Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Sjónvarp

Jimmy Kimmel svarar fyrir sig og „tekur” Ben Affleck!

Það varð heldur betur frægt þegar Sarah Silverman tók upp á því að fara að r**a Matt Deamon fyrir nokkrum vikum, ekki nóg með að hún segði frá þessari iðju sinni, ó nei, hún þurfti að gera um reynslu sína myndband. Sem hún sýndi svo aumingja Jimmy í útsendingu á afmælisþættinum hans. Ég benti á þetta um daginn: Hver vill ekki r*bííp*a Matt Damon?

Jimmy Kimmel varð að vonum hrikalega sár, honum fannst hann að sér vegið; hann var niðurlægður BIG time. Fólk verður að hafa það í huga að þau tvö eru búin að vera náin síðan 200,2 sem er nú rúmlega góður tími í þeirra héraði.

En Jimmy er nú ekki þannig gaur að láta svona hegðun ósvarað og geldur í sömu mynt. Hérna er svar Jimmy til Söru; hann hefur fengið til liðs við sig heila hersveit stórstirna svo sem: Ben Affleck, Brad Pitt, Harrison Ford, Cameron Diaz, Joan Jett, Macy Gray, Robin Williams, Don Cheadle, Pete Wentz, Perry Farrell, Benji and Joel Madden, Lance Bass, Huey Lewis, Josh Groban, McLovin and Meatloaf - eða að mér sýnist alla sem voru heima í Hollywood þennan dag.

ATH. Einhver vandræðu eru með hljóðið útgáfuni hér að neðan þannig að ný útgáfu var sett inn - sú sem er hér að ofan.  


HD-DVD er dautt dæmi! Ætli Blu-Ray muni ná flugi?

blu-ray_hd_dvd_footErlenda tæknipressan hefur afskrifað HD-DVD, það má segja að Toshiba hafi ákveðið að aflífa þessa andvana fæddu tækniafurð. Ákvörðun Toshiba kemur i kjölfar þess að Warner ákvað að styðja aðeins Blu-Ray og að verslunarrisinn Wall-Mart tilkynnti fyrir nokkrum dögum að þar á bæ yrðu ekki seldar HD-DVD myndir eða spilarar. 

Það má segja að Blu-Rey kampurinn sitji nú einir að borðinu, en eins og ég benti á í pistli mínum fyrir rúmu ári síðan (sjá hér) skiptir það okkur neytendur ekki nokkru máli hver vinnur þetta „stríð” - hagur okkar lítur að því að fá sigurvegara og það sem fyrst. 

Nú þegar óvissunni hefur verið eytt, verður fróðlegt að fylgjast með því hvort að markaðurinn taki Blu-Rey nægilega hratt upp til þess að koma í veg fyrir að niðurhal, sem nú vex hröðum skrefum, taki markaðinn. Ef neytendur geta náð sér í háskerpuefni (HD) með niðurhali því ættu þeir þá að fjárfesta í Blu-Rey spilurum og efni. Nú ef Blu-Rey spilurum fjölgar ekki nógu hratt þá er ekki líklegt að útgefendur hafi áhuga á því að gefa allt sitt efni út á því formi. 


mbl.is Hvítt flagg hjá HD-DVD?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins sjónvarp í farsíma og alltaf til fólk sem verður að nöldra

Mobile TV Samsung phone jul 06Ástæða þess að ég skrifa við þessa frétt er ekki sú staðreynd að farsímasjónvarp hefur orðið til, heldur vegna þess að ég má til með að "hrauna" yfir Pétur Reynisson hjá Gáttinni, en Pétur gengur fram af mér í bloggi sínu um þessa sömu frétt.

Fyrst eilítið um farsímasjónvarp. Sjónvarp í farsíma er í sjálfu sér ekki nýjung, þetta er tækni sem er búin að vera á leiðinni í nokkur ár. Ætli þetta sé ekki þriðja eða fjórða árið sem farsímasjónvarp er á dagskránni á 3GSM WC, en þunginn er vissulega meiri í ár enda hillir nú LOKSINS undir að tæknin verði sett í almenna notkun í Evrópu. Reyndar er farsímasjónvarp búið að vera í notkun í nokkrum löndum Asíu í nokkur ár t.d. í Suður-Kóreu (á CDMA en ekki GSM). 

Því miður á þessi tækni eftir að vera á leiðinni til okkar Íslendinga í einhver ár í viðbót. Forsenda þess að koma sjónvarpi í símann er aukin bandbreidd (þ.e. er fyrir streymt efni) og þar stendur hnífurinn í kúnni, við Íslendingar erum svo fjári aftarlega á merinni þegar kemur að almennri nýtingu framsækinnar tækni (þvert á það sem flestir telja) og því er einmitt þannig farið með 3G (þriðju kynslóð farsíma) - ástandið er svo slæmt að það heyrist vart minnst á þessa tækni. Eins eru þráðlausar (DVB-T / DVB-H) stafrænar sjónvarpsútsendingar ekki til hér (mig minnir þó að einhverjir hafi gert tilraunir í þeim efnum). Koma svo Björgólfur Thór...

Sennilega er það fáránleg hugmynd, sem byggð er á pólitískumrétttrúnaði, um þekju 3G netsins sem er helsta fyrirstaðan fyrir því að við Íslendingar njótum ekki þessar þjónustu í bráð. Í lögum um þriðju kynslóð farsíma (ég velti því fyrir mér hvers vegna það séu til lög um 3G, má ekki leysa svona nokkuð með reglugerð) er sett skilyrði um að netið nái til 60% íbúa á hverju fjögurra skilgreindra svæða. Þessi krafa (ásamt því að greiða þarf einhverjar 200 milljónir fyrir tíðnina) þýðir að rekstraraðilar meta það svo að ekki sé hagkvæmt að reka slíka þjónustu. Hafa þarf í huga að 3G sendar draga mun skemur en GSM sendar sem þýðir að fleiri senda þarf til þess að byggja upp dreifikerfið, það eitt leiðir til verulega aukins kostnaðar.

Rekstraraðilar horfa á kostnað við uppsetningu og rekstur á annari vogarskálinni og takmörkuð viðskiptatækifæri á hinni og sjá í hendi sér að það hallar verulega á arðsemina - dæmið hefur hingað til ekki gengið upp.

Farsímasjónvarp er gott dæmi um virðisaukandiþjónustu sem mun hjálpa til við að jafna í skálunum.

Í bloggi Péturs hæðir hann að krafti þá tækni sem farsímasjónvarpið er, telur hana vera eitthvert ónauðsynlegt glingur fyrir fólk með dellu, að enginn sæmilega gefinn maður hafi minnstu þörf fyrir svona lagað. Hérna fyrir neðan eru nokkur andmæli við fullyrðingum eða spurningum í bloggi Péturs:

  • Hvers vegna er þetta léleg lausn? Er það vegna þess að Pétur sér engin skynsamleg not fyrir tæknina? Eða vegna þess að tæknin er ekki nægilega góð til þess að leysa skynsamleg not? 
  • Já svona nokkuð gerum við í nafni framfara og tækni og einmitt það að fjöldi fólks er tilbúið til þess að "gleypa við" svona nokkru gerir frumkvöðlum mögulegt að halda áfram að vera frumkvöðlar - sem er jú gott fyrir tækniframfarir.
  • Já fólk ætti að "váa" eins og tilfinningar þess bjóða, oft og hátt - vá-hrif eru nákvæmlega það sem hönnuðir þessarar tækni og framleiðendur tólana vilja ná fram.
  • Nei farsímasjónvarp er ekki dæmi um eitthvað sem ekki ætti að finna upp, heldur er þetta gott dæmi um snilli okkar mannanna, mátt hugans. 
  • Það gera sér væntanlega allir grein fyrir því að greiða þarf fyrir þessi tæki og síðan fyrir þá þjónustu sem nýtt er.
  • Ég skil bara ekki þetta sex sinnum dæmi. Nei við ætlum ekki að lesa bók sem er með sex sinnum minna letur enn í venjulegri kilju (ca. 11 punkta letur) - einfaldlega vegna þess að við getum það ekki, í það minnsta ekki með berum augum. En öðru máli gegnir um óvenjulegar kiljur sem eru prentaðar með 48 punkta letri. Jamm jamm það hefði ég nú haldið. 
  • Varðandi tækniblinduna þá vil ég aðeins segja SEM BETUR FER það eru ansi margir hlutir, gagnlegir, skemmtilegir, undarlegir o.s.frv. sem ekki hefðu borið fyrir augu okkar ef allir hugsuðu eins og Pétur.
  • Ef hugmynd Péturs um að nota símann aðeins til þess að hringja með og sjónvarpið aðeins til að horfa á [myndir í] má jafna við að við værum með eina tölvu til þess að möndla með t-póst, aðra til þess að skrifa bréf, enn aðra til þess reikna með o.s.frv. Samrunatæki eru af hinu góða, hugsið ykkur bara; tölva, sími, myndavél, hljómflutningstæki og sjónvarp allt í sama tækinu - jafnvel tæki sem kemst fyrir í partýbuddu konunnar! Myndbandið hér að neðan er á stærð við skjá í hefðbundnum farsíma (m.v. 1024p upplausn), ekki farsíma sem er sniðinn að þessari notkun. 

  • Ef menn greindu viðskiptatækifæri í því að koma kaffivél fyrir í fartölvum eða öðrum tölvum  þá myndu menn gera það.
  • Já maðurinn á myndinni er örugglega að segja fólki eitthvað í þá veru að þetta sé eitthvað sem fólk á eftir að geta notað og já ætti að kaupa og það sem allra fyrst - ENN EKKI HVAÐ. Ég ætla hins vegar ekki að leggja honum orð í munn. Það hefði verið hrikalega flott ef ég hefði getað flett fyrirlestri hans upp í símanum mínum og horft á hann t.d. á klóinu. Nú enn flottara hefði verið ef ég hefði átt þess kost að horfa á kynninguna hans "live" í farsímanum mínum.  

Mobile TV Nokia phone mar 06Ef Pétur væri þekktur sem argasta afturhald, t.d. ef hann væri kröftugur þátttakandi í starfi Vinstri-Grænna, þá tækist mér að setja meiningar hans í eitthvert samhengi. Ekki það að ég teldi þær réttar í einu eða neinu, en ég mundi átta mig á því hvaðan hann væri að koma, sem hefði aukið á umburðalyndi mitt. En engu væri ég nærri um hvert hann væri að fara.

Pétur starfar við að stýra þróun á Netþjónustu sem kölluð er Gáttin (skv. hans eigin lýsingu), sú hugmynd er líkast til engin bylting en er örugglega um margt sniðug. Alveg er gáttaður á því og það veldur mér umtalsverðum heilabrotum að maður sem fæst við slíka hluti skuli síðan hafa slíkar skoðanir sem hann setur fram í bloggi sínu.

Finnst Pétri það húmbúkk að geta horft á myndefni með MP3/4 spilaranum sínum? Hvað sýnist honum um að ég geti tekið dagskráliði af Gáttinni hans og streymt í símann minn (on eða off line) -  er það alveg út í hött? Er "podcast" ekki bara hégómi og tóm vitleysa.

Kannski að Pétur kveiki á perunni þegar hann sér myndbandið hér að neðan - tja nema ef honum finnist fótbolti líka vera tóm vitleysa. 

Ég er ekki að halda því fram að öllum muni finnast farsímasjónvarp vera "vá", alls ekki - fólk hefur eflaust mismunandi skoðanir á því. En því ætla ég að halda fram að innan ekki alltof margra ára verður farsímasjónvarp hluti af daglegu lífi okkar ALLRA

PS. Ég er nokkuð viss um að Pétur er þeirarr skoðunar að tæknilegar æfingar af þessu tagi eru nauðsynlegar og skipti verulegu máli á leið okkar fram á við, en ég á auðvitað ekki að vera gera honum upp skoðanir. Það læðist að mér sá grunur að hann hafi bara gleymt sér eitt augnablik, misst sig eins og það heitir - farið að hneykslast bara til þess að hneykslast. 
mbl.is Farsímasjónvarp virðist vera að ná fótfestu - og þó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott dæmi um SNAFU. Er kaninn alveg að tapa sér?

Adult swim war of the worldsBostonborg fór á hvolf í gær (31.jan). Einhver fékk þá flugu í höfuðið að lítil og einkar sakleysisleg ljósaskilti væru sprengjur.  Yfirvöld tóku þessu alvarlega og var almannavarnakerfi borgarinnar sett á fúlsvíng. Við þetta stöðvuðust m.a. nokkrar helstu umferðaræðar borgarinnar. Öllu þessu hafaríi er um að kenna markaðsetningarherferð fyrri vel þekkta teiknimyndaþætti; "Aqua Teen Hunger Force" eða "Adult Swim".  Hérna má sjá vefsetur þáttarins.

Það má lesa allt um þetta á CNN og reyndar á öllum öðrum fréttavefum í vesturheimi

Mitt álit er að menn verða að fara slaka aðeins á þarna vestann við poll.

Mín spá er svo sú að "you ain't seen nothing yet" - þetta er aðeins byrjunin. Takið eftir því að þetta "gigg" hefur verið á öllum stóru sjónvarpstöðvunum í dag og í gær, hefur væntanlega verið á forsíðum morgunútgáfu stórblaðanna, nú allir vefmiðlarnir hafa gert þessu góð skil og auðvita lætur bloggarasamfélagið ekki sitt eftir liggja (sbr. þessi skrif mín). Getur einhver ímyndað sér ódýrari og skilvirkari aðferð til þess að vekja athygli á sér? Nokkur áþekk dæmi hafa vakið gríðarlega athygli (t.d. stillfree) og hef ég skrifað um Hverfipunkt Microsoft sem er af þessu sama meiði. Fréttafár er einfaldlega svo gefandi að menn munu gera út á þetta í auknu mæli (þó svo að það hafi ekki verið ætlunin í þetta skiptið).  

ES. SANFU = Situation Normal All Fucked Up

Myndir af dæmigerðum "sprengjum" - þær (skiltin það er) hafa víst verið til sölu á Ebay.

adult swim front  adult swim back


Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband