Leita í fréttum mbl.is

Stórkostlegar skattahækkanir!

cooking_revolutionJóhanna Sigurðardóttir var ekki búin að sitja í nema sólarhring þegar hún boðaði að í pípunum væru stórfeldar hækkanir á sköttum. Hún fylgdi kjaftshögginu eftir eins og handrukkari á spítti; sagði að ekki væri hjá því komist að skera niður á "viðkvæmum" sviðum (heilbrigðis- og menntakerfinu) - klofspark í útglennt klof liggjandi þjóðar. En þetta á jú aðeins að vera tímabundið!

Hún hefði mátt vera svona afdráttarlaus fyrir 3 vikum eða svo. Hvernig tekst postulum hennar og pótintátum að mála þetta í lit heilagleika?

100 daga áætlunin segir að vísu ekkert um skatta, hún segir reyndar heldur ekkert um hvernig eigi að koma heimilunum eða fyrirtækjunum í landinu til hjálpar og svo mæti lengi telja. Þvílíkt úrræðaleysið, það liggur við að hægt sé að tala um það sem algjört.

Ljóst er að vinstri váin, villan sú, skríður nú að ströndum landsins, inn firði, upp dali, yfir heiðar - þjóðinn mun senn týna sér í þessari villu, sökkva í drunga og deyfð.

Ég fékk dúndrandi bísneshugmynd; ætla að flytja inn fullan gám af búsáhöldum - hann verður vonandi kominn til landsins með síðara haustskipinu, ef það kemur þá. Þá verður kátt í höllinni!

Ef það kemur! 


mbl.is Skattar svipaðir og 2005-2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband