skemmtilegra er í golfi þegar flatir eru góðar - um þetta þarf ekkert að munnhöggvast. Yfirhöfuð þá líður okkur best á vel hirtum góðum golfvöllum og það er einmitt það sem við (GR'ingar) viljum bjóða upp á. En því miður getum við ekki boðið félögum og gestum okkar upp á betri aðstæður þetta vorið en raun ber vitni.

Sjálfur er ég þannig víraður að ég á það til að láta svona hluti (ósléttar flatir, sand á fötum, ný gataðar eða skornar flatir, o.s.frv.) fara svolítið í taugarnar á mér, ég skil því vel sjónarmið í þessa veru. Í mínu tilfelli reynir þó sérstaklega á þetta óþol mitt þegar ég kem á velli í útlöndum, oftast eftir talsvert ferðalag, með upp tjúnaðar væntingar og ný búinn að skilja við slatta af Evrum í flatarfé.

Ef þú ert að spyrja mig hvort að mér finnist ástandið á völlunum (flötunum) okkar óásættanlegt, þá myndi ég vilja svara því þannig að ég telji spurninguna vera óréttláta. Ef ég svara henni eins og mér býður þ.e. játandi, þá virðist felast í því ásökun. Við hvern er þá að sakast? Vallarstjórana, formann vallanefndar (sem er ég í tilfelli GR) eða ef til vill formanninn? Því miður er það ekki svo.

Einhverjum kann að finnst það undarlega að orði komist hjá mér að segja "Því miður". Verkefnið að kom völlunum í gott stand væri talsvert auðveldara ef við gætum verið viss um að vandamálið lægi í einhverju ákveðnu, eins og til dæmis því að menn væru að bulla eitthvað í umhirðu þeirra. Þá hefðum við eitthvað í hendi og gætum kippt því í liðinn, en svo er ekki - því miður.

Fjórir megin þættir hafa áhrif á ástand valla: uppbygging, umhirða, umferð og umhverfisþættir. Hér ætti ég að bæta við fimmta u-þættinum sem er umgengni (boltaför, torfuför, hjólför og önnur för). Sennilega er það svo grunnuppbygging vallar, umhverfisþættir eins og t.d. hæð yfir sjávarmáli og  veðrið sem hafa mest að segja um ástandið - og þetta eru einmitt þeir þættir sem við höfum ekkert með að gera.  

Golf/grasvallafræði eru líklega álíka mikil "ekki vísindi" og þau eru vísindi. Ég er sannfærður um að þetta fag ("golfvallafræði") hefur tekið umtalsverðum framförum hér á landi s.l. 5 - 10 ár, en ég er álíka (ef ekki meira) sannfærður um að við sjáum ekki en til lands í þessum efnum - að við erum nánast enn á byrjunarreit þrátt fyrir all góðan sprett. 

Þetta er orðið gott mikið lengra en ég ætlaði mér. Lætt þetta duga í bili.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viggó H. Viggósson

Þetta er eins og með veðrið, megin reglan er að þegar menn reyna að rifja upp hvernig veðrið var eitthvað aftur í tímann þá bregst minnið þeim oftar en ekki. En það er áreiðanlega rétt að flatirnar í Grafarholti hafa verið mun verri, eins er það öruggt að þær hafa verið mun betri á þessum árstíma.

Rétt er að það vekur eftirtekt að 4. og 8. virðast vera pluma sig vel, en eru þær vel heppnaðar? Er ekki eðlilegt að nýlegar flatir standi sig vel? Hvað þá með 2., 6., 10., og 16. - þær voru allar unnar á með sambærilegum hætti og á sama tíma fyrir aðeins 6 árum. Af hverju eru 2. og 6. verri en 10. og 16? Hafa þessar flatir einhvern tímann þótt góðar? Allar sama árið? Hvenær var það? Hvernig voru þær meðhöndlaðar það árið? En árið á undan? Hvað hefur breyst? O.s.frv.

Lykilatriði hér er að engin á að þurfa að muna eitt eða neitt. Slíkt einfaldlega gengur ekki. Vísindin í þeirri list sem rekstur golfvallar er felast einmitt helst í því að skrá með skipulögðum hætti þá þætti sem taldir eru hafa áhrif á ástand vallar (veður, aðgerðir, efni, ástand, samanburður, myndir, sýna niðurstöður). Það gefur kost á því að vinna skipulega að framþróun. Satt best að segja þá sýnist mér að í þessu efni vanti talsvert upp á - þó er eflaust munur á þessu á milli heimila.

Viggó H. Viggósson, 12.6.2007 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband