Leita í fréttum mbl.is

Pípan til Bill Gates er alltof grönn

Gaman að heyra af þessu og vona að af heimsókn Bill Gates verði, skemmtilegast væri ef hann tæki T-Bone með sér.

Af gamni mínu kíkti ég á hversu vel við Íslendingar og Bill Gates værum tengd á Netinu, þetta er niðurstaðan:

Reykjavik - Seattle WA USA

(þeir sem hafa áhuga á að mæla hraða tengingar sinnar við hina ýmsu staði í heiminum ættu endilega að kíkja á speedtest.net en þetta er sniðugasta útfærslan á svona þjónustu sem ég hef séð)

Í ljósi þessa skil ég vel vel að Bill Gates vill frekar koma hingað en að reyna að spila við rafrænt bridsborð, maðurinn hefur skiljanlega ekki þolinmæði í að hanga eftir mönnum sem eru að því er virðist ljósár í burtu :-)  

Niðurstaða þessarar mælingar ber okkur Íslendingum ekki góða sögu og rennir því miður stoðum undir það sem ég skrifaði (sjá hér) um hitting þeirra Ólafs Ragnars og Bill Gates í Edinborg, en þar skrifaði ég:

Ísland er best!

 

Við höfum svo sem séð nokkur smá skref í þá átt að útlend tæknifyrirtæki vilji gera eitthvað hér og þó svo að okkur hafi ekki enn tekist að laða til okkar stór dæmi þá er það einungis spurning um tíma. Framlag Ólafs Ragnars mun án nokkurs vafa hjálpa til.

 

En hvers vegna hefur ekki tekist að laða hingað fyrirtæki úr UT geiranum? Fyrir því eru margar ástæður og er nauðsynlegt fyrir okkur að kafa vel ofan í þessa þætti sem fyrst. Akkúrat núna dettur mér þetta í hug:

  • Þvert á viðtekna skoðun þá er hér skortur á hæfu vinnuafli 
  • Netsamband okkar við umheiminn, algjört lykil atriði í þessari umræðu, er fjarri því að standast skoðun
  • Markaðurinn er lítill og einsleitur
 

Nú svo má spyrja, hvers vegna íslensk stjórnvöld (hum og atvinnulífið) hafa ekki rutt þessa braut betur? Höfum við ekki haft nægilega sterka trú á hugmyndinni? 

 



mbl.is Bill Gates á Bridshátíð eftir tvö ár?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Púkinn er sammála, en vill bæta við ástæðum:

  • Gengissveiflur íslensku krónunnar gera það að  verkum að útflutningsfyrirtæki (hvort sem er UT eða ekki) eiga erfitt með rekstur hér.
  • Launakostnaður er mjör hár hérlendis.
  • Skólakerfið er ekki að standa sig.

Púkinn, 10.2.2007 kl. 17:11

2 Smámynd: Viggó H. Viggósson

Krónan er erfið, ég er sammála því. En sú starfsemi sem hefur mikinn virðisauka (háa framlegð) og ekki reiðir sig á innflutt aðföng á engu að síður að þola "skapsveiflur" hennar betur en aðrir geirar.   

Varðandi launakostnaðinn þá bendi ég á að við viljum fá hingað hátæknistörf, það er væntanlega helst þar sem við getum talist samkeppnishæf.

Síðasti viðbótarpunkturinn þinn rúmast reyndar undir fyrsta punktinum hjá mér.

Vil svo bæta því við að mér er mikið létt að Púkinn skuli vera mér sammála (að mestu), hefði ekki viljað hafa það með öðrum hætti. Ég held nefnilega að það sé vont að vera ekki svolítið púkalegur - enda væri maður þá líkast til bara eins og allir aðrir. Sem er ópúkó!

Viggó H. Viggósson, 10.2.2007 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viggó H. Viggósson
Viggó H. Viggósson

Terroristi (þ.e. Íslendingur)
Que Sera, Sera!

Tónlistarspilari

Doris Day - Whatever Will Be Will Be (Que Sera Sera)

Nota bene

Telja

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband