15.3.2007
Olé!
Ég dái Spán og ég elska Andalúsíu. Höfuðborg Analúsíu er Sevilla, sem er í mínum huga einhver mest sjarmerandi borg sem ég þekki. Þar hef ég átt góðar stundir, stundir sem ég sakna.
Í Sevilla er Plaza de toros de la Real Maestranza de Caballería, þetta er nautaatshringurinn á Spáni, með stóru N og stóru H.
Það er auðvelt að fordæma nautaat, grimmd eða ómannúðleg villimennska er sennilega það fyrsta sem kemur upp í huga margra þegar þeir hugsa um nautaat.
Í mínum huga er nautaat dunandi dans, tilfinningaþrunginn taktur heitra hefða. Ég hugsa um skrautlega búninga, hattinn svarta, sverðið; nautabaninn er klæddur fötum ljóssins tilbúinn til að mæta dauðanum. Ég hugsa um El Cordobés, en það var sá nautabani sem mestur var þegar ég var að alast upp, hann var hetja, hetja heillar þjóðar.
Ég hef því miður ekki séð nauta í áratugi, nema í sjónvarpi, en ég vona að ég eigi eftir að eiga þess kost að komast í hringinn í Sevilla. Ég hugsa til þessar hluta með söknuði.
Myndbandið hér að neðan á ekkert skylt við spænskt nautaat, en það er hins vegar sprenghlægilegt.
Nautabani slasaðist alvarlega á Fallas-hátíðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Golf
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nota bene
Telja
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Skoðið
- Kosovo og sagan af landinu bláa Hvernig saga Blámanna kynni að verða
- Hjarðfullnæging Hjarðfullnæging
- Báknið burt
- Liljan hans Steingríms Joð Liljan hans Steingríms Joð
- Kynjamyndir, klám og klikkaðar kerlingar Kynjamyndir, klám og kk
Athugasemdir
Get ekki að því gert en þessir menn eru sko ekki að sýna neina dáð þetta eru bara menn sem hafa unun af að kvelja saklaus dýr, að segja að þeir séu klæddir fötum ljóssins tilbúnir til að mæta dauðanum er náttúrulega bara þvæla þetta eru menn sem eru með fullt af aðstoðarmönnum sér við hlið, ef að dýrið nær yfirhöndinni þá koma þeir æðandi inn til að bjarga rassgatinu á kvalaranum, ef að þeir væru tilbúnir að mæta dauðanum þá ætti að leyfa dýrinu að ljúka sér af
Kristberg Snjólfsson, 15.3.2007 kl. 09:33
tek heilshugar undir með síðasta ræðumanni ..þetta er íþrótt sem ætti að banna..
Margrét M, 15.3.2007 kl. 11:07
Mér finnst líka að það ætti að láta naut drepa barnaníðinga og geðveika morðingja sem drepa ánægjunnar vegna. Það væri lika æðislegt ef við myndum grafa þá niður í jörðina (hentugt að nota gamla nautabanavanga) undir atburðina og keyra valtara yfir hausana. Þarna gætum við veitt ánægjulega skemmtun fyrir fólk á laugardegi til þess að við þurfu ekki að hlusta á munnsöfnuð í húlligönum allra landa. hÁS
Helgy (IP-tala skráð) 15.3.2007 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.