Leita í fréttum mbl.is

Dansandi karlar - Áttahundruð stykki eða svo!

Þá er komið að því, bóndadagurinn er í dag sem þýðir að ég er að fara á Herrakvöldið (með stóru hái). Þetta eina og sanna, það lang fjölmennasta.

 

Ég er að tala um Herrakvöld Fylkis, en það sækja um 800 plús karla af öllum stærðum og gerðum, sem dengja í sig öli og brennivíni á meðan þeir slafra í sig eitthvað af ógeðslegu súrmeti og kæstum viðbjóði.

 

Æðislegt, ekki satt?

 

Undanfarin 15 ár eða svo hef ég tekið slaginn, keypt ógrynni af happdrættismiðum og slatta af  málverkum hef ég keypt á illræmdu uppboði kvöldsins.

 

Þrátt fyrir að ballið sé búið snemma eða svona uppúr miðnætti þá er ég oftar en ekki  í ekkert of góðu standi þegar ég kem heim, hum, í einhver skipti hef ég nánast oltið yfir þröskuldinn.

 

Í etti skiptið þegar ég var búinn að hlamma mér í sófann heima þá fór Helga að spyrja mig hvað við gerðum nú á þessum herrakvöldum, ég reyndi eftir bestu getu að skýra frá því en tókst eitthvað illa upp. Í þynkunni daginn eftir þá spurði ég hana hvað hún vildi eiginlega vita, þá spurði hún mig "ég meina, dansið þið til dæmis?" ...

 

Ég veit ekki hvert ég ætlaði, í hugskoti mínu sá ég mynd sem var hreinlega drep fyndin. Sjáið þið fyrir ykkur 800 hundruð gæja nett sveitta í bömpi eða lambaða?

 

Ekki ég.

 

dancing-men


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband