Leita í fréttum mbl.is

Óþekktarangi svarar fyrir sig

Mér fannst skrýtið þegar ég fyrst sá frétt um þennan „litla bankamann” þeirra í Liechtenstein að  yfirvöld í Þýskalandi skyldu gefa út að þau hefðu í raun nálgast þessar upplýsingar með ólöglegum leiðum.

Svo les ég að Þýsk yfirvöld séu iðin við kolan; sýnist helst að runnið sé á þau kaupæði. Þetta las ég á Spiegel:

February 28, 2008

Police in the north German city of Bremen have been paying informants in drugs. The practice may have helped fight drug crime but was itself illegal -- six officers are now under investigation.

If you want information out of someone, then it makes sense to give them something they really want in return.

Lille bankamann hefur væntanlega langað í fullt af peningum „in return”. 

Og fengið.

Reyndar er það nú svo að þarna í Bremen eru menn óskaplega ósáttir við þetta og má búast við því að rannsóknarlögreglumennirnir sem stóðu að þessu verði flengdir. Harkalega.

Ókey það má ekki greiða fyrir dópupplýsingar með dópi, en peningar eru í góðu lagi? Eða hvað? Hvað finnst fólki; er í lagi að ná í upplýsingar með þessum hætti? Má greiða með peningum fyrir peningaupplýsingar? Er það kannski bara í lagi ef valdstjórnin á í hlut? Rýrnar gildi upplýsinga ekki við það að þeirra skuli aflað með „ólöglegum” hætti? En siðlausum? Má kannski bara „allt” þegar við erum að eltast við vonda liðið?

Sjálfur er ég á því að þetta sé í lagi þegar tilefni er til. Svo er bara eftir að skilgreina hvað er tilefni!

Vondi karlinn er jú alltaf vondi karlinn! 

Liechtensetin menn eru samt að gera fína hluti með því að snúa vörn í sókn; ég skil vel afstöðu þeirra. Þeir hafa hagsmuna að gæta, hafa gefið sig út fyrri að vara óþekktarangi þegar kemur að upplýsingagjöf banka. Það hefur gefið vel fyrir þá.

Fram að þessu, þá.


mbl.is Leitað að bankaupplýsingaþjófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband