Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
8.10.2008
Bring it on!
Heyrðu kallinn, ekkert svona ...
Jæja nú er eins gott að Goggi kalli út sitt lið í Landhelgisgæslunni.
Allir í bátana!
Hafa þarf snör handtök; pússa og bóna kanónurnar, fylla fleyin (bæði tvö) af birgðum, finna hin skotin (þ.e. ekki púðurskotin - þó sjálfsagt sé að hafa þau með í för), setja kúrsinn á norðausturhorn Hatton Rokall svæðisins og stíma út.
Taka stöðu og standa fast ...
Brown hótar aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eða er kannski bara verið að gera grín í okkur....
Eigum við kannski von á:
Svo hnaut ég um þessa frétt:
Var það annars ekki Landesbank Reihland-Pfalz sem Glitnir var í viðskiptum við? Þessi sem seldi sig (að sumra sögn) á vald DO og kó og köttaði svo lánalínunna til Glitnis!
Merkileg tilviljun hvernig örlög þessara aðila blandast örlögum draumalandsins.
Óskylt, en þó ekki; þá ætti aldrei að eiga viðskipti við banka hvers nafn er fals!
Annars: með ástarkveðju frá Íslandi.
Baksvið: Hvaða vinir" brugðust? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2008
Smáskammtalækningar er aðferð ESB
Fréttaskýring: Öll samstaða brostin meðal Evrópuþjóða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2008
Þegar vonin ein er eftir ....
Þegar vonin ein er eftir þá er ekki annað að gera en að vona - heit og innilega.
Nú er ekki annað að gera en að trú því og treysta að forsætisráðherra kunni að hasta á illviðrið eins og annar maður ku hafa gert forðum.
Víðtækar heimildir til inngripa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2008
Óvissuferð á ögurstund
Óvissuferð er hreint ekki það sem þessi þjóð þarf á að halda.
Það má vel vera að í gær hafi það verið metið svo í Ráðherrabústaðnum að slútta yrði helginni með einhverjum hætti.
Geir var sendur út á hlað - tómlátur og fjarhuga.
Hann sagði: "Þessi helgi hefur skilað því að við teljum núna ekki lengur nauðsynlegt að vera með sérstakan pakka með aðgerðum, "
Taktíkin var væntanlega að koma út skilaboð um að ástandið væri nú ekki svo slæmt, að hlutirnir væru að færast í rétt horf, málinn að róast og því ekki nauðsynlegt að grípa til sérstakra aðgerða. Það átti sum sé að róa lýðinn. Samandregið þá voru skilaboðin eitthvað á þessa leið:
- það er ekkert panik á íslenskum stjórnvöldum.
- boðið er upp á fullt af kostum í stöðunni; menn verða gefa sér tíma til að velja vel.
- aðgerðir bankana eru sjálfknúnar sjálfsbjargar aðgerðir þeirra, það er ekki verið að þvinga menn til eins eða neins - enda ekki ástæða til.
- lífeyrissjóðirnir hafa fullan hug á því að taka inn slatta af aurum frá útlöndum, það eru líka sjálfknúnar aðgerðir - enda krónan ódýr og í boði trygg bréf á fínum vöxtum.
- fulltrúar launafólks eru algerlega með á nótunum og munu róa sitt bakland - halda aftur af sér og sínum.
- þeir sem að málinu hafa komið eru allir samtaka og munu leggja sitt af mörkunum.
- hafið GÓÐA NÓTT
En svona var þetta ekki - auðvita ekki, það vissu allir. Nú segir Geir að staðan sé mjög alvarleg.
Það er verið að róa lífróðri; en við verðum að trúa því að menn sjái til lands, að aðeins sé eftir að fara í gegnum brimgarðinn og velja vör til lendingar. Við treystum Geir og hans fólki til þess að taka land - fumlaust.
Hann sagði við þá: Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir? Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn.
Mennirnir undruðust og sögðu: Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.
Óvissa um aðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2008
Pólitísk dagsskrá fræðimanns
Íslenska ríkið, þjóðarskútan er ekki að sökkva eða hvað? Er prófessorinn virkilega að halda því fram? Erfiðið tímar - já. Eigna missir - já. En við, þjóðin erum ekki á leiðinni niður?
Fjandakornið; getum við ekki talið það eðlilega áhættu hjá lífeyrissjóðunum að taka þátt í samstilltu átaki þjóðarinnar til þess að rétta við þjóðarskútuna? Aðgerð sem miðar að því að koma í veg fyrir eignaupptöku sjóðsfélagana - íslensku þjóðarinnar!
Og haft fína ávöxtun í leiðinni.
Liggur ekki fyrir að þessu fé verður komið fyrir til ávöxtunar hér á landi, líklegast í ríkistryggðum skuldabréfum.
Best væri að menn í stöðu Þorvaldar Gylfasonar létu af pólitískri dagskrá sinni um stund.
Eða kannski um aldur og æfi.
Líst illa á að lífeyrissjóðir flytji fé heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.10.2008
Hver er til þrautavara?
Hvar er Seðlabanki Evrópusambandsins í þessu máli? Ef hann er ekki til þrautavara fyrir Hypo, væri hann það þá fyrir Kaupþing? Getur það verið að skjólið sem sumir sjá í ESB aðild sé hugsanlega eitthvað minna en haldið er?
Er staðreyndin ekki sú að í ESB eru 27 kraftar sem toga sinn í hverja áttina. Á ögurstundu skapast ekki sjálfkrafa samstaða, heldur þvert á móti má búast við því að erfitt verði að samræma stefnuna, að allir stefni á sama pól.
Eins og fram hefur komið þá getum við Íslendingar gert ýmislegt sjálfir okkur til bjargar. En væntanlega mun það ekki duga til og því þurfum við hjálparhönd - margar hjálparhendur býst ég við. Þessi hjálp getur tæplega verið í öðru en lánum og vilyrðum fyrir enn frekari lánum - til þrautavara!
Auðvita þurfum við að taka þau erlendu lán sem okkur stendur til boða - eða hvað? "Auðvita" er auðvita ekki rétt orðaval; að auka skuldir þjóðarinnar er auðvita ekki gott.
Það sem gildir best er að sækja erlendar eignir og flytja þær heim - breyta í krónur. Þær eignir sem auðveldast er að sækja eru innistæður og sjóðseignir. Nú er ég ekki aðeins að vísa til lífeyrissjóða heldur til eigna "auðmanna" þjóðarinnar. Ég átta mig á því að selja fasteignir og fyrirtæki (t.a.m. banka), í heild eða að hluta er ekki auðvelt á þessum tímum - en menn verða að axla ábyrgð. Þó svo að gjörningar á borð við eignasölu klárist ekki á dögum eða vikum þá ætti að hefja vinnu í þessa veru strax. Slíkar aðgerðir ættu að vera skilyrtar í þeim björgunarpakka sem nú er verið að sníða.
Þýskur banki riðar til falls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.10.2008
Í ræktina - strax!
Það má ekki gerast að Steingrímur Joð gefist upp, það er mikilvægt að hann geti haldið sinni sáttahönd útréttri sem lengst. Helst út í það endalausa.
Kallinn verður nú að drífa sig í ræktina - oft var þörf, nú er nauðsyn.
Hérna eru leiðbeiningar um hvernig hægt er að byggja upp handleggsvöðva.
Myndin hér til hliðar er mín draumsýn - sýn um hina styrku sáttahönd!
Sáttahöndin að þreytast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008
Hip, hip, húrra!
En, eða kannski auðvita, enduðu markaðir í mínus þarna vestur frá - sú staðreynd fer nett í taugarnar á mér. Skýringin er víst sú að framan af degi voru teknar stöður með eða á móti (markaðir voru upp um 3%) og um leið og niðurstaðan lág fyrir þá voru þær, stöðurnar, hreinsaðar. Menn tína saman aurana sína, kannski eitt eða kannski þrjú prósent og stinga rentunni í vasann og við þessa uppskeru tíð falla markaðirnir aftur
Þá byrjar "the waiting game", menn eru ekkert of fjáðir í það að taka mikla áhættu - eru kannski svolítið brenndir, fara því varlega. En ég segi það enn og aftur; mánudagurinn má bara ekki verða til mæðu!
Svo vona ég að þetta sé ekki síðasta fagnið - að héðan í frá verði allt upp á við.
Eða þannig.
Fulltrúadeildin samþykkti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008
These are the times that try men's souls
Það verða allir að koma að lausn. Lífeyrissjóðir eiga að selja erlendar eignir í stórum stíl og einstaklingar sem eiga milljón hér og aðra þar ættu nú að kaupa krónur - allir sem einn. Við munum ekki ná okkur út úr þessari stöðu nema með fórnum, því fyrr sem við bregðumst við því minni verða fórnirnar.
Í Washington er fulltrúadeildin að takast á um björgunarpakkann og mun greiða atkvæði um hann eftir umræðuna. Ég vona að þær breytingar sem hafa verið gerðar á honum frá síðustu atkvæðagreiðslu dugi til þess að lögin verði samþykkt. Þar eru menn að færa mikla fórn - mikilvæga fórn, sem ekki aðeins mun hjálpa þeim heimafyrir heldur um heim allan.
Ég les stöðuna þannig; að mórallinn sé sá að engin hafi sérstakan áhuga á því að bjarga strákunum í Veggstræti, þeir bökuðu sína skítaklessu sjálfir - engin mun gráta þó þeir þurfi að selja Rolex'inn eða Bímerinn. Engin vill henda til þeirra gullinni fallhlíf, þeir mega fara niður í frjálsu falli!
Farið hefur fé betra.
En frá tíma til tíma kemur upp sú staða að menn þurfa að þrífa upp skítinn eftir aðra, einmitt nú er sá tími - það verður að vernda almenning; fólkið í Aðalstræti. Þess vegna á að á að moka þennan skýt - vegna mömmu og ömmu sem annars kunnu að tapa öllum sínum sparnaði og vegna allra þeirra sem annars munu tapa vinnunni.
Þingmenn eru ekkert endilega vissir um að þessi pakki muni duga til, eru ekkert vissir um að rétt sé að draga hrokafullt Veggstrætis gengið að landi. Aðgerðin mun ekki koma í veg fyrir kreppu, en menn munu binda vonir til þess að með því að samþiggja lögin muni þeir skapa svigrúm - svigrúm sem nota má til frekari aðgerða.
Warren Buffett heldur því fram að ef þessi aðgerð verði rétt framkvæmd, sem hann telur lögin vera, að þá muni bandaríska þjóðin græða mikla peninga. Kannski ekkert ósvipað Glitnis-pakkanum hér heima.
Eitt er víst a ekki dugir að gera ekki neitt, það verður að smyrja tannhjól efnahagslífsins, þau hjól verða að snúast. Áætlun er ekki fullkominn, langt því frá en ég býst við að þeir sem voru á móti áður munu nú sjá hana sem illa nauðsyn.
Stöðva verður blæðinguna.
These Are the Times That Try Men's Souls
Lífeyrissjóðir komi að lausn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Golf
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nota bene
Telja
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Skoðið
- Kosovo og sagan af landinu bláa Hvernig saga Blámanna kynni að verða
- Hjarðfullnæging Hjarðfullnæging
- Báknið burt
- Liljan hans Steingríms Joð Liljan hans Steingríms Joð
- Kynjamyndir, klám og klikkaðar kerlingar Kynjamyndir, klám og kk