Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011

Af stórmennsku og smá reikningum ...

Ég velti fyrir mér orðum Steingríms J., þar sem hann í ræðustól Alþingis sagði: "... það er siðaðra manna háttur að leysa deilumál ef það er hægt með samkomulagi, menn verða stórir af því að ljúka málum með samkomulagi ...", ég get svo sem tekið undir þetta, betra er að klára málin í sátt ef hægt er, en í tilfelli Icesave þá er málið einfaldlega of stórt fyrir það að vera stór, of stórt til þess að hlusta ekki á þjóðina og fara gegn vilja hennar.

Annað sem ég velti fyrir mér í þessu sambandi; ætli að Steingrímur J. hafi mátað hugmyndafræði sína um stórmennsku við gjörðir Umhverfisráðherra, tja nánast dags daglega? Hún gefur kannski ekkert fyrir það að vera stórmannleg?

Reyndar er það svo að í þessari stuttu ræðu sinni (Steingrímur var að gera grein fyrir atkvæði sínu) tuggði Fjármálaráðherra tuggu sem ætla mætti að allur safi væri þorrinn úr, þetta er tuggan um reikninginn sem vonandi er svo lítill að það sé nú lægi að taka'ann eða eins og hann orðaði þetta: "þar sem þetta verður líklega ekki stærsti reikningurinn sem að við berum vegna hrunsins, vonandi aðeins fáeinir tugir milljarðar króna ... "!

Er þetta hægt?

(svo er formaðurinn minn með á þessum báti .. æi) 

Áfram veginn ... þjóðveginn!


mbl.is Icesave-umræða í 208 stundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andstæðingar kjosum.is og lýðræðis!

Ljóst er að árangur (vinsældir) kjosum.is fer verulega fyrir brjóstið á fylgismönnum ríkisstjórnarinnar. Reynt er að gera kjosum.is tortryggilegt á allan hátt, auk þess sem gerðar hafa verið árásir á síðuna með það fyrir augum að gera hana óaðgengilega. Þetta er allt saman ákaflega dapurlegt og á plani sem ég kem ekki nálægt. Þeir sem fremstir fara í flokki árásar- og niðurrifsmannanna hafa hugsanlega ekki brotið lög, en eru lélegir pappírar eigi að síður.
Af mínu plani. 
  • Ég er ekki tengdur kjosum.is, þ.e. ég hef ekki komið að uppsetningu, né rekstri hans á nokkurn hátt. 
  • Ég er fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslum, en tel nauðsynlegt að setja lög um framkvæmd þeirra sem allra fyrst. 
  • Ég tel að ef meira en 5% kosningabærra manna óski eftir að kosið sé um mál þá skuli það gert, enda uppfylli málið að öðruleyti skilyrði.
  • Ég tel að rafrænar kosningar séu eina vitið horft til framtíðar.
Varðandi kjosum.is þá spyr ég fyrst: í ljósi þess að nýleg könnun MMR sýnir að 62% þjóðarinnar vill setja Icesave 3 í þjóðaratkvæði hvers vegna fara þá þeir sem eru á móti því (og kjosum.is) af límingunum þó rúmlega 30.000 hafi skráð sig (þegar árásirnar og spuninn hófst fyrir alvöru)? Hvað getur verið tortryggilegt við þennan "árangur"?
Hvað er hægt að gera í söfnun sem þessari annað en að sannreyna kennitölur og loka á ýkta notkun frá sömu nettækjatölu (IP addr.) ... eitthvað fleira?

Ég fæ ekki séð hvað annað er hægt að gera, nema að nota sannreynd auðkenni - en slíku er ekki við komið í dag.

Það að hafa staðfestingu í gegnum tölvupóst hefur litla þýðingu enda auðvelt að svindla á því, þó svo vissulega geri það svindlurunum eitthvað erfiðara fyrir.
Nýlega hafa verið tvær stórar undirskriftasafnanir (sem ég man eftir), ég kannast ekki við að þar hafi verið beitt auknu öryggi. Það var í það minnsta ekki þannig í upphafi Indefence söfnunarinnar og ekkert öryggi var í söfnuninni á orkuaudlindir.is - þar var, og er allt opið, hægt að: nota rangar kennitölur, kennitölur barna, rugl nöfn og netföng, hægt að skrá sömu kennitöluna ítrekað ofl.

Aðstandendur kjosum.is hafa sagst ætla að gera sitt til þess að hreinsa skráningarnar. Eftir að kosið hefur verið á að kemba skrána með samkeyrslu við þjóðskrá, en auðvitað sannar það ekkert um hvort að viðkomandi hafi sjálfur og það af fúsum og frjálsum vilja skráð sig. Þá er ýtrasta ráðstöfun eftir, en sú er að taka slembiúrtak úr skráðum kennitölum og gera áreiðanleikakönnun. Fjöldi skráninga væri leiðréttur í samræmi við niðurstöðu könnunarinnar. 

En gott fólk, í hvað undirskriftarsöfnun er hægt að koma í veg fyrir svindl? Það að nöfn þeirra sem síðast skráðu sig skuli vera sjáanleg er fölsk öryggisráðstöfun.
Það að hægt sé að athuga hvort að ákveðin kennitala sé skráð gengur ekki upp af augljósum ástæðum. 
Óáreiðanlegast af öllum söfnun er götusöfnun, þar sem fólk á förnum vegi er boðið að skrá sig. Úrvinnsla úr slíkri söfnun er eðli máls samkvæmt mjög erfið. 
Þeir sem halda því fram að aðrar undirskriftasafnanir hafi verið "betri" þurfa að sýna fram á það, ekki dugir að slengja því fram án stuðnings.

Varðandi orð Teits þar sem hann segir: "... dularfullri umferð þegar langstærstur hluti Íslendinga er stein-sofandi", ég veit ekkert um umferðina á kjosum.is en get upplýst að skráningar á 7 klukkustundum (frá ca. 01:00 til 08:00) s.l. 4 nætur voru sem hér segir:
Nótt Fjöldi
2. 349
3. 294
4. 301
5. 545

Mér sýnist fljótt á litið að næturnar hafi hingað til "gefið" um 5% "atkvæða". Er 5% á 29% tímans óeðlilegt? Ég held ekki.

mbl.is Árásir á vefsíðu tilkynntar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vor sterki æskuher ...

Nú falla öll vötn til Bessastaða. Hrikalega góður gangur hefur verið í undirskriftum á kjosum.is í dag (887 á sl. klst.)!

Ellefu þúsund sterkir munu í dag fylkja sér með þeim sextánþúsund sem áður höfðu skipað sér í lið barnanna okkar.

Nú er sterkur vor æskuher.

Um leið og við erum að berjast fyrir okkar eigin kjörum og stolti þá erum við að stofna her til þess að verja börnin okkar gegn oki fortíðar.

Áfram veginn ... greiðan veg komandi kynslóða!


mbl.is Um 25.000 á kjósum.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherrann sá, kvakkandi og kjamsandi sem fyrr ...

dauðans alvara kveður dyra
doðinn hrífur þjóð, dagar líða

komdu, taktu mig
þrælsótti þrýstir, samningar bíða
ná senn þjóðarinnar eyra

í uppgjöf, taktu mig
við skelfingar skuldaklafa mátt mig reyra
særðan og nauðugan níða

alvarlega, taktu mig
því framtíðarinnar fjöregg er okkar að smíða
heppninnar forsjá neitum að tilheyra

frjálsan, taktu mig
í vegferð frá veikum málstað feyra
víkjum ei, minnug úrslitum þorskastríða


mbl.is Icesave samþykkt í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband