Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Golf

Dýrtíðin, golfið og ég

golden_golf_ball_1.jpgTextanum hér að neðan klambraði ég saman eftir að hafa lesið athugasemd á net spjalli kylfinga, athugasemdin fjallaði um að sá golfbloti sem ég leik aðallega með og vill alltaf leika með kostar nú um 1.000 krónur íslenskar.

 ---oo0oo--- 

Ég var eitthvað að stússast í tiltekt um helgina, stússið var eins og oftast áður í hálfgerðu fússi - tiltektarstúss í fússi er einfaldlega minn stíll. Enda eitthvað það allra leiðinlegast sem ég kemst í. Hvað um það, best að koma sér að efninu (koma boltanum í leik).

Í tiltektinni var ég að raða ýmsu dóti (drasli) inni bílskúr. Ég strauk m.a. veiðigræjunum, góðar minningar hrísluðust um mig, það var sem ég heyrði sönginn í flugulínunni þegar átjánpundarinn velti sér á kollý doginn minn og rauk niður breiðuna. Hvergi er betra að vera en á Íslandi á fögrum sumardegi. Þetta var reyndar snemma um morgun, þarna sem ég setti í þennan stóra, þetta var í .... hum, látum þessa sögu bíða í bili. En ókey, þegar koma að því að laga til í golfgírnum báru tilfinningarnar mig næstum ofurliði. Ég spýti á feisið á drævernum og strauk yfir það - þessi snerting varð til þess að allar minningagáttirnar opnuðust samtímis. Fljótlega varð þó ein minning öðrum sterkari: minning frá fyrsta teig í Holtinu. Ég búinn að slá, flottur bolti klýfur loftið, hækkar sig fyrstu 210 metrana og sveigir lítið eitt til vinstri, nett dro, hann lækkar hratt flugið og kemur niður við brekkuna vinstramegin við flötina kastast einu sinni upp og rúllar síðan niður brekkuna inná flötina í áttina að holunni. Áfram, gó bol gó! Boltinn strýkst við stöngina, hoppar upp af holubarminum fjær og stöðvast tvö fet framyfir holuna. Damn hann var aðeins of fastur - hefði átt að tía upp metir aftar. Atburðurinn minnir mig á að ég þarf að æfa lengdarstjórnun fyrir næsta sumar.

Ísland er best og langbest á fögrum sumardegi og allra best á golfvellinum.

Aftur inná braut - hanga á leikskipulaginu. Sumsé í þessari tiltekt fann ég nokkra tugi golfbolta og bætti þeim í poka og töskur sem fyrir voru næstum fullar - nokkur hundruð golfboltar í það heila. Í hillunni þar fyrir ofan eru nokkur dúsín af nýjum boltum, þarna kennir ýmissa grasa en mest er um ýmsar gerðir af Tætlest - þar á meðal eitt og hálft dúsín af Pró V1 og V1*. Samskonar bolta og ég var með í högginu sem ég lýsti áðan.

Talandi um þá sögu þá get ég bætt við að eftir að ég hafði smurt próvaffinum í holu fyrir léttum erni - þarna á fyrstu - það var eilítið hægri vinstra brot í línunni sem ég hafði ekki miklar áhyggjur af, enda var ég með í huga ítroðslu beint í'ana miðja. Flott byrjun. Ég skundaði sem leið lá uppá annan teig - var að spila af hvítum - reif upp sjöuna og bússnelinn. Um leið og flaggið var komið í holu skaut ég með bússaranum á lengdina, svarið var 157. Skaut aftur og fékk lengdina staðfesta deffínettlý 157 metrar. Lagði kíkinn niður við hægra teigmerkið. Af gömlum vanan skóf ég með þellinum úr grófunum á blaðinu - þetta var óþarfi, enda kylfan hreinni en allt sem hreint er. Ég setti þöllinn á milli vísifingurs og löngutangar og boltann í lófann þannig að þegar ég þrýsti hendinni á móti sverðinum á teignum þá ýtti boltinn þellinum niður. Ég létt boltann rétt standa upp af sverðinum, rétt úr mér og um leið og ég setti á mig hanska gekk ég aftur fyrir boltann. Nú sá ég fyrir mér höggstefnuna. Fann fyrir hægri hafgolunni, sem strauk mér létt um vinstri vangann, eiginlega beint á hlið, en þó aðeins með. Pinninn: uppi hægramegin, töff staðsetning. Mitt mat: vonlaust að vera of langur eða hægramegin fyrir utan - málum þessi svæði rauð, bannsvæði - þá betra að vera of stuttur í glompunni. Mín áætlun: tía upp hægramegin, miða á miðja flötina, slá svo með fallegu feiti, lenda uppá pallinum sirka pinn-hæ, stutt hopp fram og fá svo kannski metir til baka í snörpu spóli. Mín framkvæmd: tók aðeins niður á gripinu, skveraði mig af, full sveifla, gott tempó. Ég fann að þetta var að gera sig....

Það þarf náttúrlega ekkert að spyrja hvernig eftirfylgnin með þessari visjón var, ég meinaða, það söng í stönginni þegar próvaffinn spólaði sig til baka, klank, ég stóð á öndinni - var 'ann í? Öskur og læti af þriðja teig. Nær: félagarnir hoppandi og skoppandi við hliðina á mér. Ég: reif upp bússnelinn og ... og ... fjandans, þarna var hann ... ég sá hvar boltinn lá á brúninni, hálfur á bak við stöngina. Við erum að tala um fokking millímetra, andskotans ör... eitthvað helvíti lítið.

Ókey, ókey aftur inní í ískalt íslenskt svartnættið og í skúrinn heima, aftur að tiltektinni og vonda skapinu. Fússinu. Jamm, þar sem ég stóð og horfði (eftir að hafa þurrkað tárin, sem fagrar minningar höfðu framkallað, úr augunum) á þennan glæsilega sjóð af próvaff boltum, sem þrátt fyrir að hafa verið keyptir í okurbúllunni á Miðnesheiði eru einhver bestu kaup sem ég hef gert. Ég hugsaði með mér að sennilega myndi það þykja rosalega eitthvað tvöþúsundogsex að spila með þeim næsta sumar. Leit niður á gólfið, á pokana og töskurnar og hugsaði: það hlýtur að vera hægt að finna slatta af vel nothæfum boltum þarna, ég meina Toppflæt-menn hafa verið að gera góða hluti undanfarið, minnir mig að einhver hafi sagt einhverstaðar og sama má segja um marga aðra framleiðendur. Allt saman fínir knettir barasta, próvaff er þegar betur er að gáð ekkert möst. Ofmetnir skal ég segja ykkur.

Eftir að hafa beðið í dágóða stund þarna á annarri og þurft að horfa uppá félagana bauka og brölta við bógeyin fékk ég auðvita bördý, hæfæv við félagana og áfram haldið, prílað uppá þriðja teig. Höggsýn mín var skýr, smúðth dro, lending í vinstrikanti brautarinnar. Lengd: tæpir 290 metrar. Pinninn hægra megin á flötinni ...

Fyrir þá fjölmörgu sem vilja rifja upp þennan hring með mér bendi ég á síðuna www.dream-on.com/mybestround þarna er farið í gegnum hringinn högg fyrir högg, bæði af mér auk þess sem margir helstu golfkomentteitorar og spjallspekingar rökræða leikskipulagið og nánast hnökralausa framkvæmd þess.

Kv
V.

ES: Til sölu eru nýir golfboltar, um er að ræða 12 stk. af Pro V1 og 6 stk. Pro V1* í óriginal umbúðum og allt. Verð: tilboð. Lægsta boð: 950kr. (svart)
ES.ES: Það er rétt hjá Snike, næsta sending verður svo mikið mikið dýrari.


Þegar neyðin er stærst ...

soren_kjeldsen_landsbanki_europeantour_719372.jpgSøren Kjeldsen er danskur kylfingur á Evrópsku mótaröðinni, hann hefur verið á mála hjá Landsbankanum í nokkur ár (sjá LÍ merkið á peysunni hans, smella á myndina til að stækka. Hefur svo sem ekkert verið að gera stórkostlega hluti á þeim ellefu árum sem hann hefur verið að harka á túrnum en hann brá undir sig betri fætinum á Valderrama (við Sotogrande, á Spáni) um liðinna helgi. 

Mér dettur í hug að þegar Søren blessuðum varð það ljóst að aðalbakhjarlinn hans var farinn á hausinn og ekkert útlit fyrir að hann fengi aura úr þeirri átt að þá væri að duga eða drepast. 

Hann dugði. 


mbl.is Lykilmenn skulduðu 80 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Golf, gæði valla og gleði

golf on snow 01Í dag átti ég innlegg á spjallþráð á kylfingur.is, sem svo leiddi til þess að ég fékk spurningu til baka sem mér finnst vel svara verð þó sendandinn sé nafnlaus. Áður hef ég lýst skoðun minni á því að nota umræddan spjallvef, en ég tel hann ónothæfan fyrir "alvöru" umræðu (ef einhver hefur áhuga á því að skoða hvers vegna þá má sjá grein um það hér).

Allt að einu, ekkert er sjálfsagðara en að taka þessa umræðu um ástand og gæði golfvalla, enda getur það vart orðið til annars en einskins (ekki gerir slík umræða ástand valla verra, eða hvað?) en hitt er svo ég kýs að flytja mál mitt hér frekar en þar.

Tekið af kylfingur.is af þræði þar sem verið er að ræða ástandið á Grafarholtsvelli (sjá hér):

Frá: Viggó völlur Viggósson11.6.2007 11:54:05
 Ég ætla mér ekki að bera í bæti flákann fyrir Grafarholtið, aðstæður voru erfiðar í maí og holtið þolir einfaldlega illa slæmt tíðarfar - ekki frekar en flestir vellir aðrir, nú eða ég sjálfur.

Grafarholtsvöllur er þó ekki verri en það að hann er hægt að skora sómasamlega, sbr. að Halli Heimis kláraði dæmið í gær á 67 höggum, Pétur Óskar á 69 og fleiri kylfingar léku bara býsna vel.

Til dæmis skilaði Siggi Pé sér inn á 76 höggum, sem auðvita verður að teljast frábært fyrir mann á hans aldri og með hans bakgrunn. Síðan er það náttúrlega bara ótrúlegt, já og STÓRkostlegt í leiðinni að Sótarinn skuli hafa slegið einungis 77 högg, þráðbein flest og íðilfögur að ég tel líklegast.

Sameiginlegt eiga þeir það svo Siggi (35 / 41) og Sótarinn (37 / 40) að frekar dróg af þeim er líða tók á keppnina - slíkt þarf þó ekki að koma á óvart ef menn líta á prófílinn á þeim!!!

Aftur að vellinum. Kylfingar verða að einfaldlega að passa sig á því að láta ekki ástandið á stóra vellinum hafa neikvæð áhrifa á það sem er að gerast á litla vellinum (sem er þarna á milli eyrnanna, hjá flestum altjént).

Kv.
Viggó
Frá: En svon í11.6.2007 17:20:19
 alvöru Viggó, hvað finnst þér um grínin ? Er gaman að spila við þessar aðstæður ?
Frá: sundsprettur12.6.2007 00:13:21
 Ég skellti mér í holtið í dag. Mikið rosalega er völlurinn orðinn góður, flatirnar rennisléttar og mjúkar, taka vel við boltum. Annað greenið var smá sandað en það bætti bara rennslið. Teigarnir voru til fyrirmyndar og brautirnar nýslegnar og fallegar. Ég vil meina að flatirnar í holtinu eru þær bestu í Íslandi í dag.
Frá: Svingur12.6.2007 01:07:19
 Hvaða bull er þetta hér!
Flatirnar eru langflestar hrein hörmung í Grafarholltinu, hopp og skopp og sandur þar á milli. Árferðið ekki gott og völlurinn er hreinlega slæmur núna.
Vona samt að hann komi til með betri tíð mér þykir hann einn sá skemmtilegasti að spila á góðum degi

Þessu vill ég svara með þessu: 

"sundsprettur", ég vildi óska þess að ég gæti tekið undir og kvittað upp á þitt mat á aðstæðum í Grafarholti. Sjálfur var ég þar í kvöld og er mitt mat að við eigum en talsvert í land, en minni á að hlutirnir gerast hratt þessa dagana. Ég kíkti að vísu aðeins á 7 flatir, en tel mig vita nokk hver staðan er á vellinum heilt yfir. Jákvætt viðhorf þitt er þó til fyrirmyndar.

Það er hægt að taka undir það sem "Svingur" segir, og þá sérstaklega "einn sá skemmtilegasti að spila á góðum degi".

Ég gef mér að flestum finnist það sama og mér (og þeim sem skrifar "En svon í" innleggið) í þessu efni, flatirnar á völlum GR eru heilt yfir frekar slæmar og það er hundfúlt. Það þarf hins vegar ekki að þýða sjálfkrafa að leiðinlegt sé í golfi, þó auðvita blasi við að skemmtilegra er í golfi þegar flatir eru góðar - um þetta þarf ekkert að munnhöggvast. Yfirhöfuð þá líður okkur best á vel hirtum góðum golfvöllum og það er einmitt það sem við (GR'ingar) viljum bjóða upp á. En því miður getum við ekki boðið félögum og gestum okkar upp á betri aðstæður þetta vorið en raun ber vitni.

Sjálfur er ég þannig víraður að ég á það til að láta svona hluti (ósléttar flatir, sand á fötum, ný gataðar eða skornar flatir, o.s.frv.) fara svolítið í taugarnar á mér, ég skil því vel sjónarmið í þessa veru. Í mínu tilfelli reynir þó sérstaklega á þetta óþol mitt þegar ég kem á velli í útlöndum, oftast eftir talsvert ferðalag, með upp tjúnaðar væntingar og ný búinn að skilja við slatta af Evrum í flatarfé.

Ef þú ert að spyrja mig hvort að mér finnist ástandið á völlunum (flötunum) okkar óásættanlegt, þá myndi ég vilja svara því þannig að ég telji spurninguna vera óréttláta. Ef ég svara henni eins og mér býður þ.e. játandi, þá virðist felast í því ásökun. Við hvern er þá að sakast? Vallarstjórana, formann vallanefndar (sem er ég í tilfelli GR) eða ef til vill formanninn? Því miður er það ekki svo.

Einhverjum kann að finnst það undarlega að orði komist hjá mér að segja "Því miður". Verkefnið að kom völlunum í gott stand væri talsvert auðveldara ef við gætum verið viss um að vandamálið lægi í einhverju ákveðnu, eins og til dæmis því að menn væru að bulla eitthvað í umhirðu þeirra. Þá hefðum við eitthvað í hendi og gætum kippt því í liðinn, en svo er ekki - því miður.

Fjórir megin þættir hafa áhrif á ástand valla: uppbygging, umhirða, umferð og umhverfisþættir. Hér ætti ég að bæta við fimmta u-þættinum sem er umgengni (boltaför, torfuför, hjólför og önnur för). Sennilega er það svo grunnuppbygging vallar, umhverfisþættir eins og t.d. hæð yfir sjávarmáli og  veðrið sem hafa mest að segja um ástandið - og þetta eru einmitt þeir þættir sem við höfum ekkert með að gera.  

Golf/grasvallafræði eru líklega álíka mikil "ekki vísindi" og þau eru vísindi. Ég er sannfærður um að þetta fag ("golfvallafræði") hefur tekið umtalsverðum framförum hér á landi s.l. 5 - 10 ár, en ég er álíka (ef ekki meira) sannfærður um að við sjáum ekki en til lands í þessum efnum - að við erum nánast enn á byrjunarreit þrátt fyrir all góðan sprett. 

Þetta er orðið gott mikið lengra en ég ætlaði mér. Lætt þetta duga í bili.


Golf og siðferði

golf_is_greatAtvik eins og það sem sagt er frá í frétt mbl.is er langt frá því að vera einsdæmi í golfi, slíkt er vel þekkt bæði á mótum atvinnumanna og áhugamanna. Siðareglur og siðferði skipta höfuðmáli í golfi, það væri vart hægt að keppa í golf ef kylfingar færu ekki eftri þeim, þessi staðreynd er eitt af mörgu sem gerir golfíþróttina sérstæða.

Það er m.a. af þessari ástæðu að ég fullyrði að engin íþrótt tekur golfi fram sem hentug uppeldisíþrótt. Golf reynir á líkamann og er holl og góð hreyfing, en það sem kannski skiptir börnin ekki síður máli er að golf reynir mikið á andlegaþáttinn. Í golfi alast börn t.a.m. upp við að vera dómarar í eigin sök, þeim er sýnt þetta traust frá upphafi.

Golf er íþrótt þessarar aldar.


mbl.is Sigurvegarinn dæmdi sjálfur á sig víti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgir Leifur er á réttri leið

biggi leifurDæmið gekk því miður ekki upp hjá Bigga í Indónesíu. En hann er á réttri leið, það er gríðarlega mikilvægt að ná í gegnum niðurskurðinn.trophy-claret-jug-british-open

Ef leikur hans er skoðaður þá sést að hann er að gera fína hluti, er að fá fugla, 10 stk. á þessu móti. Hefðu svo sem mátt vera 2 - 3 í viðbót (ernirnir munu detta inn) en fuglar eru greinilega ekki vandamál hjá honum. Fjöldi skolla er svo sem ekkert út úr kortinu en þeir voru 10 eins og fuglarnir. Ef hann kemur þessu niður í svona 8 þá verður hann að dansa. En svo er það þetta bévítans double sem hann bjó til svo ekki sé talað um and.. tripið sem hann tók þarna á 9. holu fyrsta daginn. Þetta þarf hann að útiloka - sem hann gerir örugglega. 

Ég veit að Biggi veit að hann getur þetta, það er aðalmálið. Hann mun setja saman fína fjóra hringi fljótlega sem munu skila honum inn fyrir topp 20. Svo tekur hann dollu einn góðan veðurdag.

Stattu þig strákur. 

ES. Bigga blogg er hér 


mbl.is Slakur lokakafli Birgis skilaði honum í 59. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband