Leita í fréttum mbl.is

Óvissuferð á ögurstund

Í gegnum brimgarðinnÓvissuferð er hreint ekki það sem þessi þjóð þarf á að halda.

Það má vel vera að í gær hafi það verið metið svo í Ráðherrabústaðnum að slútta yrði helginni með einhverjum hætti. 

Geir var sendur út á hlað - tómlátur og fjarhuga.

Hann sagði: "Þessi helgi hefur skilað því að við teljum núna ekki lengur nauðsynlegt að vera með sérstakan pakka með aðgerðum, "

Taktíkin var væntanlega að koma út skilaboð um að ástandið væri nú ekki svo slæmt, að hlutirnir væru að færast í rétt horf, málinn að róast og því ekki nauðsynlegt að grípa til sérstakra aðgerða. Það átti sum sé að róa lýðinn. Samandregið þá voru skilaboðin eitthvað á þessa leið:

  • það er ekkert panik á íslenskum stjórnvöldum.
  • boðið er upp á fullt af kostum í stöðunni; menn verða gefa sér tíma til að velja vel.
  • aðgerðir bankana eru sjálfknúnar sjálfsbjargar aðgerðir þeirra, það er ekki verið að þvinga menn til eins eða neins - enda ekki ástæða til.
  • lífeyrissjóðirnir hafa fullan hug á því að taka inn slatta af aurum frá útlöndum, það eru líka sjálfknúnar aðgerðir - enda krónan ódýr og í boði trygg bréf á fínum vöxtum.
  • fulltrúar launafólks eru algerlega með á nótunum og munu róa sitt bakland - halda aftur af sér og sínum.
  • þeir sem að málinu hafa komið eru allir samtaka og munu leggja sitt af mörkunum.
  • hafið GÓÐA NÓTT

En svona var þetta ekki - auðvita ekki, það vissu allir. Nú segir Geir að staðan sé mjög alvarleg.

Það er verið að róa lífróðri; en við verðum að trúa því að menn sjái til lands, að aðeins sé eftir að fara í gegnum brimgarðinn og velja vör til lendingar. Við treystum Geir og hans fólki til þess að taka land - fumlaust.

Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn.
Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“


mbl.is Óvissa um aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband