Leita í fréttum mbl.is

Utan rammans

Það er utan rammans að senda beint inn umsókn…“ þetta sagði Steingrímur J. í fréttatíma RÚV áðan. Atli Gísla vill þjóðstjórn. Ömmi telur EU aðild vera arfavitlausa og aldrei vitlausari en einmitt nú. Vandséð er hvernig fólkið ætlar að ná sáttum í þessu máli, miðað við þessar yfirlýsingar (og fleiri reyndar). Nema þá ef þau ákveða að vera sammála um að vera ósammála og láta sér detta í hug að bera málið þannig fyrir þingið. Þá held ég að Ögmundur myndi nú fyrst sjá vitlausan arfa.

Spennan á stjórnarheimilinu er sumsé að stigmagnast. Stofnaðir eru hópar til að hræra í málamiðlunargumsinu, nú er bara að sjá hverjir vilja gleypa þann graut. Samfó tekur væntanlega hvað sem er og jafnvel þeir sem yngri eru í VG. 

Þá að kvöldfréttaþætti leikritsins. Undirspilið er yfirstemmdur sáttartónn. Aðalleikararnir og aldursforsetarnir, Blondí og Skallagrímur standa keik með leikmyndina í bakgrunni, Blondí er að tala og sækir orðfæri sitt í VG kverið; talar m.a. um Norrænavelferðarstjórn. Hún er reyndar svo mikil blondína að henni fannst nauðsynlegt að benda á þetta samhengi á milli Norrænarvelferðarstjórnar og leiksviðsins sem er Norrænahúsið, þetta þótti henni alveg hreint gasalega smellið - sem best mátti sjá á hennar breiða brosi, en það er ekki oft sem slíkt sést.

Þau segja okkur að þetta gangi nú barasta býsna vel hjá þeim og m.a. hafi verið ákveðið að láta varaformennina, ungafólkið, leiða Evrópumálið til lykta.

Ég spái því að þessi vinna muni ganga prýðilega hjá Degi og Katrínu, að þeim takist að búa til hræring sem einhverjir geti svælt í sig. En ég spái því líka að þessi vellingur gangi illa ofan í þá sem telja sig hafa gott pólitískt nef og þroskaða pólitíska bragðlauka.

Að sumum muni finnast gumsið vera utan rammans ...


mbl.is Ekki víst að langt sé í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Finnbogason

við viljum Vilkó, við viljum Vilkó

Sævar Finnbogason, 27.4.2009 kl. 23:32

2 Smámynd: Viggó H. Viggósson

Ég var meira að hugsa um Kjarna jarðaberjagraut ...

Viggó H. Viggósson, 28.4.2009 kl. 00:12

3 Smámynd: Sævar Finnbogason

Bláberjasúpan slær alltaf í gegn hjá börnunum mínum en kjarnagrauturinn rennur líka ljúft niður. Kanski við prófum bara að hræra þessu saman :)

Sævar Finnbogason, 28.4.2009 kl. 00:15

4 Smámynd: Viggó H. Viggósson

Bláberinn eru full ehem blá fyrir þetta borð, liturinn á jarðarberunum fellur líkast til betur í kamið og til þess að styggja ekki landbúnaðinn þá ættum við skvetta vel af íslenskum rjóma með (þá meina ég þessum rauða).

Viggó H. Viggósson, 28.4.2009 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband