Leita í fréttum mbl.is

Generalt flottur náungi...

Hefði ég verið spurður, humm... ég var spurður, hvern ég teldi að yrði fyrir valinu sem íþróttamaður ársins þá var svar mitt beint af augum; Eiður Smári. Vonaði þó að Birgir Leifur yrði fyrir valinu. Fannst að varla kæmu aðrir til greina (þröngt sjónarhorn - býst ég við).

Brosti í kampinn þegar Eiður kom inn annar - minn maður var þá með'a eftir allt. En sussum svei Guðjón Valur var'ða.

Vonbrigði já, stór nei.

Nei, einfaldlega vegna þess að Guðjón Valur er hrikalega flottur íþróttamaður. Sá handboltamaður sem mér finnst að jafnaði skemmtilegast að fylgjast með. Ég held líka að hann sé flottur náungi svona general. Hann er vel að valinu kominn.

Sá að einhverjir eru að benda á að eiginlega engir séu að horfa á handbolta í heiminum og þess vegna sé þetta val barasta argasta hneyksli.

Það er verið að velja íþróttamann ársins á Íslandi, ekki satt? Á Íslandi skipar handbolti sinn sess, ekki satt?

Til hamingju Guðjón Valur. Biggi koma svo á túrnum á næsta ári.

 


mbl.is Guðjón Valur íþróttamaður ársins 2006
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband