Leita í fréttum mbl.is

Netgluggagæir

Web Cam WorkplaceNetið er hið mesta ólíkinda tól, mér var bent á það um daginn að hægt væri að finna þúsundir vefmyndavéla út um allan heim. Maður veit ekkert hvar mann ber niður; í kvöld kíkti ég á ránfuglshreiður (var reyndar tómt) ég datt inn á nokkrar vélar sem fylgjast með byggingarframkvæmdum eins og þessa í Syracuse, svo lenti ég inn á heimili hjá ketti sennilega í Texas og svo er það þessi sem tekur mynd niður brekkuna á Akureyri. 

Til þess að finna lista yfir allar þessar vélar er farið í google og leitað að "inurl:/view/index.shtml". Leitin gaf mér 9600 niðurstöður þannig að af nógu er að taka. Svo má bæta við í google strenginn "inurl:.is" til þess að finna vélar á Íslandi (aðeins ein finnst) eða dot eitthvað annað fyrir eitthvað annað land.

Annars eru þessar slóðir oft með ip-tölu beint þannig að maður veit ekkert hvar þær vélar eru. Dæmi um þetta er "vinnustaðurinn" sem myndin sem hér fylgir er af, slóðin er http://200.76.65.165/view/index.shtml. 

OK þá fer meður hingað t.d. á ip-adress slær in ip-töluna og vola! WorkPlaceIP


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband