Leita í fréttum mbl.is

Easy come, easy go...

flying_money.jpgMér hefur verið sagt að Róbert Wessman hefði fjármagnað þessi kaup með láni sem á bak við voru ekki aðrar tryggingar en veð í bréfunum sjálfum. Þetta vill segja að hann þurfti ekki að leggja mikið (ef þá eitthvað) út. Hversu rólegur hann var þegar honum varð klúðrið ljóst - tja þetta er sárt, en ekkert sem maður missir svefn yfir - rennir stoðum undir þessa sögu.

Ég hef heyrt það frá ýmsum að tímasetning viðskiptana hafi ekki verið tilviljun, heldur að hún hafi tengst hugsanlegri sameiningu við Byr.

Önnur stór viðskipti með hlutabréf, í Landsbankanum í þetta sinn, eru talin enn áhugaverði. Þar á aðili að hafa keypt fyrir 9 milljarða, fjármagnað með láni með tryggingu í bréfunum. Sem þýðir þá að þeir sem seldu voru komnir með aur í vasann; voru "off the hook". Kaupandinn "dífoltar" svo á lánasamningnum og "allir" eru voða, voða kátir.

Nú svo er það þetta dæmi með Arabíu hristinginn, hann ku róa því öllum árum þessa dagana að þurfa ekki að reiða fram 25 milljarðana fyrir pappírana í Kápþíng.

Svo er það Súggarinn sem keypti í Woolworths, hans aurar eru bara týndir.

Ljóst er að það eru margir milljarðarnir á ferð og flugi í þessum hræringum öllum. Spurningin er kannski hvar þeir lenda svo að lokum.


mbl.is Íhugar að fara í mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ógeðslega rotið kerfi sem við búum í!!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 19:58

2 Smámynd: Gústaf Níelsson

Við verður að gæta þess að ljá ekki öllum sögum vængi. Margt heyrir maður, en ekki er víst að allt sé satt - ekki satt?

Gústaf Níelsson, 19.10.2008 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband