22.2.2008
Óþolandi verðsamráð
Ég þurfi að versla smá inn fyrir helgina og ákvað bregða út af vananum; fara í aðra búð en ég er vanur. Þrátt fyrir að búðin væri mikið minni en sú sem ég er vanur að eiga viðskipti við; í öðru sveitarfélagi og öll eitthvað tíkarlegri; þá gat ég ekki betur séð en að verð á þeim vöruliðum sem ég taldi mig muna verð á væri uppá krónu það sama og í minni búð. Þetta fannst mér merkilegt; kannski tilviljun? Uppá krónu á fjórum vöruliðum?
Tæplega.
Verðsamráð fannst mér vera miklu líklegri skýring. Þarna sem sem ég gekk út úr búðinni ákvað ég með sjálfum mér að gera mína eigin verðkönnum. Fara og kaupa þessa sömu körfu í nokkrum verslunum. Sem ég og gerði, fór í þrjár aðrar verslanir sem höndla með sambærilegar vörur á mismunandi stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaðan var æpandi eins og taflan hér að neðan ber með sér:
Vara R | Vara U | Vara G | Vara L | |
Verslun A | 2.190 | 1.390 | 1.350 | 1.422 |
Verslun B | 2.190 | 1.390 | 1.350 | 1.422 |
Verslun C | 2.190 | 1.390 | 1.350 | 1.422 |
Verslun D | 2.190 | 1.390 | 1.350 | 1.422 |
Tilviljun, ha! Verðsamráð! Þarf eitthvað að ræða það?
Hvar eru þingmenn núna? Og hvar er Samkeppniseftirlitið? Ég verð að lýsa furðu minni á því hvernig stendur á því að samkeppnisyfirvöld hafa ekki brugðist við þessu öskrandi lögbroti; af fullri hörku.
Ég hef tekið saman rapport um glæpinn, þar sem ég styð mál mitt m.a. með gögnum: kassakvittunum, ljósmyndum, hljóðupptökum og lífsýnum; ásamt vitnisburði vitna. Rapportið mun ég senda Samkeppniseftirlitinu síðar í dag og vænti skjótra viðbragða.
I'll keep you posted.
ES. Vörurnar sem um ræðir eru:
R: Rosemount GSM
U: Norton Cabernet Sauvignon Reserve
G: Heineken, 500ml * 6
L: Víking, 500ml * 6
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkar: Matur og drykkur, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:13 | Facebook
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Golf
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nota bene
Telja
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Skoðið
- Kosovo og sagan af landinu bláa Hvernig saga Blámanna kynni að verða
- Hjarðfullnæging Hjarðfullnæging
- Báknið burt
- Liljan hans Steingríms Joð Liljan hans Steingríms Joð
- Kynjamyndir, klám og klikkaðar kerlingar Kynjamyndir, klám og kk
Athugasemdir
greinilegt samsæri gegn neytendum. svo ég tali nú ekki um stór-neytendum
Brjánn Guðjónsson, 22.2.2008 kl. 13:17
Jamm, jamm. Verðkannanir eru hvorki meira né minna en bráð nauðsynlegar; birgðanna vegna.
Reglulegar verðkannanir þá! Það þýðir ekkert að fitla við þetta, dæv inn er málið.
Það er svo hárrétt hjá þér Brjánn; prófessíónal kaupendur lenda mikið verr í svona kriminal athæfi en t.d. hreinir og klárir helgarsötrarar.
Þetta segir sig sjálft.
Viggó H. Viggósson, 22.2.2008 kl. 22:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.