Rólega, rólega, anda bara alveg rólega, ég held að það sé ekkert að óttast. Þó svo að það hljómi að þessi sending hafi verið stór þá fullyrði ég að svo er í raun ekki. Allavega virðist þetta EKKI hafa haft áhrif á heimsmarkaðsverð. Trúið mér þessi markaður er hrikalega vakur þegar kemur að framboði og eftirspurn.
Hvernig veit ég þetta? Jú sjáiði nú til, því hagar nefnilega þannig til að eitthvað fólk úti í heimi sem hefur verið, já og er, ákaflega annt um að ég sé að performera í bólinu sendir mér reglulega verð á stuði. Ég held að þau hugsi þetta einhvernvegin þannig að til þess að ég sé ekkert að hafa óþarfa áhyggjur þó svo að ég missi (hann) niður dag og dag þá senda þau mér reglulega tilboð (sumir kalla þetta víst spam, hvað er það?) á svona allskonar ballargotteríi. Sem auðvitað þýðir að þó svo að ég sé alveg slakur (hum, eða þannig) enda veit ég hvert ég get leitað. Svo eru þau að bjóða þetta á algjöru djók verði, sem að vísu gæti bara verið fyrir mig, en samt. Alveg hreint einstakt fólk þetta - ég sem þekki það ekki neitt!
Hérna að neðan er dæmið sem sannar þetta með heimsmarkaðsverðið, efri myndin er úr pósti sem ég fékk rétt í þessu (munið þessi markaður er mjög kvikur) og sú neðri er úr viku gömlum pósti. Eins og sjá má er verðið það sama.
ES. Hvað er þetta Levitra?
ES.ES. Afhverju fer Kári ekki í þennan bransa?
Hald lagt á stinningarlyf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Golf
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nota bene
Telja
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Skoðið
- Kosovo og sagan af landinu bláa Hvernig saga Blámanna kynni að verða
- Hjarðfullnæging Hjarðfullnæging
- Báknið burt
- Liljan hans Steingríms Joð Liljan hans Steingríms Joð
- Kynjamyndir, klám og klikkaðar kerlingar Kynjamyndir, klám og kk
Athugasemdir
Hm, svo þú færð líka svona pósta. Ég var farinn að halda að konan mín væri með einhverjar yfirlýsingar út um allar trissur um afleita frammistöðu mína í rekkjunni og þess vegna væru hinir og þessir að senda mér gylliboð um pillur, tæki og aðgerðir.
Sigurður Ásbjörnsson, 7.3.2007 kl. 22:27
Ok, og hvert er verðið? Ert þú að segja að þú sért á sama dílnum og ég? Þau sögðu nefnilega við mig að eitthvað á þessa leið "ónlí for jú mæ frend", ég trúði því.
Viggó H. Viggósson, 7.3.2007 kl. 22:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.