Leita í fréttum mbl.is

Stelpur það er ekki liturinn heldur köttið!

Oscar fangamyndKlæðaburður glysfólksins er ávalt bigg issjú í tengslum við uppákomur eins og Óskarinn. Nú er höfundur þessa bloggs engin spekingur um tískufatnað, hvorki karla né kvenna og ekki er ég heldur neitt sérstaklega svag fyrir Óskarinum; fylgdist til að mynda ekki með hátíðinni í nótt.

Í morgun fór ég á Netið með kaffibolla í annarri hendi, mús í hinni og stírur í augunum; flögraði um kunnar slóðir eins og ég er vanur í morgunsárið, en datt fljótlega út úr mínu fasta fari;  inná ókunnar slóðir Óskarsfrétta. Sem auðvita eru nú á forsíðum flestra netmiðla.

Varð þó nokkuð stoltur af sjálfum mér að sjá að ég hafði skotið á eða haft góða tilfinningu fyrir nokkrum niðurstöðum. Helst var það auðvita No Country for Old Men ég var sannfærður um að hún myndi vinna, enda einhver besta ræma sem ég hef rúllað í gegnum lengi. Leikur, leikstjórn, handrit, kvikmyndataka allt á brún þess besta.

Á þessu morgunrölti mínu um Netheima tók ég eftir að áberandi voru fyrirsagnir í þá veru að rautt væri ósótvöþúsundogátta - hér er átt við að „fyrirmyndirnar” hefðu valið rautt umfram aðra liti á klæði sín. Ég er bara ekki sammála þessu mati (sjá myndir hér að neðan), mér sýnist að skvísurnar hafi verið svona fiftífiftí svartar og rauðar. Mér fannst mikið augljósara annað trend sem er is's ósólong, eða svona hafmeyjukött. Já stúlkur mínar liturinn má vera hver sem er svo lengi sem hann er rauður eða svartur eða jafnvel silfur, eitthvað, en það er möst að kjólinn verður að vera ofsíður og níðþröngur.

Fyrir okkur strákar þá hefur lítið breyst; svart og hvítt gildir. 

Þannig er það nú.

Heimild: The New York Times 

Oscar black

 

 

 


mbl.is Coen bræður sigursælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband