Leita í fréttum mbl.is

Vinstri villa #3 - Gagnsemi í pólitík!

ghostship.jpgÞriðja freyja í áhöfninni á vinstri galeiðunni Svandís Svavarsdóttir kann skil á því hvað er gagnlegt í pólitískri umræðu. En hún telur að það væri mjög gagnlegt að mæla fjölda dálksentímetra í Staksteinum þar sem talað er um Steingrím Joð sem argasta afturhald.

Þarna erum við, ég og þriðja freyjan, sammála; sem verður að teljast til umtalsverðra tíðinda. Það er hverjum manni holt að rifja upp, oft og reglulega, hverslags fólk það er sem er í brúnni á þeim drauga dalli sem vinstri galeiðan er.

Hitt er svo, að menn eiga auðvitað ekkert að vera eyða tímanum í rifja upp það sem er í fersku minni: eins og það að höfundar Staksteina skulu vera þeirrar skoðunar að Steingrímur Joð sé argasta afturhald.

Sem hann er…

Áfram veginn … til gagns!

---o0o---
Blogghöfundur er hægrimaður sem finnur sig eiga mesta samlegð með Sjálfstæðisflokknum af þeim flokkum sem starfa á Íslandi. Þannig hefur það alltaf verið! Ég trúi ekki á lauslætið sem felst í kosningarbandalögum, sem verða til vegna einstakra atburða eða aðstæðna; gjarnan 15 mínútum fyrir kosningar. Ekki trúi ég á persónukjör, en tel að skoða mætti einmenningskjördæmi - eða aðrar leiðir til jöfnunar á vægi atkvæða. Vildi sjá flokkinn minn færa sig til hægri - standa þar fast í fæturna. Er eindreginn stuðningsmaður þess að við sækjum um aðild að EU. Hef ekki tekið afstöðu til upptöku evru; tel það ekki koma að sök þar sem evran hefur ekkert með okkur að gera í það minnsta næsta kjörtímabilið. Ég geri kröfu um réttlátt uppgjör á "hruninu", mér dugir ekki að fólki verði gert mögulegt að tóra. Tryggja verður gegnsæi í stjórnsýslunni, gefa þannig gott fordæmi út í þjóðfélagið. Ákvarðanir og athafnir sem teknar eru eða framkvæmdar eru í nafni fjöldans eiga að vera fjöldanum kunnar. Hef fulla trú á krónunni og edrú hagstjórn. Verðtrygging verður að hverfa út úr íslensku efnahagslífi (afturvirkt). Skynsamlegt nýting auðlinda er forsenda velmegunar. Velmegun er forsenda velferðar þjóðarinnar.
---o0o---


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband