Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Heimspeki

Framtíðin hefur ekki, hvorki fyrr né síðar, verið núna!

Framtíðin er ekki núnaSkylda hverjar kynslóðar er að þenja ramman, tosa hann og toga; skila striganum, myndfletinum, stærri og auðugri af litum, formum og táknum til þeirra sem á eftir koma.

Í gegnum aldirnar hefur þetta gengið eftir, en þó þannig að við burðumst með reynsluna, mistökin - vítin til að varast. Er það talin dyggð.

Okkur (mönnunum) er kennt að læra af reynslunni; við innbyrðum söguna og lærum. Lærum að gera eins í dag og í gær.

Vegna þess að við ákvarðanatöku er ávalt miðað við fortíðina; "Sagan hefur kennt okkur ...", "Svona hefur þetta alltaf verið gert.", "Svona hefur þetta aldrei verið gert", "Í okkar bransa er þetta gert svona", "Reynslan af þessu ..." o.s.frv., þá eigum við erfitt með að fjarlægjast syndir feðrana.

Vissulega kann brennt barn að forðast eldinn, en við förum í stríð, eyðum, drepum! Þegar kemur að stóru myndinni er vart hægt að merkja að lærdómur hafi verið dreginn af mistökum; þar fylgja þau okkur, stig fram af stigi. 

Helsi næstu kynslóðar, á hverjum tíma, er að gera viðmið þeirra sem á undan hafa gengið að sýnum, án nauðsynlegrar leiðréttinga. Þetta gildir um hvaða skipulag sem er (fyrirtæki, áhugafélög, þing, þjóðir, ...).

Við leysum ekki viðfangsefni dagsins í dag, hvað þá framtíðarinnar, með mistökum fortíðarinnar.

Getum við sagt skilið við fortíðina og núið, stigið til hliðar; af einteinung sjálfvirkninnar, vanans? Er það kannski það sem kallað er að "hugsa út fyrir rammann"? Frelsi til orðs og athafna, frelsi frá viðjum vanans, frelsi frá reynslunni, frelsi er lykillinn, grunnurinn að nýrri hugsun.

Er hægt að læra af framtíðinni?

-oo0oo-

Ástæður:

Ástæða þessarar hugrenningar er sú að okkur (þjóðinni) hefur ekkert gengið með endurreisn samfélags okkar frá hruninu. Ástæða þess, kyrrstöðunnar, reksins, afturfararinnar, er sú að leysa á úr vandanum með skírskotun til reynslunnar. Vandamál bankana á að leysa með aðferðum bankanna. Vandamál fólksins, skuldarana, á að leysa með aðferðum lánadrottnanna. Vandamál ríkiskassans á að leysa með aðferðum skattheimtumannanna. Nýsköpun á að hvetja í gegnum miðstýrð batterí, sem væntanlega eru hokin og þjökuð af reynslu. Umferðavanda á að leysa með meira malbiki. Báknið skal flysjað af þeim sem lifa á bákninu, eru báknið. Viðskiptajöfrar með allt niðrum sig eru látnir halda halda áfram vegna reynslu sinnar, væntanlega með allt niðrum sig. Strý verður ekki troðið nema Stebbi troði strý!

Ég hef enga trúa á þessum viðbrögðum, enda trúi ég á framtíðina, ekki fortíðina ... samt er ég maður hefða, íhaldsmaður. 

Áfram veginn ... inní framtíðina!


Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband