Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Ofbeldi, tölvuleikir og Netið - eitt

1. kapítuli.

Það er vont að lesa um og heyra og sjá allt þetta ofbeldi sem á sér stað í okkar litla og annars samhuga samfélagi, það nálgast að vera daglegt brauð að einhver hryllingur berist manni í fjölmiðlum.

 

Mikið er talað um aukna tíðni líkamsárása og að vísbendingar séu um aukna hörku. Það er ráðist á ókunnugt fólk án nokkurrar ástæðu og það barið - „af því bara”. Vopnum er beitt, hnífar og kylfur eru á lofti.

 

Sjálfur er ég viss um að í sögulegu samhengi lifum við á tímum lítils ofbeldis og kem örugglega inn á það síðar í þessum skrifum mínun.

 

Fólk, lært sem og leikmenn, ræða þetta mikla vandamál og leita skýringa. Logandi ljósum.

 

Um sumt eru allir sammála: ástandið er slæmt, talað er um firringu í samfélaginu, aukna firringu þá. Dóp er stórhluti vandans, það telja flestir. En lengi hefur verið og í auknu mæli er bent á tölvuleiki og um tíma hefur Netið setið á sakabekknum líka.

 

Nýleg dæmi um innlegg í þessa umræðu er t.d. að finna í prédikun biskups frá því á nýársdag, en þar kemur fram að sú skoðun biskups að tölvuleikir séu stór hluti vandans. Annað dæmi er að ungur maður í hagsmunaráði framhaldsskólanna er viss um hvar sökina er að finna -„Ofbeldisvæðingin sem kemur í gegnum Netið er orðin augljós ...“ segir hann. Dæmi í þessa veru eru mikið fleiri en ég gef mér ekki tíma í að elta þau uppi til þess að hlekkja þau hér við.

 

Það að benda á samband milli aukins ofbeldis (eins og slagsmála, líkamsárása), ýmissar annarrar afbrigðilegrar hegðunar og tölvuleikja hefur fylgt okkur í um tvo áratugi. Áður en tölvuleikir voru dregnir inni í umræðuna var talað um ljótar kvikmyndir og illt efni í sjónvarpinu og einhvern tíma litlu fyrr þótti rokkið líklegt til þess að afvegleiða ungar sálir. Firring sem það nú var.

 

Það er margt sem getur spilt unglingum og komið þeim í vanda. Kíkið endilega á þessa grein sem birt var í Mbl. 8. marz 1979 - drep fyndið, nánast súrrealískt. Hér er verið að mála skrattann á vegginn, alla leið upp og niður. Í þetta sinn er verið að tala um spilatækjasal af gömlu sortinni á borgarstjórnarfundi.

 

Það hvarflar að mér að mótamæla þessum „aðdróttunum” um að tölvuleikir, bíó, sjónvarp og Netið eigi þátt í auknu ofbeldi í þjóðfélaginu. Þetta er eins og hver önnur kredda. Bull.

 

Og vitleysa.

 

En ég er fyrir rök og umræðu byggða á rökum. Ég er leikmaður í umræðu um ofbeldi og það er langt því frá að ég hafi kynnt mér málið eins ýtarlega og skildi, ég kýs því að taka mildari stöðu. Segi því; að vel megi vera að þessar tegundir nútíma afþreyingar eigi einhvern þátt í að ýta undir ofbeldishegðun en ég stend fast á því að þar er ekki orsakanna að leita. Því fer fjarri.

 

Víðsfjarri.

 

Þessi skrif mín eru til varnar blessarðri tækninni. Vona að sú verði raunin.

 

Áður en ég held áfram þá vil ég segja að mér finnst orðið ofbeldi vera ofnotað - svona nánast eins og það sé beitt ofbeldi.

 

Ofnotkun fylgir deyfð. Deyfð er slæm.

 

Hjarn er snjór og mjöll er snjór, en mjöll er ekki hjarn og hjarn ekki fönn. Ég vil hvetja þá sem fjalla um þessi mál sérílagi á opinberum vettvangi að einfalda ekki um of mál sitt. Ofbeldi er ekki bara ofbeldi og er jafnvel stundum ekkert ofbeldi.

 

Í grein um ofbeldi í læknablaðinu er að finna skilgreiningu á ofbeldi, mér finnst hún góð:

Ofbeldi er vísvitandi beiting líkamlegra yfirburða eða valds, með hótunum eða beinni valdbeitingu, gegn sjálfum sér, annarri manneskju eða gegn hópi eða samfélagi, sem annaðhvort leiðir til eða er líklegt að leiði til slysa, dauða, sálræns skaða, þroskaskerðingar eða annars missis."

 

Time out! Þótt fyrr hefði verið...

 

Læt þetta duga í bili, klára þessa hugsun á morgun eða hinn.


Lífsnauðsynleg aðgerð kostar 100kr, en samt er hikað!

 

Ákvarðanafælni ráðamanna þessa lands ríður ekki við einteyming! Það er verulega þreytandi að stjórnvöld skulu sí og æ hökta og hiksta þegar taka þarf einfaldar - til þess að gera - ákvarðanir.

 

Fyrir okkur Íslendinga er 100 kall á dag, á mann, í eitt ár, um það bil 11 milljarða (300K * 100 = 30.000K * 365 = 10.950.000K). Eða circa það sem við þurfum til þess að klára tvær lífsnauðsynlegar framkvæmdir.

 

Þessar framkvæmdir eru tvöföldun Suðurlandsvegar frá Reykjavík að Selfossi  og nýr ljósleiðari til annað hvort UK eða USA.

 

Reyndar tæklaði Sturla þetta mál með ljósleiðarann milli jóla og ný árs nánast 100%, svona péerrlega séð. Fyrir þau í samgönguráðuneytinu kom þessi bilun í CANTAT-3 bara á besta tíma. Heppninn!

 

Ég veit ekkert um vegagerð eða rekstur og viðhald vega, en nú til dags lætur maður slík smáatriði ekki hafa áhrif á sig - eftir ofurlitla skoðun þá lítur bísniss planið fyrir Suðurlandsveginn svona út:

 

    Stofnkostnaður, lánsfé

    7000Mkr

    Vextir 3,5%

     

    Lán til 15 ára

     

    Fjármagnsk (afb. + vextir)

    620Mkr

    Rekstur og viðhald

    350Mkr

    Samtals kostnaður á ári

    970Mkr

    Bílar á dag

    11k

    Veggjald að meðaltali

    250kr

    Tekjur á ári

    1000Mkr

    Hagnaður

    30Mkr

 

Þetta er vissulega argasta einföldun, en ég hef sterkt hugboð um að eftir að fræðimenn væru búnir að WACC'a þetta og skatta, núvirða og jafnvel þávirða, jafnræða og Evróþvæla væri niðurstaðan sú að dæmið gengi upp. Sísona.

 

Þá að hinni lífsnauðsyninni. Menn eru að spá því að nýr ljósleiðari kosti um 3,5 milljarða. Ég bara nenni ekki að gúggla meira í kvöld þannig að biz planið fyrir botnglerið er byggt á enn veikari grunni en það sem ég gerði fyrir malbikið:

 

    Stofnkostnaður, lánsfé

    3.500Mkr

    Vextir 3,5%

     

    Lán til 15 ára

     

    Fjármagnsk (afb. + vextir)

    430Mkr

    Rekstur og viðhald

    150Mkr

    Samtals kostnaður á ári

    580Mkr

    Nettengingar á Íslandi

    110K

    Gjald á tengingu á dag

    14kr

 

Eða um 450 kall á mánuði per nettengingu að meðaltali! Grín.

 

Raunin yrði svo sú að einstaka netnotendur yrðu lítið eða ekkert varir við þetta. Enda eins gott, þar sem þeir taxtar sem við borgum eftir í dag eru þegar í efri kantinum. Það kæmi í hlut nýrra stórnotenda og neytanda nýrra afurða að greiða gjaldið þegar upp yrði staðið.

 

Ég er svo á því að ef að menn vanda sig, t.d. láta Sjóvá annast vegspottan og Bjögga Thór glerið þá megi gera þetta allt saman fyrir talsvert minna fé.

 

Til þess að koma í veg fyrir þennsluáhrif þessara aðgerða mætti leggja til að fresta framkvæmdum við göngin þarna fyrir norðan - eigum við að segja í svona 3 ár. Setjum þær á klaka og sendum verktakann í jobbið hérna fyrir sunnan. Að því loknu gæti hann haldið áfram að grafa göngin.

 

Þeir eru víst búnir að kroppa sig inn einhverja 300 metra frá austri og 600 að vestan (sem eru u.þ.b. 10% af heildinni). Mér dettur í hug að þangað til framkvæmdir hæfust að nýju mætti nota það sem búið er að grafa í túrisma. Selja fólki í hellaskoðun, halda hellaböll, hella tónleika, messur o.s.frv. Ég tel afar líklegt að þannig væri hægt að hafa meiri tekjur af göngunum en nokkurn tíma af veginum sem mun liggja um þau.

 

Þessi hugmynd er ákaflega góð, þó ég segi sjálfur frá. Sé hún svo borin saman við aðra nýlega hugmynd í svipaða veru þá er hún auðvita, já og líka, náttúrulega hreinasta snilld. Samanburðarhugmyndina átti "maður ársins" Ómars Ragnarssonar. Hún gekk út á að láta fullbyggða stíflu, virkjun af dýrari gerðinni og eitt stk. nánast fullklárað álver af stærri gerðinni standa autt um aldur og æfi.

 

Klikkun?


Neyðarkall frá vigtinni!

Ég var að lesa bloggið hans Ingva Hrafns um Saga Class á bráðamóttöku. Þarna segir hann frá tíðum heimsóknum sínum á Landsann og hversu góðar móttökur hann hefur fengið þar á bráðamóttökunni.

Ég get tekið undir með Ingva, hef sjálfur nokkrum sinnum komið þarna bæði í akjút málum sem aðstandandi og svo í sambærilegum málum og hann - nema hvað það var gallblaðran sem öskraði hjá mér.

Í skoðun læknis þá, þar sem hann spurði mig spjörunum úr - ég var í alveg gasalega smart átfitti, svona risavöxnum LSH nærbuxum og kósý slopp frá sama merki. Hvað um það, spurningarnar voru þessar klassísku, þar með; "Reikir þú?". Jú jú það gerði ég. "Aumingi" heyrðist þá í doksa, hann krotaði eitthvað á blaðið sitt áður en hann vatt sér í næstu spurningu.

Ég held ég hafi blóðroðnað, skömm mín var slík. Ekki eins og ég hafi ekki heyrt þetta eða svipað margoft - frá vinum, kunningjum og sjálfum mér. "Aumingi" afl orðsins þá og þarna var ótrúlega magnað.

Þennan dag misstu bæði R.J. Reynolds Tobacco Company og Ríkissjóður góða mjólkur kú.

Af gallblöðrunni er það að segja að hún fékk að kenna á þessu rugli í sér. Veinar ei meir.

Síðan eru liðin 2 ár og 16K.

Fór á vigtina í gær, hún sendi frá sér neyðarkall. Þetta varð til þess að vegslóðinn norðan við Rauðavatn fékk að kenna á því í kvöld - hann tók á sig þung spor. Hefðu mátt vera fleiri, Andri og Zorró tókum skokkið með mér og fundu vart fyrir mæði, á meðan að ég stóð á öndinni.

Á vigtinni stóð STÓRUM RAUÐUM stöfum 112.

Var hjá Kalla í Esju seinnipartinn í dag, átti þar leið framhjá stóru vigtinni - þetta er alvöru græja svona "industrial streingth" tölvudæmi, ræður sennilega við naut á fæti. Þar var fyrri mæling staðfest.

Persónulegt met hefur litið dagsins ljós, óvelkomið vissulega en ótvírætt met. Staðfest. Þetta er met sem ég ætla mér að tryggja að fái að standa um ókomna tíð.

Annars er ég aumingi.


12% hjóna voru Nethjón

Ég er að skrifa smá hugleiðingar er varða tæknistefnu okkar Íslendinga, við þá iðju hef ég rekist á fjölmargt athyglivert. Til dæmis þessa tölfræði á McKinsey Quarterly:

  • 12% nýrra hjóna í BNA árið 2005 kynntust á Netinu.
  • Meira en tveir milljarðar nota farsíma í dag.
  • Við sendum meira en 9 trilljónir t-pósta á ári.
  • Gerðar eru um milljarður leita á Google á degi hverjum (og er helmingur þeirra á ensku).

Nú er bara að vona að við gerum betur á árinu 2007.

 

Árið öll.


« Fyrri síða

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband