Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Veldur sá er á heldur

Síðasti aurinnTalsmaður OR leggur en í afsökunarsarpinn, nú svínga þeir OR menn inn að hækkunin sé líka tilkomin vegna viðhaldsverkefna (ekki bara uppbyggingar). Þessi málflutningur er jafn öfugsnúinn eftir sem áður.

Dæmi: Bónus opnar nýja sjoppu á Skaganum við það hækkar vöruverð í öllum verslunum Bónus. Í ofanálag dettur þeim Bónusmönnum í hug að dytta svolítið að nokkrum gamalgrónum verslunum, sú aðgerð eykur auðvita enn á þrýstinginn á verðhækkanir.

Þeir hækka, en ekki hvað? 

Skýringar OR eru tilbúningur. Að sjálfsögðu er í verðstrúktúr OR gert ráð fyrir bæði rekstri og viðhaldi allra kerfa stofnunarinnar, í þessum sama strúktúr er líka gert ráð fyrir því að byggja þurfi upp og já skila eigendum góðum arði.

Rétt er það OR vantar meira fé, það þarf að borga niður afskaplega slæma fortíð.


mbl.is OR vantar meira fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfugsnúið

gull_ror.jpgÞær eru ömurlegar skýringar OR á gjaldskrárhækkun stofnunarinnar. Það er eitthvað verulega rangt við hugmyndina alla.

Jú við þurfum að hækka um nokkur prósent vegna þess að það hefur verið svo gríðarleg uppbygging! M.ö.o. það hefur verið bullandi bísness og þá þarf að hækka verð þjónustunnar. Sumsé því meiri viðskipti því hærra verð. Og já, ekki bara á nýja viðskiptavini (nýja kostnaðarliði ef jafnan er rétt skilin) heldur allt heila pakkið.

Eigum við að skilja það svo að uppbygging vegna nýrra íbúa á höfuðborgarsvæðinu kosti svo mikið að allir viðskiptavinir OR þurfi að greiða 10% meira - hættu nú alveg.

Eru nýju pípurnar úr eðalmálmum, eða hvað? (Myndin hér að ofan gæti verið af starfsmönnum OR að fagna því þegar fyrstu metrarnir af nýju gull rörunum voru komnir á sinn stað) 

Hvað varð um hagkvæmi stærðarinnar - meira fyrir minna.

Í ofanálag er svo tímasetningin tragikómísk, tja eða er hún kannski bara tragísk. 

Nú þrengir að hjá heimilunum, þau eru þanin - sum hver til hins ýtrasta. Á þessum tímum hefði maður haldið að stærsta og "öflugasta" stofnun borgarinnar gæti haldið aftur af sér. Ó seisei nei.

Mikið djöfull er þetta ræfilslegur bísness og andskoti eru það aumir bísnessmenn sem þarna halda um taumana.

Er taumleysi kannski vandamálið.

Maður veltir því fyrir sér hvort að óráðsían og bullið frá R-lista tímanum, ss. bygging sæmilegustu skrifstofuaðstöðu og þátttaka í allskonar óhagkvæmu eldi (lína.net, rækjur), sé nú að koma fram að fullum þunga. Væntanlega hafa nýlegar fárfestingar í öðrum félögum ekki minnkað auraþörfina, menn sóttu aurinn auðvita í erlend lán.

Hagstæð lán. 

Það er ekki að sjá að þarna sé verið að vinna fyrir okkur - eigendur búllunnar.

PS. Mér lýst allt í einu ekkert á rafmangsvæðingu bílaflotans, mér sýnist að rafmagnið muni við aukna sölu hækka um einhverja tugi prósenta.

 


mbl.is Bæjarráð Kópavogs mótmælir gjaldskrárhækkun OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Google síminn að detta inn

htc_g1_edited.jpgÍ New York í gær fór fram stórviðburður í farsímaheiminum, þar var kynntur nýr farsími með nýju stýrikerfi. Þessi tíðindi hafa farið full hljót hér heima finnst mér.

Bæði var verið að kynna nýjan vélbúnað, sem í sjálfu sér er ekkert sérstaklega merkilegt og svo hugbúnað sem er öllu merkilegri. Líklega á þessi hugbúnaður eftir að hafa sitt hvað að segja í lífi tug ef ekki hundruðmilljóna manna á næstu árum. Það hlýtur að eiga flokkast meðal meiri tíðinda. 

Android heitir stýrikerfið (hugbúnaðurinn) sem ég er að vísa til og kemur úr smiðju Google og síminn heitir G1 frá T-Mobile (framleiddur af HTC). G1 kemur í sölu í BNA 22. október og væntanlega í enda nóvember í Evrópu.

Það vekur furðu mína að (enn og aftur) að síminn skuli kynntur í BNA og eigi að koma þar á markað fyrst en ekki í Evrópu. GSM/3G markaðurinn í bandaríkjum er aðeins um 20% af markaðinum í Evrópu. En svona er þetta í þessum tækniheimi, Ameríka kemur alltaf (oftast) fyrst. Tækið mun kosta 180USD þegar það kemur á markaðinn m.v. 2 ára samning við T-Mobile. Tækið verður lokað (SIM-Locked) á T-Mobile netið (ætli menn hafi svo ekki einhver ráð með það fljótlega!).

Það sem gerir Android merkilegt er auðvita sú staðreynda að um Google afurð er að ræða og svo að hugbúnaðurinn er opinn (Open Source). Þetta tvennt þýðir að til er hefur orðið umhverfi (platform) sem er verulega áhugavert fyrir hönnuði hugbúnaðar fyrir farsíma (hum, meðtæki).

Upplýsingar um Android

Upplýsingar um HTC G1

ES. svo er hægt að fá Pac-Man á Android, sem er ekki slæmt.


mbl.is Farsími sem virkar eins og bíllykill
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband