Leita í fréttum mbl.is

Fátt er svo með öllu illt ...

ljos_vid_enda_ganga.jpg... að ei boði nokkuð gott!

Nú er þörf á fleiri góðum fréttum, fréttum til þess að fylgja þessari eftir. Besti væri að það væru fréttir í kjölfarið af skynsömum og djörfum ákvörðunum stjórnvalda og ráðamanna.

Mér dettur í hug fréttir af aðgerðum sem styðja við fjölskyldur í landinu sem nú eru að verða fyrir gríðarlegum áföllum vegna gengishruns og óðaverðbólgu. Fréttir af stuðningi við smærri fyrirtæki í landinu, af stuðningi við nýsköpun. Fréttir af því að þeir stjórnendur bankana sem hafa fortíð í sukkinu verði láttir víkja, að bankastjórn seðlabankans ákveði að víkja, að fengnir verði erlendir sérfræðingar til þess að hefja leiftur rannsókn á þeim hryðjuverkum sem unninn hafa verið gegn þjóðinni.

Það er svo margt sem brennur nú, sem brennur á, sem þolir enga bið.

Áfram veginn... í áttina að ljósinu.


mbl.is Mesti afgangur á vöruskiptum frá því mælingar hófust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Greining Glitnis!!  Come on!  Hvað þarf ríkið að reka margar greiningardeildir við núverandi aðstæður?  Við erum með þrjá ríkisbanka, sterka greiningardeild í seðlabankanum og svo er uppi umræða um að endurvekja þjóðhagsstofnun.

Er kannski hægt að hugsa sér að hérna sé möguleiki á hagræðingu?  Þetta lið er ekki tengt, það er óhætt að álykta sem svo.  Annað er í þessum dúr hjá stjórnvöldum.  Þau þurfa að gera sér grein fyrir því að nú bera þau ábyrgð á rekstri bankana.

 Hvernig í ósköpunum á almenningur að hafa trú á því að núverandi stjórnvöld geti leyst þann vanda sem við nú stöndum fram fyrir?  Vanhæfnin, ráðaleysið og getuleysið blasir við hvert sem litið er.

Fannar (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband