19.1.2009
Upplýsingaþjóðfélagið?
Í Kastljósi kvöldsins var rætt um þá skoðun Willem H. Buiter að hann undraðist að ekki lægju fyrir upplýsingar um hver raunveruleg staða þjóðarbúsins væri, þetta hafði komið fram í Silfrinu í gær og svo í viðtali sem sýnt var í Kastljósinu. Í þessu sambandi sagði Pétur Blöndal eitthvað á þessa leið "... menn mega ekki vera svona kröfuharðir að biðja um upplýsingar sem ekki liggja fyrir!". Rangt Pétur, allrangt! Við, þjóðin og þú, eigum að gera kröfur um að fá þessar upplýsingar, ruglið er að stjórnvöld hafa ekki orðið við þessum kröfum - en eitt dæmið um andvaraleysi sem á stundum kveður svo rammt að, að maður fær það á tilfinninguna að við séum að sigla að feigðarósi.
Auðvita er það ekki mitt að segja PB eða örðum þingmönnum hvað þeir mega og hvað ekki, en ég geri það samt: Pétur svona segja menn ekki! Þingmaður á ekki að þverskallast við augljósum vilja þjóðarinnar. Við eigum ekki að leyfa þeim sem áttu að vernda okkur fyrir skakkaföllum að komast upp með að sussa á okkur og segja okkur að fara hægar; við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að þrýsta á um aukið upplýsingastreymi og aukin hraða ákvarðana. Eitt er víst að þessi þjóð þjáist ekki af ofgnótt upplýsinga.
Í þessu sambandi er óþolinmæði því dygð.
Ég hef áður talað um þetta atriði (Einblöðungur og Fá þetta á einu blaði, takk!) mér alveg sama, skít sama, þótt þessar upplýsingar séu ekki hárréttar; væntanlega yrðu þær þá réttari með með hverri nýrri útgáfu. Ég sé fyrir mér að þeir sem hafa með þessi mál að gera myndu senda nýjar stöður til Forsætisráðuneytisins í lok hvers dags og Kristján Kristjánsson uppfærði vefsíðu (t.d. á http://www.storatjonid.is) með morgunsopanum. Birting upplýsingana væri með eðlilegum fyrirvörum og skýringum þar á. Framkvæmdavaldið og sérfræðingavaldaklíkan verður síðan að treysta þjóð og já þingi fyrir að lesa í fyrirliggjandi upplýsingar. Ég lofa því að það verður ekki litið á upplýsinguna sem "spam"!
Hvað er svona flókið?
Áfram veginn... veg upplýsingarinnar.

Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Golf
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nota bene
Telja
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Skoðið
- Kosovo og sagan af landinu bláa Hvernig saga Blámanna kynni að verða
- Hjarðfullnæging Hjarðfullnæging
- Báknið burt
- Liljan hans Steingríms Joð Liljan hans Steingríms Joð
- Kynjamyndir, klám og klikkaðar kerlingar Kynjamyndir, klám og kk
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.