10.3.2007
Uss þetta er ekki neitt...
... þá meina ég auðvitað miðað við það sem verðbólgan yrði ef VG + S + ? kæmust í stjórn hér á landi eftir næstu kosningar. En það verður aldrei! Fólk sér að sér í tæka tíð, er það ekki? Vona ég.
Trúi ég.
Verðbólgan mælist 1.730% í Zimbabwe | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Golf
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nota bene
Telja
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Skoðið
- Kosovo og sagan af landinu bláa Hvernig saga Blámanna kynni að verða
- Hjarðfullnæging Hjarðfullnæging
- Báknið burt
- Liljan hans Steingríms Joð Liljan hans Steingríms Joð
- Kynjamyndir, klám og klikkaðar kerlingar Kynjamyndir, klám og kk
Athugasemdir
Já, Vg og SF kæmu til með að slá met Mugabes og setja hraðamet í að rústa efnahag þjóðarinnar.
Það er reyndar skrítið að fólk sjái ekki í gegnum málflutning þeirra því þversagnirnar eru svo margar og augljósar, a.m.k. hvað Vg, varðar því málatilbúnaður Vg er talsvert skýrari heldur en móðan sem kemur frá SF.
Í einn stað segja þeir að efnahagsástandið hérna sé slæmt og í hinn staðinn vilja þeir skrúfa fyrir "olíuna" okkar, þ.e.a.s. að stöðva atvinnuuppbygginu sem nýtir okkar helstu auðlind, hreinu orkuna. Síðan klingir Vg út með skattabreytingum, sem líklegar eru til að stuðla að fjármagnsflótta frá landinu og drepa fjármagnsiðnaðinn, aðal og næstum eina vaxtabrodd íslensks atvinnulífs undanfarin ár.
Svo verða forræðishyggju hugmyndirnar og allar eftirlitsstofnanirnar sem þeim fylgja ekki til að bæta á ástandið eða hugmyndir SJS með uppbyggingu atvinnulífs út á landi með því að flytja opinbera þjónustu þangað.
Ég segi svipað og þú Viggó; fólk hlýtur að sjá að sér - PLEASE!
Sigurður J. (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 02:48
Já, ef maður er ekki dauður, þá gæti maður alltaf haft það verra. Ég er það lánsamur að vera í þeirri stöðu að ég gæti haft það miklu verra. Ekki ætla ég að kvarta. En svo eru aðrir sem hafa það mun verra en ég. Margir hverjir dauðir og ekki kvarta þeir. Af hverju ætti ég þá að vera að kvarta.
En án djóks þá finnst mér að margir pólitíkusar ættu að taka sér frí frá störfum, þó að það sé ekki nema í örfáa daga til þess að vinna í álveri. Og velta því fyrir sér á meðan. "Er þetta virkilega atvinnan sem við viljum bjóða útlendingum uppá!".
Þröstur Jóhannsson (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 04:59
Álver er frábær vinnustaður. Ég hef reyndar unnið fyrir eitt slíkt sem "hátæknistarfsmaður", svo ég noti það klisjukennda starfsheiti, þ.e.a.s. sem kerfishönnuður og forritari.
Álver eru líka frábær vinnustaður fyrir ófaglært fólk. Það hef ég lært af kynnum mínum við það. Þau greiða ófaglærðu verksmiðjufólki góð laun (3-500 þús. pr. mánuð), s.s. mun hærri laun en aðrar faktoríur gera. Staðreyndirnar tala líka sínu máli hvað þetta varðar, því starfsmannavelta á meðal ófaglærðs fólks er hvergi minni en hjá álverum hér á landi.
Það er því í raun þversögn að sósíalískur flokkur eins og Vg, sem þykist bera hagsmuni þeirra er verst mega sín í þjóðfélaginu, m.a. vegna menntunarskorts, skuli berjast með öllum ráðum fyrir góðum atvinnutækifærum fyrir það fólk. Þetta einfaldlega stenst ekki skoðun og verður að álykta að Vg sé nokk sama um þetta fólk, enda kannski ekki skrítið þegar að er gáð hvaða bakgrunn forystumenn flokksins hafa. Þeir eru ekki í tengslum við raunveruleikann.
Bjarni Magnús (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 17:21
Leiðrétting:
Ég átti að sjálfsögðu við að Vg berjist gegn með öllum ráð góðum atvinnutækifærum fyrir ófaglært fólk.
Geri reyndar ráð fyrir að flestir hafi áttað sig á þessari villu. :-)
Bjarni Magnús (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 18:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.