Bostonborg fór á hvolf í gær (31.jan). Einhver fékk þá flugu í höfuðið að lítil og einkar sakleysisleg ljósaskilti væru sprengjur. Yfirvöld tóku þessu alvarlega og var almannavarnakerfi borgarinnar sett á fúlsvíng. Við þetta stöðvuðust m.a. nokkrar helstu umferðaræðar borgarinnar. Öllu þessu hafaríi er um að kenna markaðsetningarherferð fyrri vel þekkta teiknimyndaþætti; "Aqua Teen Hunger Force" eða "Adult Swim". Hérna má sjá vefsetur þáttarins.
Það má lesa allt um þetta á CNN og reyndar á öllum öðrum fréttavefum í vesturheimi
Mitt álit er að menn verða að fara slaka aðeins á þarna vestann við poll.
Mín spá er svo sú að "you ain't seen nothing yet" - þetta er aðeins byrjunin. Takið eftir því að þetta "gigg" hefur verið á öllum stóru sjónvarpstöðvunum í dag og í gær, hefur væntanlega verið á forsíðum morgunútgáfu stórblaðanna, nú allir vefmiðlarnir hafa gert þessu góð skil og auðvita lætur bloggarasamfélagið ekki sitt eftir liggja (sbr. þessi skrif mín). Getur einhver ímyndað sér ódýrari og skilvirkari aðferð til þess að vekja athygli á sér? Nokkur áþekk dæmi hafa vakið gríðarlega athygli (t.d. stillfree) og hef ég skrifað um Hverfipunkt Microsoft sem er af þessu sama meiði. Fréttafár er einfaldlega svo gefandi að menn munu gera út á þetta í auknu mæli (þó svo að það hafi ekki verið ætlunin í þetta skiptið).
ES. SANFU = Situation Normal All Fucked Up
Myndir af dæmigerðum "sprengjum" - þær (skiltin það er) hafa víst verið til sölu á Ebay.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 01:59 | Facebook
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Golf
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nota bene
Telja
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Skoðið
- Kosovo og sagan af landinu bláa Hvernig saga Blámanna kynni að verða
- Hjarðfullnæging Hjarðfullnæging
- Báknið burt
- Liljan hans Steingríms Joð Liljan hans Steingríms Joð
- Kynjamyndir, klám og klikkaðar kerlingar Kynjamyndir, klám og kk
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.