Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Eitthvað bogið

bent lines illusionÉg verð alltaf voðalega glaður og stoltur þegar ég sé niðurstöðu Hagstofunnar eða annarra þar sem sýnt er fram á hvað við Íslendingar erum flottir á því í allt og öllu. Einna roggnastur verð ég þegar kemur að því hvað við (hum) eigum mikið af tólum og tækjum. Þegar ég fæ staðfestingu á því að við stöndum öðrum þjóðum framar í því sem flestu öðru.

Smásálin ég.

Ég er nú ekki nema rétt búinn að renna yfir skýrsluna sem Hagstofan kallar "Ísland í evrópsku upplýsingasamfélagi 2006", en við fyrstu sýn finnst mér eitthvað bogið við sumar niðurstöður hennar. Dæmi um þetta er skoðun á gagnvirkri þjónustu hins opinbera en þar skora eftirfarandi lönd best: Austurríki (83%), Eistlandi (79%), Möltu (75%), Svíþjóð (74%), Noregi (72%) og Bretlandi (71%). Við Íslendingar skorum aðeins 47%, þetta særir mig voðalega. Ég er bara ekki að kaupa þetta, ó nei.

Alls ekki.

Reyndar finnst mér að í skýrslunni gæti hér þversagnar. Með "gagnvirkni" er átt við hversu mikil samskipti einstaklingar og fyrirtæki eiga við hið opinbera í gegnum Netið (eða rafrænt yfir höfuð, býst ég við). Eða eins og það er orðað:

Með samskiptum við hið opinbera er átt við að einstaklingar og fyrirtæki leita upplýsinga á opinberum vefsíðum, ná sér í eyðublöð frá opinberum aðilum um internet og senda inn útfyllt eyðublöð til opinberra aðila um internet. Tilboð til opinberra aðila um rafræna miðla eins og Rafrænt markaðstorg teljast einnig til samskipta fyrirtækja við hið opinbera.

Svo segir í skýrslunni um samskipti fyrirtækja:

Árið 2006 hafði meirihluti fyrirtækja á evrópska efnahagssvæðinu átt í samskiptum við opinbera aðila um internet. Algengast var að fyrirtæki hér á landi og í Finnlandi hefðu átt í slíkum samskiptum eða 93–95% fyrirtækja. Að meðaltali höfðu 64% fyrirtækja í aðildarlöndum Evrópusambandsins notað internet til samskipta við opinbera aðila (sjá mynd 3 og töflu 9).

Og um einstaklinga:

Hlutfall einstaklinga á aldrinum 16–74 ára sem notuðu internet til samskipta við opinbera aðila var hæst hér á Íslandi (61%) og í Noregi (57%) árið 2006. Í Hollandi, Finnlandi, Lúxemborg og Danmörku lá hlutfallið á bilinu 43–52% þetta sama ár. Að meðaltali hafði fjórðungur íbúa Evrópusambandslandanna átt í samskiptum við opinbera aðila um internet árið 2006 (sjá mynd 4 og töflu 9).

Er skýrslan þá ekki komin í þversögn? En magn þarf víst ekki að vera sama og gæði og kannski er verið að mæla "gæði" hér?

Finna má skýrslu Hagstofunnar hér.


mbl.is 83% íslenskra heimila tengd netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Táknmynd ofskynjunar

ofskynjunBetri helmingurinn benti mér á blogg Guðbjargar H. Kolbeins seint í gær, hún rétti mér líka  Smáralindarblaðið þannig að ég gæti barið svæsið atriðið/hryllinginn augum. Satt best að segja þá vildi ég óskað þess að ég hefði séð blaðið áður en ég las bloggið, þannig hefði ég getað borið viðbrögð mín saman við uppköst Guðbjargar. Satt best að segja held ég að mín viðbrögð hefðu verið engin.

Hérna er textinn úr blogginu hennar: smaralindar bladid

„Á forsíðunni má sjá unga stúlku á háum hælum í velþekktri stellingu úr klámmyndum. Hún er tilbúin til þess að láta taka sig aftan frá. Með munninn opinn býður hún lesendum af karlkyni að setja skaufa sína upp í sig.

Forsíðumyndin blandar saman sakleysi barnæskunnar (stúlkan er umkringd böngsum og loðdýrum) við tákn úr klámi (líkamsstellingin, opni munnurinn og háu hælarnir). Útkoman verður hin saklausa hóra, hin hreina mey sem í einni svipan verður klámmyndadrottning. Er slík notkun á táknum, sem eru flestum fullorðnum vel kunnug, viðeigandi á bækling sem er ætlaður fermingarbörnum?” 

Hver ert þú Guðbjörg? Hvað gengur þér til? Eða er réttara að spyrja hvað gengur að þér?

Hvers á stúlkan á myndinni að gjalda, hverskonar virðingarleysi er þetta við unga manneskju og þá sem henni standa næstir? Heldur Guðbjörg virkilega að fagfólkið sem vann þessa mynd og fólkið sem ber ábyrgð á auglýsingablaðinu hafi haft þær hugmyndir sem hún gefur í skyn?

Ég velti því fyrir mér hvort að það fólk sem hefur helgað sig hörku-femínisma sé orðið svo mengað að það sjái táknmyndir kláms og annars þess sem þau nefna sem kynjamisrétti í allt og öllu. Að það sé haldið ofskynjunum?

Mig grunar að Guðbjörg sé þessa stundina að semja vörn sína, ég óttast hálf-partinn, hennar vegna, að hún ætli sér að fylgja þessu eftir í þeim takti sem hörku-femínistarnir myndu gera. Líkast til verður sagt eitthvað í þá veru að fólkið hafi hugsanlega ekkert ætlað sér að gera út á klámið, en að svo illa sé nú samfélagið haldið, svo djúpt hefur klámið smogið inn í heila óvarins almennings að fólk er bara hætt að sjá viðbjóðinn sem er allt umliggjandi, fólk geri því svona hluti ómeðvitað -- þar liggur meinið og það þarf að særa í burt.

Það væru mistök hjá Guðbjörgu að koma ekki fram og einfaldlega biðjast afsökunar, bera við skyndibrjálæði og lofa því að fara í klámofskynjunarmeðferð - a la Hollwood.


Enn og aftur um Lille

Olympic 2004 035Synd þetta með hann Lille, hann er alltaf að koma sér í fréttirnar og alltaf skal það vera á hálf-leiðinlegum nótum. Nú var hann að tapa sér í Englandi, ef að ég skil það rétt. Ég bara vona að hann hristi af sér slyðruorðið sem allra allra fyrst, við vitum það öll að hann á betra skilið en en þetta umtal sem um hann hefur verið.

Koma svo stekkur inn minn Lille ven



mbl.is Manchester United vann Lille öðru sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur ekki merkjanleg áhrif á heimsmarkaðsverð!

viagraRólega, rólega, anda bara alveg rólega, ég held að það sé ekkert að óttast. Þó svo að það hljómi að þessi sending hafi verið stór þá fullyrði ég að svo er í raun ekki. Allavega virðist þetta EKKI hafa haft áhrif á heimsmarkaðsverð. Trúið mér þessi markaður er hrikalega vakur þegar kemur að framboði og eftirspurn.

Hvernig veit ég þetta? Jú sjáiði nú til, því hagar nefnilega þannig til að eitthvað fólk úti í heimi sem hefur verið, já og er, ákaflega annt um að ég sé að performera í bólinu sendir mér reglulega verð á stuði. Ég held að þau hugsi þetta einhvernvegin þannig að til þess að ég sé ekkert að hafa óþarfa áhyggjur þó svo að ég missi (hann) niður dag og dag þá senda þau mér reglulega tilboð (sumir kalla þetta víst spam, hvað er það?) á svona allskonar ballargotteríi. Sem auðvitað þýðir að þó svo að ég sé alveg slakur (hum, eða þannig) enda veit ég hvert ég get leitað. Svo eru þau að bjóða þetta á algjöru djók verði, sem að vísu gæti bara verið fyrir mig, en samt. Alveg hreint einstakt fólk þetta - ég sem þekki það ekki neitt!

Hérna að neðan er dæmið sem sannar þetta með heimsmarkaðsverðið, efri myndin er úr pósti sem ég fékk rétt í þessu (munið þessi markaður er mjög kvikur) og sú neðri er úr viku gömlum pósti. Eins og sjá má er verðið það sama.

 stinningartilod1

 stinningartilod2

ES. Hvað er þetta Levitra?
ES.ES. Afhverju fer Kári ekki í þennan bransa?


mbl.is Hald lagt á stinningarlyf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagði ég ekki!

lysisperla_180902Sagði ég ekki, get ég sagt en ég hef haft þá einföldu skoðun að nánast allt pilluát sé vont. Hvað fjörefni varðar þá eigum við einfaldlega að fá þau úr fæðunni. Ég reyni nú samt að taka lýsi reglulega og þar sem ég er óttaleg tepra þá kýs ég að taka það í pilluformi. Er eiginlega af-því-bara handviss um að það gildi eitthvað allt annað um blessað lýsið en aðrar vítamínpillur svo ekki sé talað um  alskonar önnur bætiefni, jamm lýsið á að taka sérstaklega - það er einstakt.

Nú er bara að vona að þeim hjá Lýsi hf. takist sem allra fyrst að sanna að þessi af-því-bara kenning mín sé í raun vísindalega sönnuð staðreynd (ef það hefur ekki þegar gert). 

Annars mun ég hætta að taka lýsi. 


mbl.is Fjörefnin banvæn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Golf og siðferði

golf_is_greatAtvik eins og það sem sagt er frá í frétt mbl.is er langt frá því að vera einsdæmi í golfi, slíkt er vel þekkt bæði á mótum atvinnumanna og áhugamanna. Siðareglur og siðferði skipta höfuðmáli í golfi, það væri vart hægt að keppa í golf ef kylfingar færu ekki eftri þeim, þessi staðreynd er eitt af mörgu sem gerir golfíþróttina sérstæða.

Það er m.a. af þessari ástæðu að ég fullyrði að engin íþrótt tekur golfi fram sem hentug uppeldisíþrótt. Golf reynir á líkamann og er holl og góð hreyfing, en það sem kannski skiptir börnin ekki síður máli er að golf reynir mikið á andlegaþáttinn. Í golfi alast börn t.a.m. upp við að vera dómarar í eigin sök, þeim er sýnt þetta traust frá upphafi.

Golf er íþrótt þessarar aldar.


mbl.is Sigurvegarinn dæmdi sjálfur á sig víti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Femenískar beljur súpa sjálfsagt hveljur"

men and women think diffrentlyÍ klámumræðunni miklu sem hefur verið í gangi undanfarið hafa málsvarar femínista farið mikinn. Það er ekki nokkur spurning að þarna fer fólk sem er staðfast í sinni baráttu og er það virðingarvert. En því miður þeirra vegna og ekki síst málstaðarins vegna þá gengur þessi staðfesta þeirra rökum ofar. Málflutningur (þessara) femínista einkennis að óbilgirni, þröngsýni, dylgjum og jafnvel hreinum og klárum lygum. Takturinn er gjarnan sá að fullyrða eitthvað, dengja inn í umræðuna órökstuddum "það er svona og hinsegin" rökum og neita síðan að ræða þessar fullyrðingar, oftast vegna þess að þeir sem ekki eru sammála eru svo miklir einfeldningar að ekki tekur því að ræða við þá eða annað í þeim dúr. Gífuryrði og uppásnúningur eru aðalsmerki þessarar "rökræðu" aðferðar.

 

Já því miður gerir þetta háttalag málstaðnum ekkert gott, hann verður ekki varinn né unninn með þessum málpípum þær hafa tapað allri virðingu og trausti. Það er þörf á nýjum málsvörum, nýjum röddum til þess að leggja málstaðnum lið.

  

Ég veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og ég vil leggja mitt af mörkunum í baráttunni fyrir því að svo megi verða.

 

Ég lít svo á að ávarp mitt sem kemur hér á eftir sé mikilvægur liður í þeirri baráttu, fyrst skerf af mörgum. Ég áskil mér vitaskuld rétt til þess að endurskrifa þetta eins oft og tel ástæðu til.

 

Ég heiti Viggó og ég er femínisti.

Alvara mín er alger þegar ég segi að við eigum að berjast fyrir fullu jafnrétti kynjanna, hvergi skulu lög eða reglur lýðveldisins mismuna kynjunum.

 

Við þurfum að berjast gegn því að þjóðfélagið sé karlmiðað, við þurfum að átta okkur á því að sú barátta mun taka langan tíma að hún mun ekki vinnast með offorsi, lögum og refsingum.  Hún vinnst með upplýsingu, með því að vinda ofan af náttúrulegri þróun sem átt hefur sér stað í 200þúsund ár eða svo. Þrátt fyrir að þessi afspólun gangi víða prýðilega þá má ekki gleyma því að hún hefur jafnvel ekki hafist í sumum heimshlutum.

 

Af fullri einurð trúi ég því að konur séu körlum jafningjar á flestum sviðum, körlum fremri á mögrum sviðum og síðri en karlar í mörgu. Það er jafnrétti að viðurkenna þessar staðreyndir. Konur og karlar eiga að ganga jafnt til leiks í daglegu lífi, í stjórnmálum sem og í atvinnulífinu. Að jafnaði ættu karlar ekki að ganga framar konum þegar ráðið er í störf eða skipað í embætti (hver er munurinn?), ekki frekar en að jafnaði skulu konur ekki ganga körlum framar. Ég styð að karlar fái sömu umbun og konur fyrir sömu störf og sama árangur.

 

Ég veit að konur og karlar eru ólík, líkamlega og andlega, ég vil virða og varðveita konuna í konunni, hæfileika hennar, innsæi, visku, ráðdeild og reynslu, á sama hátt vil ég virða og varðveita eiginleika karlmannsins. Það er eiginlegur munur á körlum og konum, þessi munur er ekki aðeins félagslegur tilbúningur, hann er líka líffræðilegur. Sannfærður er ég um að reynsluheimur karla er annar en kvenna, reynsluheimur kvenna annar en karla. Það er eðlilegt. Konur ættu að sýna körlum umburðarlyndi og karlar konum.  

 

Reiði mín er ólýsanleg og sorg mín sönn og algjör yfir viðurstyggilegum glæpum þar sem konur eru beitar ofbeldi, nauðgun er ógeðslegur glæpur og hvílík er smán manns sem misþyrmir konu í skjóli líkamlegra yfirburða.

 

Við eigum að tala áfram um menn og konur, kvennlegt og karlmannlegt, það er fáránlegt að ætla að útrýma kynjun í tungumáli, við eigum jafnvel að tala um karlastörf og kvennastörf þar sem það á við, líf okkar á að vera kynjað -- móðir er einfaldlega betri móðir en faðir, faðir er einfaldlega betri faðir en móðir. Það er ekki félagslegur tilbúningur, það er ekki kynjamisrétti. 

(b.0.8)


Pólipopp úr öllum glymskröttum

populismPöpulismi eru vond stjórnmál, þetta vita allir en gallinn er sá að fólk á erfitt með að halda aftur af sér -- pólipoppið hljómar svo ljúft. Siv kastar upp bolta, óvart segir segir Jón en stjórnarandstaðan lætur ekki á sér standa og gefur út nýtt lag sungið af samkór flokkanna, lagið heitir "Loddarabragur" þetta er raunar gott lag, hljómar sæmilega, er í þessum vel þekkta lýðskrums takti -- auðvitað fer það strax á topplistann.

Þeim er ekki sjálfrátt.

Gefur þessi uppákoma mér tilefni til þess að hugsa um framhaldið. Tveir mánuðir eru til kosninga sem þýðir að nú er sú tíð framundan að pólitískar uppákomur og stjórnmála þras á eftir að fylla alla fjölmiðla (blogg þar með talin). Það verður varla vært. Stjórnmálaleiðtogar og pótintátar flokkanna eiga eftir að vera fyrir augum og eyrum okkur linnulítið fram að kosningum -- margir hverjir, flestir, talandi í takt við vinsælustu pólipopplögin. Skemmtilegt sem það er.

Annar áberandi þáttur þessarar tíðar eru skoðanakannanir, við eigum eftir að sjá þær margar á næstu vikum. Þær munu taka á fylgi flokkanna og eins einstaka málum -- málum sem talin eru brenna á fólki.

Kúnst pólipopparanna er að finna taktinn úr þessum könnunum, bregðast við þeim með nýju lagi -- koma því á topplistann.

Í aðdraganda kosningabaráttunnar er staðan hvað fylgi flokkanna varðar circa þessi: Sjálfstæðisflokkurinn með 36 - 40%, Samfylking 22 - 25%, Vinstri-grænir 20 - 24%, Framsókn 11 -12% og Frjálslyndir 6 - 8%. Reyndar hafa einhverjar kannanir sýnt VG stærri en S og finnast mér þetta stærstu tíðindin þessa dagana, ekki endilega að VG skuli vera stærri en Samfylkingin, enda ekkert vitlegt komið úr þeirri átt lengi, heldur hversu mikið fylgi VG hefur yfirhöfuð. Það vekur líka athygli hversu margir eru óákveðnir. Þetta er kjölendi fyrir pólipopparana, nú er um að gera að gefa út fullt af pólipoppi.

Aftur að fylgi VG, hvernig stendur á því að VG fær svo mikið fylgi í könnunum? Til þess að vera alveg heiðarlegur er rétt að ég spyrji spurningarinnar eins og hún hljómar í kollinum á mér; hvernig í andskotanum stendur á því að flokkur sem er lengst til vinstri, kommúnistaflokkur, argasti afturhalds- og forræðishyggjuflokkur sem sést hefur í áratugi mælist með allt að 25% fylgi hjá þjóðinni?

Hvað er það í þjóðarsálinni, samfélaginu, í umhverfi okkar sem opnar þessu fólki leið að hjörtum fjórðungs kjósenda?

Er málið að spila á strengi þjóðarsálarinnar, flagga einstaka málum sem snikkuð hafa verið þannig til að sem flestum líki og smjúga þannig inn - jafnvel á fölskum forsendum.

Ég gæti skilið þessa stöðu ef fólkið í landinu hefði liðið skort, harðræði eða annan órétt undanfarið kjötrímabil eða þá að við þjóðinni blasti alvarleg vá vegna aðgerða eða aðgerðaleysis núverandi stjórnar. En ekkert af þessu á við, hvergi í heiminum líður fólki að jafnaði eins vel og hér, hvergi er að finna jafn hverfandi eymd og hér.

Ísland er einfaldlega fyrirmyndar velferðaríki, hvar sem borið er niður á viðurkenndum mælikvörðum sem mæla velmegun þjóða eða einstaka velmegunarþætti þá erum við Íslendingar ofarlega á lista, ef ekki efstir.

Hér er atvinnuleysi hverfandi, verðbólga er að vísu há en það var fyrirséð fórn og og mun hún ganga hratt til baka. Sem afleiðing af þessu eru vextir hér óþolandi háir.  Við eyðum 8,8% af þjóðarframleiðslu í heilbrigðismál, öllum þjóðum meira, 8% í menntamál (aðeins Danir leggja meira í þennan málaflokk). Langlífi er mikið og barnadauði fátíður. Engir eru betur tengdir en við bæði hvað varðar Netið og síma. Sennilega ferðast engir meira en við og jafn sennilega koma hvergi jafnmargir túristar (maður á mann) og hingað. Ætli glæpir séu hér ekki með allra minnsta móti. Jafnrétti er með því mesta sem þekkist, þátttaka kvenna í atvinnulífinu er hvergi meiri, launamunur kynjanna er talsverður, en samt líklega sá fjórði minnsti í heiminum (á eftir Svíþjóð, Noregi og Danmörk). Gegnsæi stjórnsýslunar er talið með því mesta í heiminum. Við eigum gnótt hreins vatns, nóg landrými, næga orku og auðug fiskimið sem við höfum stjórnað betur en nokkur önnur þjóð. Við erum einfaldlega fjandi góð, eiginlega er Ísland best í heimi.

Öll alvarlegustu vandamál þessa heims eru í órafjarlægð frá litlu hamingjusömu þjóðinni á Íslandi.

Draumalandinu!

Því spyr ég enn; hvernig stendur á því, að við þessar aðstæður sem auðvitað er ekki hægt að kalla annað en gósentíð, hafi argasta afturhald náð til þetta stórs hluta þjóðarinnar? Er þetta ný birtingarmynd velmegunarvandans? Eða er það vegna þess að Samfylkingin og Framsókn eru eru ekki að stand sig? Þetta í bland kannski?

Hvað ræður því hvaða flokk (framboð) fólk kýs? Þetta er auðvitað of flókin spurning fyrir mig að svara, en ég geri það samt; í grunninn met ég þetta svona:
Traust, það er sú reynsla sem ég hef af störfum flokks og því fólki sem raðast á lista flokksins - hér skipta einstaklingar, hæfni þeirra og trúverðugleiki nokkru máli, en þó ekki meira en svo að eitt og eitt skemmt epli ræður ekki úrslitum.
Stefna, það er grundvöllur flokksins megin viðhorf og gildi sem ráða afstöðu og gjörðum flokksins. Hér er mikilvægt hversu vel flokknum tekst að þróa stefnu sína í takt við tíðarandann og það í eðlilegum tengslum við fortíðina. 
Stefnufesta, hversu vel tekst flokknum að fylgja stefnu sinni, hversu samkvæmur er hann sjálfum sér, með hvaða hætti eru þær málamiðlanir sem hann gerir (hversu dýrt selur hann sig). 
Heiðarleiki, þetta er erfiður þáttur að meta - heiðarleiki stjórnmálaafls verður helst metið með skoðun á stefnufestu þess og hversu samkvæmt það er sjálfu sér. En þegar kemur að heiðarleika stjórnmálamanna þá spyr ég mig hvort að stjórnmálamaður geti í raun verið heiðarlegur.  Allt tal um heiðarleika hlýtur að innifela m.a. hugsun um sannleika og lygar. Stundum getur það verið nánast ómögulegt fyrir stjórnmálamenn að þegja, aðstæður þeirra eru bara þannig og þegar þeir eru spurðir spurninga við þessar aðstæður, sem "rétt" svar við hentar ekki málstaðnum - þá ljúga þeir í stað þess að þegja. Mér hefur virst að heiðarleiki sé á stundum samningsatriði. Ég trúi því til að mynda að skýr flokkslína leyfi einstaka stjórnmálamönnum að vera "óheiðarlegum", gefi þeim afslátt frá eigin sannfæringu. Þetta er eðlilegt svo fremi sem viðkomandi er ekki að fara gegn yfirlýstum skoðunum sem kunna að hafa verið úrslita atriði í því hvort að viðkomandi hafi náð kjöri til þings.

Ég vænti að almennt hafi eftirfarandi atriði áhrif og þá sérstaklega hjá þeim sem teljast óákveðnir í aðdraganda kosninga:
• málsvarar - útlit, útgeislun, framkoma þeirra sem helst koma fram fyrir hönd framboðsins
• yfirbragð framboðs, framsetning á stefnumálum, jákvæðni og birta sem af framboðinu stafar í gegnum útgefið efni og framkomu
• tengsl (skyldleiki, félagsleg, hagsmunatengsl)
• einstök mál - málin sem eru látin brenna á þjóðinni

Það er staðreynd að þjóðinni líður vel og nú velti ég því fyrir mér hvort að sú vellíðan dragi úr fólki tennurnar, að það hætti að velta fyrir sér grundvallar atriðum og fari að kaup "lög" af vinsældarlistanum án þess að hafa mótað sér sína eigin skoðun. Í dag sitja umhverfismál í efsta sæti pólipopp listanns. Annars held ég að pólipopp topp 10 listinn líti einhvernvegin svona út sem stendur:
1. umhverfismál (hefur blasað við lengi að þetta yrði efsta mál á baugi)
2. auðlindamál (Framsókn kom þessu máli á listann og því verður hraustlega fylgt eftir af stjórnarandstöðunni)
3. jafnréttismál  (undirliggjandi straumur sem VG hefur verið að reyna að virkja)
4. almanna- og sjúkratryggingarmál (eldriborgarar kunna að láta í sér heyra)
5. efnahagsmál (stjórnarflokkar vilja halda þessu á lofti)
6. samgöngumál (mönnum kennt um að brjóta loforð)
7. innflytjendamál (keyrt á Frjálslindaflokkinn)
8. ESB aðild (Samfylkingin mun reyna að færa þetta lag upp listann með mikilli spilun)
9. innrásin í  Írak (Sjálfstæðisflokkurinn þarf að standa þessa vakt einn, Framsókn búinn að semja sitt varnarlag)
10. tvær eða fleiri þjóðir í landinu (Samfylkingin og VG munu leiða ójöfnuðarumræðuna)

Getur það verið að vegna þess að okkur líður svo vel að stór hluti af þjóðinni sé tilbúin til þess að líta framhjá raunverulegum hagsmunum sínum, stökkva á hljómsveitarvagna lýðskrumsgrúbbnanna, kjósa á forsendum pólipoppsins?

Ég trúi því ekki fyrr en á reynir.


mbl.is Stjórnarandstaðan býðst til að styðja stjórnarskrárbreytingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klámhelgi

old pornog picUm helgina hefur verið nóg að gera í klámbransanum hérna heima, greinar og viðtöl í blöðum, bloggum og í Silfri Egils fór nokkur tími í málið. Eitt er undirliggjandi í þessari umræðu en það er spurningin; hvað er klám? Eða öllu heldur skortur á svari við þessari spurningu.

 

Fjörugust var umræðan í Silfri Egils, en þar var það góðborgarinn, sem finnst alltaf asnalegt að tala um sig sem góðborgara, Sóley Tómasdóttir sem fór á kostum, það er óskapleg fyndið að fylgjast með málflutningi hennar, en rökleysi í blandi með alhæfingum lýsir honum best. 

 

Fyrir þá sem ekki sáu Silfur Egils þá er það að finna hér , klám kaflinn byrjar á 51. mínútu og er hreint kostulegur (hægt er að færa tímaránna circa undir bindið hjá Agli vinstramegin í mynd).

 

Hérna eru nokkrar tilvitnanir í Sóley ásamt athugasemdum frá mér:

"...klám er ólöglegt á Íslandi, ekki bara barnaklám, heldur klám yfir höfuð" , en síðar kemst hún að þessu "... og hérna en, það sem ég held að skipti lang mestu máli í þessu samhengi er að klám sé skilgreint í lögum...". Það liggur fyrir að klám er ekki skilgreint hugtak og ætti því að vera ótækt í lögum, það sem lesa má út úr hegningalögunum er að barnaklám er verra en klám og að klám er ekki mjög alvarlegur glæpur. Sem betur fer þar sem hugtakið er ekki skilgreint, það væri hrikalegt ef hægt væri að dæma fólk þungum dómum byggt á svona lögum. 

 

"Klám er kynferðislegt ofbeldi" -- hvorki meira né minna.

 

"... við vitum vel að klámiðnaðurinn er ógeðslegur, klám er mynd af vændi í sinni grófustu mynd" -- annað í þessum stíl hjá henni.


"... það voru uppi allskonar hugmyndir um hverslags klámefni verið væri að framleiða hjá þessum einstaklingum sem að hingað ætluðu að koma...." -- fólk var með einhverjar hugmyndir, hjálpi mér, og átti það að nægja til þess að banna fólkinu að koma hingað?

 

Sóley segir að klám sé það sama og kynferðislegt ofbeldi, barnaníð, mansal og ég veit ekki hvað. Já já þetta gildir skal ég segja ykkur líka um hommaklám.

 

Þegar á hana er gengið og óskað eftir því að hún skilgreini klám þá vildi hún svo ekkert ræða þetta frekar, þetta væri fyrir lögfræðinga, kynjafræðinga og félagsfræðinga vegna þess að þetta væri flókið mál, að það væri ekki hennar að draga þessa línuna.

 

Guði sé lof.

 

Þessa konu er ekki hægt að taka alvarlega.


Dómarar partur af almenningi!

last judgementÉg heyrði í Bylgjunni svona útundan mér áðan, Reykjavík síðdegis var í gangi og þar var í viðtali Símon Sigvaldason formanns dómstólaráðs. Umræðuefnið (að ég held) minnkandi traust almennings til dómstóla.

Ég hjó eftir því að Símon þessi sagði eitthvað á þá leið að íslenska þjóðin væri lítil og einsleit, að dómarar væru auðvitað sprottnir uppúr þessu sama umhverfi og að þeir væru jú partur af almenningi. Ég efast ekki um að það sem hann sagði hafi verið í stórum dráttum rétt, en velti samt fyrir mér þessum spurningum:

Hvað þekkir þú marga dómara?
Hversu oft hefur þú talað við dómara, svona á förnum vegi?
Hversu oft hefur þú talað við dómara, að störfum?
Hversu oft hefur sú umræða snúist um dómstóla?
Hversu margir dómarar skrifa hér á blogginu?
Og að lokum hvort eru dómarar með þrjú augu eða fjögur?

Nei mér bara datt þetta í hug!

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband